Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 32
föstudagur 13. júní 200832 Umræða DV Ný plata „Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér að vikurnar renna saman þannig að ég ætla að segja frá síðustu tveimur vik- um. En það sem bar hæst er nýja platan mín sem kom út í síðustu viku á Íslandi, sem er gríðarlega gaman því það eru fimm ár síðan síðasta plata kom út þrátt fyrir að Haxan hafi komið þarna í millitíðinni. Síð- an voru tónleikar með Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt stúlknakór, Lady and Bird, Keren Ann og Bang Gang en þar komu líka góðir vinir mínir fram sem gesta- söngvarar, þau Magnús Jónsson og Ester Talía. Ég hef verið að bóka Bang Gang-túr um Evrópu þar sem ég hef verið að skoða dagsetningar og gríðarleg fundahöld hafa verið út af túrnum.“ Barði Jóhannsson, tónlistarmaður Horfir á fótbolta „Mér fannst þetta óttalega tíðindalít- il vika bæði hjá mér og í fréttum. Og það fyrsta sem mér dettur í hug, og það er al- veg ótrúlegt að ég skuli segja þetta, en fyrir einhverja tilviljun virðist ég alltaf vera að horfa á fótbolta þessa dagana. Fyrir mér er þetta mjög merkilegt þar sem ég horfi ekki á fótbolta. Samt búin að horfa á tvo leiki í þessari viku og gæti trúað að Holland beri sigur úr býtum. Annars er það Whitesnake sem kom til Íslands. Ég fór ekki á tónleikana en ég fór á þá fyrir 18 árum og langaði ekki að sjá þá núna. Mér skilst að sumum hafi fund- ist þeir skemmtilegir og öðrum leiðinleg- ir. Veðrið er farið að rætast, sumarið er að koma. Mér finnst þurfa átján stiga hita og sól til að það sé sumar.“ Margrét Eir Hjartardóttir, söngkona Spilar á Download-festival „Það sem bar hæst í vikunni hjá mér er bara að gerast núna. Ég var að lenda í Lond- on, er að fara spila á Download-festival og er rosalega spenntur. Það er mikil stemn- ing fyrir tónleikunum. Annars var líka mjög skemmtilegt að spila heima í Laugardals- höllinni á miðvikudaginn þar sem við hit- uðum upp fyrir Whitesnake. Það var rosa- lega gaman og gott að komast heim og spila fyrir íslenska áhorfendur. Það var svolítið skrítin tilfinning að koma heim og spila þar sem maður er búinn að venjast breskum áhorfendum. Núna þarf maður bara að fara að aðlaga sig aftur þeim íslensku. Aðlag- ast er ekki rétta orðið, þetta er bara öðru- vísi menning en ég var mjög ánægður með útkomuna. Vonandi kemur að því einhvern tímann að við höldum okkar eigin tónleika í Laugardalshöllinni og fáum Whitesnake til að hita upp. Nei, grín.“ Ragnar Sólberg, söngvari Sign Enn vonsvikin „Ég er enn að jafna mig eftir leikinn á móti Val og er hálffúl ennþá, við töpuðum honum með tveimur mörkum gegn einu. Tapið olli mér og liðinu miklum vonbrigð- um og er ég ennþá að jafna mig. Þó að við höfum tapað verður maður að halda áfram, snúa bökum saman og standa sig betur næst. Það er mikið eftir af Íslands- mótinu og margir leikir eftir. Síðan var það eiturlyfjasmyglið í Nor- rænu á Seyðisfirði. Það er alveg ótrúlegt hvert allt er að stefna hérna í fíkniefna- heiminum. Það eru alltaf að koma ein- hverjar stórfréttir að það sé verið að taka mikið magn eiturlyfja. Sem betur fer er gæslan orðin það góð að eiturlyfin nást svo þetta streymi ekki inn í landið.“ Olga Færseth, knattspyrnukona hjá KR HVAÐ BAR HÆST í Vikunni? Það er komið sumar! Fallegar, gróskumiklar plöntur Tré, sumarblóm, skrautrunnar, berjarunnar, limgerðisplöntur, rósir, fjölærar plöntur, grænmetisplöntur og kryddjurtir. Mikið úrval af hengiplöntum. Fagleg ráðgjöf um val á plöntum! Annað nauðsynlegt í garðinn Hengikörfur, ker, pottar, mold, áburður, smáverkfæri o.fl. A R G U S 0 6- 03 06
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.