Franskir dagar - 01.07.2006, Blaðsíða 26

Franskir dagar - 01.07.2006, Blaðsíða 26
Franskir dagar - Les jours fran^ais Tour d’Islande I Courrier d’Islande, franska Islandsfréttablaðinu, birtist í síðasta hefti grein eftir þrjú ungmennni frá Gravelines, Héléne Deblonde, kennara, Christophe Ryckelynck, 27 ára tölvufrœðing og Erie Duval, 28 ára EPS kennara. Þar lýsa þau hjólatúr sínum til Fáskrúðsjjarðar og til baka suður, upp í Landmannalaugar, GuIIfoss og Geysi. Helsta markmið ferðarinnar er að heimsækja Franska daga og Fransmenn á íslandi. Hér er dagbókarbrot úr greininni: Eric skrifar: 22/07, Kl. 13.07, Höfn- Fáskrúðsijörður, 49 km. í dag förum við með rútu á tunglið, Mars og Neptúnus (ég segi ekki Plútó, af því sagt er að Plútó sé of langt til vinstri auðvitað). A.m.k. er landslagið ójarðneskt. Algjörlega frábært! En taka þau okkur með trompi meö því að leyfa okkur að smakka “beignets”, sem þau kalla kleinur... Eftir matinn förum við að veiða með Borgþóri Harðarsyni, Brynjari syni hans og Björgvini Snæ. Að lokum verðum við samferða þeim síðasta spölinn til Fáskrúðsijarðar; yndislegur frönskunámskeiðið okkar, ó já, viö verðum stjörnur í kastljósi i einn dag. Kl. 15 er komið að því aö setja okkur upp á svið, skrekkurinn í hámarki og spennan óbærileg. Reyndar bíður okkar aðeins ein tafla við hliðina á sviðinu úti í horni umkringd ýmsu öðru sem í boði er, og Islenskir og Jranskir hjólakappar. Frá vinstri: Ólöf Brynja, Guðbjörn, Jóhanna H, Eyþór, Björgvin Snœr, Héléne, Eric og Christophe. Mœtt á Franska daga. Jóhanna E, Margrét, Björgvin Snœr, Eyþór, Ólöf Brynja, Ari, Guðbjörn, Melkorka, Lára og Jóhanna H. burtséð frá landslaginu þá er fólkið hér í aðalhlutverki í dag. Hér finnur maður mannlega hlýju, auðveld tjáskipti; allir eru tilbúnir til að hjálpa og láta sér annt um okkur. Við hittum Jóhönnu Kristínu og 15 manna hóp hennar á Breiðdalsvík í morgun. Þessi hópur er að hjóla frá Reykjavík til Fáskrúðsfjarðar, fimm á hjóli en hinir eru “tæknifólk” með húsbíl, matföng o.s.frv. Þau buðu okkur að borða í húsbílnum. Við spjölluðum um lífshætti, framburð, tungumálið, landafræði og svo stóru spurninguna: hvað gera Islendingar í frítímanum? Hmm, góð spurning. Reyndar fara þeir í sund og meira að segja til að synda; “til að kæla sig”, eins og Rósa segir. Við skiptumst á upplýsingum um hjólaferðir...og svo leyfa þau okkur að smakka eitthvað: (jamm og já, það líkist engu öðru): harðfisk, sem er sterk lykt af, en er þó ekki of saltur né sterkur þegar við smökkum hann...raunar frekar venjulegur fiskur á bragðið. Þau nota meira af smjöri en harðfiski. Svo félagsskapur og landslagið heitfengt, nema hvað, það er dálítið kalt í veðri! 22. júlí kl. 15eru lOgráðurog krakkarnir með húfur og vettlinga! Við komum til FáskrúðsQarðar. Mikil gleði, fallegar medalíur, bolir, opinber myndataka og sturta í íþróttahúsinu...loksins! Eftir sturtuna hittum við hóp ungmenna sem vísa okkur á tjaldstæðið, heimili okkar í nokkra daga! Héléne skrifar: 23/07, Fáskrúðsfirði, “Franskir dagar 2005”: Mæting í safnið í opinberum embættiserindum með fulltrúa jarðarinnar á Islandi (Eric), til að afhenda bók frá Vinabæjasamtökunum á safninu. Hér látum við fara vel um okkur í hádeginu. Á matseðlinum er fiskisúpa (sem Eric finnst gaman, því að nú getur hann náö athyglinni til sín með því að láta færa sér aspas súpu!). Að því loknu löbbum við upp í kirkjugarð í mjög lágskýjuðu veðri til að heiðra minningu sjómannanna. Við Christophe undirbúum m.a. má finna þar pétanque (það eina á Islandi að því er okkur er sagt). Við fáum samt sem áður nokkra frönskunemendur. Þetta er bráðskemmtilegt, við skiptumst á: við segjum eitthvað á frönsku, þau endurtaka (Eða eins og Eric segir: þau reyna að endurtaka) og þau láta okkur segja eitthvað á íslensku (Eric: þau reyna að láta okkur endurtaka, smáblæbrigðamunur!). Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað við veltumst um af hlátri, tungumálin tóku jú á sig spánnýjar myndir. Að þessu loknu er okkur boðið að setja í þvottavél: þvílíkur lúxus! Á meðan skreppum við á ball og kíkjum á hátíðina. í dag gerðum við svo stórinnkaup í matvöruversluninni. Þar var okkur boðið upp á kaffi og súkkulaðitertu við innganginn. Ekki mjög viðskiptavænt: kaupir maöur ekki alltaf minna ef maður er saddur?! Þýð. Bergþór Pálsson 26

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.