Franskir dagar - 01.07.2014, Blaðsíða 4

Franskir dagar - 01.07.2014, Blaðsíða 4
ntmiRDMR °° LciouRsrRnncnis Texti: Albert Eiríksson Myndir: Albert og úr einkasafni nnrm n nnrnnncsi Dásamlegurpönnukökuilmur tók á móti mér er ég heimsótti Onnu Björk Stef- ánsdóttur sem á Fáskrúðsfirði er ýmist kennd við Hafranes eða sjoppuna sem hún, eiginmaður hennar og mágur ráku til földa ára. Eins og við var að búast tókAnna afar Ijúflega íað segja lesendum fráfjölbreyttu lífshlaupi sínu. Hún hefur vakið athygli síðustu ár á Fasbókinni fyrir jákvæðar og uppbyggilegarflerslur sínar, Ijóð og fyrir fjölmargar myndir sem hún tók á árunum á Fáskrúðsfirði. Anna er fædd í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði í mars 1939, hún ólst upp hjá ömmu sinni og afa, Jóni Kristvinssyni og Onnu Guðnýju Jónsdóttur. Foreldrar hennar bjuggu aldrei saman. Móðir Önnu, sem giftist þegar Anna var tveggja ára, bjó í Fljótunum og seinna á Nautabúi í Hjaltadal, amma hennar og afi fluttu þangað þegar hún var níu ára. Þá höfðu móðir hennar og stjúpi eign- ast tvær dætur. Faðir Önnu flutti til Selfoss og giftist þar og eignaðist þrjú börn. Hann gerðist mjólkurbílstjóri í sveitunum þar í kring. Aðspurð um skólagönguna segir hún að kennt hafi verið á tveimur stöðum í sveitinni. Anna var á Hólum veturinn fyrir fullnaðarprófið, þá nýorðin þrettán ára. Af mikilli hógværð segist hún hafa verið góður námsmaður. „Eg átti að fermast ein frá Hólakirkju en vildi frekar fermast í Viðvíkurkirkju enda gekk ég með börnunum til spurninga þar. Undirbúningurinn fór þannig fram að við gengum einn sunnu- dag í mánuði til prestsins aflan veturinn. Ég fór snemma morguns af stað og var komin vel fýrir messu sem hófst klukkan tvö. Fermingardaginn bar upp á hvítasunnudag, við fórum ríðandi til kirkjunnar. Þegar heim var komið síðdegis skipti ég um fot og fór í hversdagsfötin til að taka saman taðið því von var á rigningu. Daginn eftir var fermingarkaffi og einhverjir gestir komu. I fermingargjöf fékk ég 350 krónur í peningum i I og eitthvað af bókum, efni í sparikjól, undirkjól og nælonsokka sem þótti mjög fínt þá.” Anna var farin að ganga að allri vinnu eins og full- orðin áður en hún fermd- ist. Helsta breytingin við ferminguna var að þá mátti hún fara á böll. Þau voru ýmist á Sleitu- stöðum, í Óslands- hlíð eða á Hólum en á Bændaskólanum þar var mesta fjölmennið. Svo var hestamannamót aðalhátíð sumarsins. Fimmtán ára réð Anna sig sem ráðskona til kennslu- konu í sveitinni, þar voru 10-12 krakkar. Sú kona kenndi einnig á Hólum og á meðan hún var þar við kennslu passaði Anna krakkana og sá um heim- ilið. I kjölfarið var hún í kaupavinnu á nokkrum stöðum í Skagafirði. Sextán ára vann Anna eitt ár sem gangastúlka á Sjúkrahúsinu á Sauðár- króki og hafði herbergi á spítalanum. Hugurinn stóð til frekara náms og hún lagði allt kaupið fyrir og fór í Héraðsskólann í Reykholti og námið borgaði hún allt sjálf. „Anna mín! Þér hefði verið nær að sækja um f Kvennaskólanum á Blönduósi” voru viðbrögðin sem hún fékk þegar hún sagði frá að hún hefði fengið inni í Reykholti. Anna sagði engum frá umsókninni, ekki fýrr en hún fékk jákvætt svar frá skólanum. „Mér líkaði vel í Reykholti, við vorum um eitt- hundrað nemendur og enn þann dag í dag hitt- umst við skólasystkinin reglulega.”Um vorið vann hún í eldhúsinu í Reykholti, hjá prestinum og víðar og með því las hún annan bekk utan skóla og tók próf upp í þriðja bekk um haustið. Vorið þar Anna Björk Stefánsdóttir á eftir tók Anna bæði lands- og gagnfræðapróf. Eftir að skóla lauk í Reykholti stóð hugur Önnu til enn frekara náms. Til að fjármagna nám í Kennaraskólanum í Reykjavík réð hún sig sum- arið 1958 á síld á Siglufjörð og um haustið á vertíð til Vestmannaeyja. Þar var hún í vist á daginn, vann í frystihúsinu frá kl. 3 og langt fram á kvöld eða fram yfir miðnætti og aflar helgar. Anna var í Eyjum fram á vor. Þar lágu leiðir Önnu og Sigga saman. Sigurður Kristinsson fæddist árið 1916 í Holtum á Mýrum í Hornafirði og var tíu ára þegar fjöl- 4

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.