Franskir dagar - 01.07.2006, Blaðsíða 4

Franskir dagar - 01.07.2006, Blaðsíða 4
Franskir dagar - Les jours fran^ais Franskir dagar2006 | Útgefandi: Auglýsingar: Ljósmynd á forsíðu og auglýsingaplakati: Franskir dagar Jóhanna Kr. Hauksdóttir Jóhanna Kr. Hauksdóttir Hafdís Bára Bjarnadóttir Ritstjórn og ábyrgð: Eiríkur Ólafsson Hönnun, umbrot og prentun: Elísa Jónsdóttir Héraðsprent, www.heradsprent.is Bækur úr Franska spítalanum Safhið Fransmenn á íslandi hefiir vaxið og dafnað frá fyrsta degi. Víða um land er til eitt og annað sem tengt er veru franskra sjómanna við Islands- strendur. Gestir safnsins, bæði íslensk- ir og franskir, hafa verði duglegir að gefa þangað muni, póstkort, myndir og fleira. Að sama skapi hefur gestum fjölgað ár frá ári. Hluti af bókagjöfinni sem Bergsteinn og Þórunn gáfu Fransmönnum á Islandi. Sl. vor gáfu heiðurshjónin Bergsteinn Olason húsasmíðameistari og frú Þórunn Andrésdóttir stóra bókagjöf til safnsins. Nokkru áður en Einar Sigurðsson flutti Franska spítalann á Fáskrúðs- firði yfir Qörðinn árið 1939 og endur- byggði í Hafnarnesi bjargaði hann frá glötun hátt í fimmtíu bókum úr húsinu. Bækurnar voru í hans umsjón í fjölmörg ár, eða þar til hann frétti aö einkadóttir Bergsteins og Þórunnar, Rut, væri komin heim eftir nokkurra mánaða dvöl i Frakk- landi. Einari í Odda fannst kjörið að hún eignaðist þær. Rut lést fyrir tveimur árum síðan. Foreldrar hennar, eiginmaður og þijú börn gáfu bækumar til minningar um Rut Bergsteinsdóttur, enda hafði hún talað um að fara með bækumar á safn- ið á Fáskrúðsfirði. Þær em skráðar eft- ir bókasafnskerfi og em hluti af stærra bókasafni franska spítalans á Fáskrúðs- firði. Að stómm hluta er um að ræða íjöl- breytt innbundin tímarit gefin út í Frakk- landi á síðasta áratug 19. aldar. Flestar bókanna eru keyptar í sömu bókabúðinni í Dunkerque í Bretagne í Frakklandi árið 1906, en Dunkerque var einn af stærri ís- landsútgerðarbæjunum á norðurströnd Frakklands. Sagan segir að bækurnar hafi komið að landi á Homafirði og ekki komið til Fáskrúðsfjarðar fyrr en tveim ámm seinna og þá á hestum. Það er mikill fengur, fyrir safnið, í þess- ari höfðinglegu gjöf og ekki að efa að þessar bækur hafa stytt mörgum franska sjómanninum stundirnar á Franska spítal- anum á Fáskrúðsfirði, fjarri ástvinum í heimalandinu. Þórunn Andrésdóttir og Bergsteinn Ólason á heimili sinu á Dunhaga í Reykjavik. Bergsteinn lœröi hjá Einari í Odda, hann er bróöir Sölva Ólasonar. Rut Bergsteinsdóttir 1957-2004. Bœkurnar eru gefnar til minningar um hana.

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.