Franskir dagar - 01.07.2006, Blaðsíða 24

Franskir dagar - 01.07.2006, Blaðsíða 24
Franskir dagar - Les jours fran^ais Stiklað á stóru í sögu slökkviliðs á Fáskrúðsfirði Ágæti lesandi. Þann 28. júlí veröur ný slökkvistöö aö Grímseyri 7 vígö og þá er ekki úr vegi aö staldra aðeins viö og rifja í fáum orðum upp sögu Slökkviliðs á Fáskrúðsfirði. Slökkviliö Fáskrúösfjaröar á sér rúmlega 50 ára sögu. Þó er enn lengra síöan fariö var að huga aö brunamálum, því aö löngu áöur en slökkvilið var formlega stofnað, voru "brunaverðir" sem fylgdust meö húsum og góöu voru uppistaðan í búnaöi Slökkviliðs Fáskrúösfjaröar við stofnun þess þann 18. mars 1950 og áfram næstu áratugina. Upp úr 1970 var önnur bylting í aðbúnaði Slökkviliðsins þegar þaö eignaðist húsnæöi í nýbyggöu ráöhúsi við Skólaveg 53. Þess haföi aö vísu alltaf veriö gætt að geyma "nýja" bílinn innandyra, og var hann fram aö þessu geymdur í skúr utan viö Silfurberg, ofan viö Félagsheimiliö Skrúö. Þaö er svo ekki fýrr en 1973 að slökkviliðið fær aöra björgunarstarfa. Meö tilkomu þessa bílsvarð enn ein byltingin á búnaöi slökkviliðsins, ný tæki sem enn eru eins og best gerist. Áriö 2002 eignaöist svo Slökkviliðið 14.000 Itr. MAN tankbíl árg. 1983 sem auðveldar mjög störf liðsins hvaö varöar vatnsöflun á brunastað. í október 2003 urðu enn ein þáttaskilin því þá sameinuðust slökkvilið Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar í Slökkvi- lið Austurbyggöar. í nóvember 2004 var svo skipuð nefnd á vegum sveitarstjórnar Gamla dœlan gcrði sitt gagn. Þessi er enn i notkun. Hluti af tœkjakosti slökkviliðsins. eignum. Sagan segir aö ef eldur var laus, hafi menn hringt bjöllu og þeytt lúðra til aö ná saman mannskap til slökkvistarfa. Snemma á 20. öld eignuðust Fáskrúösfiröingar sína fyrstu slökkvidælu sem nú er varðveitt sem safngripur hjá Slökkviliöinu. Áriö 1944 kom hingað slökkvibíll af gerðinni Chevrolet og er sá bíll enn í góðu standi. Bíllinn átti að fara til Afríku vegna stríös sem þar geysaði þá, en sem betur fer komst hann aldrei lengra en til íslands, var breytt í slökkvibil í Hafnarfirði og síðan sendur til Fáskrúösfjaröar. Bíllinn var að sjálfsögöu algjör bylting fyrir þá sem unnu aö brunavörnum á þessum tíma, þótt kröfurnar séu orönar aörar og meiri í dag. Bíllinn var búinn lausri dælu sem dældi 400 l.p.m., þá eru á honum tvö slöngukefli og stigi ásamt handverkfærum, já og ekki má gleyma björgunarseglinu sem enn er á sínum stað. Þessi bíll, ásamt slökkvidælunni slökkvibifreiö, en þá haföi Chervinn þjónað íbúunum í 29 ár. Þá kemur hingaö Bedford árgerö 1962 búinn tveimur dælum, annarri knúinni af aflvél bílsins en hinni lausri. Billinn var notaöur viö að kæla hraun í Vestmannaeyjum áöur en hann kom til okkar. Árin 1991 og 1992 voru söguleg í starfi Slökkviliðsins, en þá var ráðhúsið viö Skólaveg selt og Slökkviliöiö á götunni. En svo vel vildi til á sama tíma aö Skeljungur hætti starfsemi að Skólavegi 32 (Sigga- sjoppu) og flutti starfsemi sína aö Búðavegi 60. Ákveðið var aö á meöan reist yrði ný slökkvistöö, sem tæki svona u.þ.b. 2 ár, skyldi slökkviliðið vistaö í gömlu sjoppunni. En veran í sjoppunni dróst og áriö 1992 var keyptur nýrslökkvibíll til Fáskrúösfjaröar, bíll af MAN gerö, yfirbyggður í Danmörku, búin öflugri dælu frá bíl og annarri lausri ásamt rafstöö og Ijósamastri og öðrum búnaði til Austurbyggðar sem í sitja Steinn Jónasson, Bjarni Gíslason og Eyþór Friöbergsson. Hlutverk nefndarinnarvar undirbúningurenn einnar byltingarinnar í sögu Slökkviliösins, sem er bygging nýrrar slökkvistöðvar aö Grímseyri 7 á Fáskrúösfiröi ásamt kaupum á nýjum slökkvibíl sem staðsettur yröi á Fáskrúösfiröi. Viö sameiningu sveitarfélaga á Mið-Austurlandi verður síðan sú breyting að Slökkvilið Austurbyggöar og Slökkviliö Fjarðabyggðar sameinast undir nafni hins síöarnefnda. En 14 ára draumur um nýja slökkvistöð á Fáskrúösfiröi er nú loksins aö rætast og verður húsiö formlega vígt þann 28. júlí nk. Opið hús verður í slökkvistöðinni frá kl. 17:00 þann dag. Meö bestu kveöju og von um góða skemmtun á Frönskum dögum. Steinn Jónasson, slökkviliðsstjóri 24

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.