Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.02.2012, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 16.02.2012, Blaðsíða 21
21VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 16. FEBrúar 2012 Kef. airport - www.alex.is - Guesthouse nota þetta         ERT ÞÚ RÉTTI MAÐURINN ?  Starfssvið:  ‐ Almennar viðgerðir við bílaré1ngar  ‐ Almenn vinna við bílasprautun  ‐ Önnur 7lfallandi verkefni vegna undirbúnings og  frágangs bíla  Hæfniskröfur:   ‐ Ré1ndi í bifreiðasmíði eða áralöng reynsla af  bifreiðasmíði   ‐ Ré1ndi í bílasprautun eða áralöng reynsla í  bílasprautun  ‐ Góð þekking á bílum  ‐ Hæfni í mannlegum samksiptum  Í boði er spennandi framtíðarstarf hjá nýju fyrirtæki sem  hefur að skipa metnaðarfullum og samhentum  starfsmönnum.  Við leitum að reglusömum einstaklingi  sem er stundvís og vandvirkur.    Nánari upplýsingar og umsókn ber að skila 7l Gunnars  Ásgeirssonar á neNangið gunni.bilnet@gmail.com  Bílnet hefur rekstur stra/ e0ir áramót að Brekkustíg 38 í  Reykjanesbæ.  Markmið okkar er vera fremsBr í flokki hvað  varðar gæði og  fagmennsku.     Fitjaflutningar Si g u r ð u r I n g i m u n d a r s o n v e i t sennilega manna mest um það hvernig sturtuklefarnir í Laugardalshöll líta út en hann hefur vart tölu á hve oft hann hefur farið þangað. Bæði hefur hann farið sem leikmaður og þjálfari og hann er því hokinn af reynslu og þekkir andrúmsloftið í Laugardalshöll öðrum fremur. „Við breytum lítið út af vananum en þetta er eins og hver annar leikur, að vísu er þessi leikur örlítið stærri en þetta er bara körfuboltaleikur,“ segir Sigurður sallarólegur. „Þetta snýst aðallega um það að menn einbeiti sér að leiknum og þá erum við í fínum málum,“ segir hann en leikmenn Keflvíkinga hafa ekki margir reynslu af bikarúrslitaleikjum en Sigurður segir það ekki vera mikið mál. „Þetta verður rosalega skemmtilegt og það verður sérstaklega gaman fyrir Tindastólsmenn að koma í fyrsta sinn í Höllina. Þeir munu mæta af fullum krafti. Það munum við klárlega gera líka en þeir eru gott lið og eru búnir að spila vel að undanförnu og unnu flottan sigur gegn KR í undanúrslitum, þannig að þetta er alvöru lið.“ Keflvíkingar hafa eins og áður hefur komið fram sigrað viðureignir þessara liða í vetur en að mati Sigurðar var þar um aðra keppni að ræða. „Við erum ekkert að tala um það hvernig fór síðast. Þetta er bara 50/50 leikur og liðið sem kemur betur undirbúið, vinnur þetta.“ Sigurður er ekki að fara í fyrsta skipti í Laugardalshöll og ef minnið er ekki að bregðast honum þá hefur hann farið 14-15 sinnum, bæði sem leikmaður og þjálfari en Sigurður fór á sínum tíma 6 ár í röð sem þjálfari kvenna og karlaliðs Keflvíkinga í bikarúrslitin. Þetta er alltaf jafn gaman að hans sögn og hann fær alltaf smá fiðring í magann. „Annars væri maður löngu hættur þessu. Þetta er mikil stemning og mesta fjörið sem maður kemst í í körfuboltanum. Það vilja allir komast í þennan leik,“ en Sigurður segir að það sé um að gera að njóta þess og hafa gaman af. „Það er dálítið langt síðan við vorum í Höllinni og enn lengra síðan við unnum og fyrir okkur er það heil eilífð. Við erum spenntir fyrir þessu og ég hef ekki trú á öðru en að það verði allt morandi af Keflvíkingum í Höllinni,“ sagði Sigurður að lokum. Sverrir Þór Sverrisson var enn að jafna sig eftir háspennuleik gegn Haukum í undanúrslitum þegar blaðamaður náði tali af honum en Njarðvíkingar sigruðu þar eftir framlengingu. „Þetta var svakalegt gegn Haukum og það var erfitt að sofna eftir þann leik, “ segir Sverrir sem er þjálfari Njarðvíkinga. „Við virtumst vera með þetta í hendi okkar en þær skora ævintýralega körfu og jafna í lokin. Svo voru ekki nema örfá sekúndubrot eftir þegar þær skora í framlengingunni en þetta fór bara eins og það fór.“ Viljum koma heim með fyrsta bikarinn „Við förum ekki að breyta út af vana okkar varðandi undirbúning en við erum með fjölbreyttan hóp. Við erum með reynda leikmenn sem hafa spilað svona leiki og svo erum við með ungar stelpur sem þekkja þetta ekki. Svo erum við með tvo erlenda leikmenn sem þekkja þetta ekki. Það sama má segja um Snæfell,“ segir Sverrir en hann ætlar ekki að afsaka neitt með því að tala um reynsluleysi. „Það verður bara mætt í Höllina og stefnt að því að koma heim með fyrsta bikarinn.“ Sverrir segir Snæfellinga vera með mjög gott lið og að þær hafi verið öflugar að undanförnu. „Þær bættu við sig erlendum leikmanni sem gerir liðið enn betra. Það verður gaman að mæta þeim í Höllinni þar sem hvorugt liðið hefur náð að sigra bikarkeppnina í kvennaboltanum.“ Sverrir Þór hefur farið tvisvar í Höllina sem leikmaður Keflvíkinga og hampað bikarnum í bæði skiptin. „Þetta er auðvitað stærsti staki leikurinn í íslenskum körfubolta og þetta er eitthvað sem að leikmenn dreymir um að upplifa. Ég er því einkar ánægður fyrir hönd minna leikmanna að við séum búin að tryggja okkur sæti í Höllinni. Það þarf samt að vinna leikinn til þess að gera þetta sem eftirminnilegast,“ segir Sverrir en hann er samt á því að þetta sé bara körfuboltaleikur og tekist verði á við hann eins og hvert annað verkefni. „Það er krafa hjá okkur að leikmenn leggi sig alla fram þegar þær klæðast búningnum og hafi um leið gaman af því sem þær eru að gera. Þetta verður hrikalega gaman og ég er orðinn gríðarlega spenntur,“ segir Sverrir um leið og hann þakkar þann stuðning sem Njarðvíkingar sýndu gegn Haukum. „Ég vona bara að allt það fólk og sem flestir í viðbót mæti á laugardaginn og styðji við bakið á okkur.“ „Liðið sem kemur betur undirbúið vinnur“ „Þetta er það sem leikmenn dreymir um að upplifa“ „Ekki södd ennþá“ Petrúnella Skúladóttir leikmaður Njarðvíkinga hefur einu sinni lyft bikarnum í Laugardalshöll. Það var árið 2008 en þá lék hún með Grindvíkingum. Þær sigruðu þá Hauka með 77 stigum gegn 67 og skoraði Petrúnella 15 stig í leiknum. Árin 2005 og 2006 var Petrúnella svo í tapliði Grindvíkinga þannig að hún þekkir báðar hliðar bikarúrslitanna. „Mér líst bara vel á þetta en það skiptir samt ekki máli hvort maður sé að fara í Höllina eða bara venjulegan deildarleik, verkefnið er alltaf það sama,“ segir Petrúnella en hún segist ekki vera búin að velta leiknum fyrir sér enda sé undanúrslitaleikurinn henni enn í fersku minni. „Haukarnir eru sterkir og við vissum að þetta yrði erfiður leik- ur, sem varð svo raunin að lokum,“ segir Petrúnella en leikurinn gegn Haukum fór eins og kunnugt er í framlengingu þar sem Njarðvíkingar höfðu nauman sigur. „Þetta er ekki búið ennþá og maður er ekki orðinn saddur,“ en flestir sem fylgj- ast með körfubolta vita að leik Njarðvíkur og Hauka var frestað vegna kærumáls sem kom upp í leik Njarðvíkinga og Keflvíkinga í 8-liða úrslitum. „Við vorum búnar að bíða lengi eftir þessum leik og nú er biðin bara styttri í úrslitaleikinn fyrir vikið,“ segri Petrúnella. Hvernig líst þér á lið Snæfells? „Við erum búnar að vinna Snæfell í öllum viðureignum okkar í vetur en það breytir hins vegar litlu þegar komið er í úrslita- leikinn sjálfan. Þær eru með flott lið og ég býst við að þetta verði hörku leikur.“ Kominn tími til að setja fána á vegginn Það vill nú þannig til að þrjár stúlkur í Njarðvíkurl ið inu eru uppaldir Grindvíkingar en ásamt Petrúnellu koma þær Ólöf Helga Pálsdóttir og Harpa Hallgrímsdóttir frá Grindavík þó þær hafi leikið með Njarðvíkingum um skeið. „Það er fínt að hafa þær þarna með mér enda erum við búnar að þekkjast lengi. Annars erum við ekkert að velta þessu fyrir okkur og erum bara hluti af flottri liðsheild.“ Petrúnella vildi hvetja sem flesta til að mæta í Laugardalshöllina á laugardaginn en Njarðvíkingar ætla sér bikarinn í fyrsta sinn í kvennaboltanum. „Ég vil endilega sjá fólk mæta á leikinn til að styðja sitt lið og ég vil sjá sem flesta Njarðvíkinga í stúkunni. Það hefur aldrei komið fáni upp á vegg hjá stelpunum í Njarðvík og nú er kominn tími til,“ segir Petrúnella að lokum.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.