Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 53
DV Sport föstudagur 13. júní 2008 53 Quaresma til stórliðs í evrópu ricardo Quaresma, sem skoraði eitt marka Portúgala í sigri þeirra á tékkum á EM í knattspyrnu, segist vera á leið til stórliðs í Evrópu. Qua- resma lék með Porto á síðustu leiktíð og Chelsea og Liver- pool hafa bæði verið orðuð við kappann en Inter Milan er einnig talið líklegt til að hreppa kantmanninn knáa. „Ég er búinn að semja við stórt lið en ég get ekki sagt meira að svo stöddu,“ er haft eftir Quaresma. Luis felipe scolari, nýr stjóri Chelsea, hefur í það minnsta greiðan aðgang að kappanum og hver veit nema hann sé á leið þangað. adebayor vill til aC milan samkvæmt ítalska sportblaðinu gazetta dello sport hefur Emm- anuel adebayor, framherji arsenal, komið þeim skilaboðum á framfæri til umboðsmanns síns að hann vilji fara til aC Milan. Orðrómur hefur verið um hríð að tógó-maðurinn sé á leið til ítalska stórliðsins en aC Milan leitar nú logandi ljósi að framherjum eftir dapurt gengi í ítölsku deildinni á síðustu leiktíð. arsenal-menn eru ákveðnir í að selja ekki adebayor eftir að Mathieu flamini fór til aC Milan en alexander Hleb hefur einnig verið sterklega orðaður við að vera á förum frá félaginu. adebayor fór illa með varnarmenn aC Milan þegar arsenal lagði aC Milan í meistaradeildinni. LESTU NÚNA SPORTIÐ Á DV.IS! EvrópukEppnin í knattspyrnu í 48 ár Frakkland 1984 siGurveGari: frakkLand Evrópukeppnin árið 1984 var eign einnar helstu goðsagnar knattspyrnusögunnar, Michels Platini. Platini, sem nú er forseti evrópska knattspyrnusambandsins, leiddi frakka til sigurs í keppninni og skoraði níu mörk í fimm leikjum. þýskaland 1988 siGurveGari: HOLLand Hollendingum leiddist ekki að sigra í Evrópukeppninni árið 1988 á heimavelli erkifjendanna, Þýskalands. í keppninni komu fram á sjónarsviðið þrír eftirminni- legir leikmenn, frank riijkart, ruud gullit og Marco Van Basten sem skoraði frægt mark í úrsitaleiknum við sovétmenn, með klippu, nánast frá endalínu. svíþjóð 1992 siGurveGari: danMörk danir komu öllum á óvart þegar þeir unnu í Evrópukeppninni árið 1992. Eftir að hafa komist í keppnina sökum þess að júgóslavar voru dæmdir úr keppni vegna stríðsástands á svæðinu. í úrslitaleiknum mættust davíð og golíat, danmörk og Þýskaland. tvö langskot tryggðu sigurinn og hver íslendingur samgladdist gömlu herraþjóðinni. England 1996 siGurveGari: ÞýskaLand Þjóðverjar endurheimtu titilinn eftir allt of langa bið að þeirra mati. Mótið var haldið í vöggu knattspyrnunnar á Englandi. Ólíklegar hetjur á borð við Oliver Bierhoff fæddust og tékkar komust í úrslit öllum að óvörum. Matthias sammer var valinn maður mótsins en þurfti svo að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. BElgía og Holland 2000 siGurveGari: frakkLand frakkar staðfestu tangarhald sitt á knattspyrnuheiminum um hríð þegar þeir unnu í Evrópukeppninni árið 2000. Heimsmeistararnir unnu ítala í eftirminnilegum leik í úrslitum þar sem frakkinn sylvian Wiltord skoraði á síðustu mínútu og jafnaði leik gegn ítölum áður en david trezeguet skoraði gullmark 13 mínútum eftir að framlengingin hófst. portúgal 2004 siGurveGari: grIkkLand Ásamt dönum eru grikkir óvæntustu sigurvegarar Evrópu- keppninnar. agaðir grikkir með Þjóðverjann Otto rehagel við stjórnvölinn léku sterkan varnarleik og lögðu hvern andstæðinginn á fætur öðrum með seigluna að vopni. grikkir sýndu að allt er hægt í knattspyrnu og sigur þeirra var verðskuldaður jafnvel þó skemmtilegra sé að horfa á málningu þorna en að sjá grikki leika á mótinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.