Franskir dagar - 01.07.2012, Blaðsíða 30

Franskir dagar - 01.07.2012, Blaðsíða 30
FrANSKIR DAGAR - LeS JOURS FRAN9AIS Smári Geirsson Um hvalveiðar, hvalstöðina á Fögrueyri &c dagbókarskrif fröken Stapel Sannleikurinn er sá að fátt hefiir verið ritað á íslensku um þýsku hvalstöðina sem reis árið 1903 á Fögrueyri í Fáskrúðsfirði. Hér er ætl- unin að bæta lítillega úr því. I þessari grein verður sagt frá hvalveiðum við Island einkum á síðari híuta nítjándu aldar og byijun þeirrar tuttugustu en áhersla verður lögð á að greina ff á aðdragandanum að byggingu hvalstöðvarinnar á Fögrueyri og starfsemi hennar eftir að hún reis. Eins verður stuttlega fjallað um dagbók ungrar þýskrar stúlku sem dvaldi á hvalstöðinni sumarið 1905. Sá sem þetta ritar hefúr unnið að útgáfú hvalveiðisögu Islands síðastliðin tvö ár og dvaldi veturinn 2010-2011 í Noregi vegna heimildasöfúunar. A meðan á Noregsdvölinni stóð hafði undirritaður starfsaðstöðu í hval- veiðisafninu í Sandefjord og þangað kom þá þýski sagnff æðingurinn Klaus Barthelmess en hann er sá sem ítarlegast hefur rannsakað sögu hvalstöðvarinnar á Fögrueyri. Barthelmess lét af hendi allar þær upplýsingar sem hann hafði komist yfir um Fáskrúðsfjarðarstöðina en fór þess á leit að honum yrði veitt aðstoð við ritun greinar um dagbók sem nýlega hafði komið í leitirnar. Greinina ætlaði hann að rita í sam- starfi við Wolf-Rudiger Grohmann en þurfti nauðsynlega upplýsingar ffá staðkunnugum því ýmislegt sem fjallað var um í dagbókinni reyndist þeim erfitt að skilja. Dagbókin var skrifúð afBertha Stapel ogveitirgóða innsýn í hvernig samfélagið á Fáskrúðsfirði kom er- lendri stúlku fyrir sjónir. Fröken Stapel var fædd árið 1875 og hafði ekki haff neina reynslu af hvalveiðum og hvalavinnslu þegar hún kom til Fögrueyrar. HVALVEIÐAR VIÐ ÍSLAND Á FYRRI ÖLDUM í hafinu umhverfis Island hefur löngum verið gnótt hvala. Frá því greina meðal annars fornar heimildir. Víða í þessum heimildum er getið um hvalreka en þeir voru álitnir vera á meðal mikil- vægustu hlunninda. Eins geta heimildir um hval- veiðar íslendinga nánast frá fyrstu tíð. I Land- námu er til dæmis getið um mikla hvalagengd • 30 við landið og sagt að þar hafi hver mátt skutla sem vildi. í elstu lögbók Islendinga, Grágás, má einnig finna athygfisverð ákvæði um hvalveiðar. Hvalveiðar með fornum hætti voru stundaðar af Islendingum allt til loka 19. aldar og voru það einkum Vestfirðingar sem fengust við þá iðju. Þessar veiðar voru alltaf takmarkaðar og búnaðurinn sem notaður var við þær fábrotinn en engu að síður skiptu þær töluverðu máli fyrir íbúana sem bjuggu á hvalveiðisvæðunum. I byrjun 17. aldar hófu Baskar hvalveiðar frá Islandi en Baskarnir búa í strandhéruðunum við Biskajaflóa sem löngum hafa verið hluti af Spáni og Frakklandi. Það var í reynd þessi merka menningarþjóð sem ruddi brautina og gerði hval- veiðar að sjálfstæðum atvinnuvegi. Baskarnir hófú markvissar og skipulegar veiðar á íslands-sléttbak þegar á 11. öld. I fyrstu var um strandveiðar á heimaslóðum að ræða að haust- og vetrarlagi en síðar hófú þeir veiðar á fjarlægum slóðum eins og við Irland, Nýfúndnaland og loks við ísland og í Norður-Ishafinu. Baskarnir veiddu hvali við ísland nánast alla 17. öldina og í kjölfar þeirra komu hvalveiðimenn frá öðrum þjóðum sem öttu kappi við risaskepnur hafsins á miðunum umhverfis ísland. I fyrstu reistu Baskarnir bræðslustöðvar á landi þar sem lýsi var unnið úr hvalspikinu en þegar tímar liðu þróuðu þeir aðferðir til að bræða lýsið um borð í hvalveiðiskipunum. TILRAUNAVEIÐAR VIÐ ÍSLAND Á ÁRUNUM 1863-1872 Arið 1863 hófst nýtt skeið íslenskrar hvalveiði- sögu. Þá kom til Reyðarfjarðar bandarískur hval- veiðileiðangur undir forystu Thomas Roys. A vegum Roys fóru fram tilraunaveiðar á hinum hraðsyndu reyðarhvölum en áður höfðu hval- veiðimenn helgað sig veiðum á sléttbökum og búrhvölum. Roys hafði um nokkurt skeið unnið að þróun byssu sem ætlað var að skjóta skutli. Byssan var borin af skyttu sem stóð í stafni róðrarbáts en til þessa höfðu hvalir ávallt verið veiddir af róðrarbátum sem gerðir voru út frá hvalveiðiskipi eða frá landi eins og Baskarnir gerðu í upphafi. I oddi skutulsins var sprengja sem springa skyldi þegar skutulinn hafði gengið á kaf í hvalinn og var henni ætlað að deyða hann. Fyrirtæki Bandaríkjamannanna lagði stund á til- raunaveiðarnarvið ísland til ársins 1867 oggengu þær brösullega. Eitt merkasta framlag Roys og félaga til hvalveiðisögunnar var bygging fyrstu vélvæddu hvalstöðvar sögunnar á Vestdalseyri í Seyðisfirði. I kjölfar Bandaríkjamannanna komu Danir og síðar Hollendingar og héldu þeir áfram þeim tilraunum sem Roys hafði hafið. Bæði Dan- irnir og Hollendingarnir höfðu miðstöð hval- veiðiumsvifanna á Austfjörðum; Danirnir fyrst á Djúpavogi og síðar á Vestdalseyri og Hollend- ingarnir á Vestdalseyri. Þessar veiðar Dana og HoOendinga voru skammvinnar og lauk þeim endanlega árið 1872. Áðurnefndar tilraunaveiðar skiluðu heldur litlu en það var hins vegar Norðmaðurinn Svend Foyn sem þróaði þær veiðiaðferðir sem í grundvaUar- atriðum eru enn notaðar við hvalveiðar. Foyn vann að þróun veiðibúnaðar síns um líkt leyti og tilraunaveiðarnar fóru fram á íslandi og má segja að búnaðurinn hafi verið fúllmótaður á árinu 1868 og hann dugði til að fanga reyðarhvalina. Foyn hóf að nota gufuknúna báta við veiðarnar og hóf hann að skjóta skutlum í veiðidýrin úr byssu sem komið var fyrir í stafni bátanna. I oddi hvers skutuls var sprengja líkt og Roys hafði fyrstur gert tilraunir með. Þá lagði Foyn áherslu á að vinnslan á hvalnum færi fram í vélvæddri hvalstöð þar sem hráefnið yrði nýtt sem best. Þegar Foyn hafði þróað veiðibúnað sinn fékk hann einkaleyfi til hvalveiða með honum frá Finnmörku í Noregi um tíu ára skeið. Einkaleyfið var veitt árið 1872. Á einkaleyfistímanum gat Foyn heimilað öðrum að hefja hvalveiðar með búnaði sínum og brátt urðu hvalveiðarnar í Finn- mörku umfangsmikiU atvinnuvegur. NÚTÍMA VEIÐIAÐFERÐIR KOMATIL

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.