Franskir dagar - 01.07.2011, Blaðsíða 25

Franskir dagar - 01.07.2011, Blaðsíða 25
Franskir dagar - Les jours franqais Hvítlauksbrauð 5 dl vatn 5 tsk. þurrger 2 tsk. salt 2 msk. olia u.þ.b. 900 g hveiti 6 pressaðir hvítlaukgeirar Leysið ger upp í vatninu og blandið salti, oliu og hveiti saman við. Hnoðið vel. Pressið hvítlauk- inn út í deigið smátt og smátt á meðan hnoðað er. Leggið rakan klút yfir deigið og látið það hefast í 45 mínútur. Skiptið deiginu í þrjá hluta og mótið úr þeim brauð. Passið að hnoða ekki allt loft úr deiginu. Búið til rauf í mitt brauðið og smyrjið hvítlaukssmjöri I raufina, stráið basiliku yfir smjörið. Brettið svo deigið yfir smjörið þar til það er alveg hulið. Látið hefast í 30 mín. Bakið við 220°C I 20 mínútur. Gott er að úða vatni inn í ofninn, þegar brauðin eru sett inn, til að fá stökka skorpu. Ostasalat 1 dós sýrður rjómi 1 camembert ostur 3 msk. majónes 1 mexicoostur Skerið ostinn í bita og vínberin \ piparostur í tvennt. Blandið öllu saman \ rauð paprika með sýrðum rjóma og majónesi. /2 gul paprika Gott að láta standa I um stund vínber eftir smekk í ísskáp áður en borið er fram. Pestó 60 gfersk basilikulauf 2 msk. furuhnetur 3 hvítlauksrif 125 ml ólívuolía 4 msk. parmesan ostur salt Setjið allt saman í matvinnsluvél og maukið vel. Klúbbtjúttar (40stykki) 2 pakkar400 g smjördeig (fæstí öllum betri búðum landsins) 75 g blaðlaukur, smáttskorinn 250 g skinka, smátt skorin 100 ggráðostur 2 eggjarauður Raðið smjördeigsplötum saman þannig að þær myndi aflangan ferhyrning, látið brúnirnar skarast og bleytið þær svolítið og fletjið út. Gott er að fletja deigið út með bökunarpappír báðum megin. Athugið að gera deigið ekki mjög þunnt. Sáldrið blaðlauk, skinku og rifnum gráðosti jafnt yfir deigið. Rúllið deiginu upp og skerið í u.þ.b. 3 cm þykka búta. Raðið á plötu, þrýstið létt á hvern bita, penslið yfir með eggjarauðu. Bakið Í180°C heitum ofni við blástur 115 mínútur. Berið fram með rifsberja- eða hrútaberjahlaupi (eiginlega alveg nauðsynlegt). rúarstimpillinn Fáskrúð sf) örður /OOf) Um aldamótin 1900 bjó á Fáskrúðsfirði 271 maður samkvæmt bókinni Hagskinnu. Mannfjöldi þessi hefur kallað á aukna þjónustu og þegar árið 1897 var komið á legg póstafgreiðslu á staðnum undir nafninu Búðir, sem notaðist til að byrja með við kórónustimpilinn „Kolfreyjustaðir". Númera- stimpilinn „40" tók við af kórónustimplinum árið 1903, en var notaður I stuttan tíma, aðeins til 1905. Árið 1906 fékk Fáskrúðsfjörður brúarstimpilinn „Fáskrúðsfjörður" afgerð Blb, einsogsjá má I bók Þórs Þorsteins „íslenskir stimplar: rit um brúar- rúllu og vélstimpla 1894-1992" sem gefin var út I Reykjavík 2003. Hér fyrir neðan er mynd af bréfspjaldi með umræddum brúarstimpli sem stimplað var 6. nóvemberl906. Bréfspjaldið var senttil Akureyrar ogleiðarstimplað á Egilsstöðum 21. nóvember og komustimplað á Akureyri 2. desember sama ví’ ár. Það sem vakti sérstaka athygli mínasemnúmera- stimplasafnara var tölustafurinn 40 sem hand- skrifaður er neðst í vinstra hornið. Getur verið að það eigi að tákna núm- erastimpilinn 40 sem verið hafði í notkun þarna árið áður? Gaman væri að heyra I lesendum um þá kenningu og einnig hvort einhver eigi Fáskrúðsfjörð stimplaðan fyrir 6. nóvember 1906. BréfspjáwmS« 'tLa “" v/taðhvenasrársms 7906 stimpi t brynjolfur.sigurjonsson@gmail.com 25

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.