Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 16

Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 16
Freirvskir’ ckg&r ® [esjovirs [pd.a90.is Texti: Smári Geirsson Myndir: Ljósmyndasafn Islands í Þjóðminjasafni ogfleiri 0c)cWgdJ\cli Og slop pats skólð. k Búáu r\\ii\ nv í þessari grein verðuríjallað stuttlega um þróun fræðslumála í Fáskrúðsfjarðarhreppi ífá upp- hafi heimafræðslu til þess tíma að fastur skóli festi rætur á Búðum. Gögn um upphaf fasts skólahalds í þorpinu á Búðum fundust nýverið á Þjóðskjalasafni og er greinin að miklu leyti byggð á þeim. Heimafræðslan réð ríkjum í upphafi Laust fyrir miðja 18. öld gáfu stjórnvöld á Is- landi út tilskipun sem fól í sér að prestar skyldu hafa eftirlit með kristindómsfræðslu barna og lestrarkunnáttu. Fátt er vitað um stöðu fræðslu- mála í Fáskrúðsfjarðarhreppi á þessum tíma en með áðurnefndri tilskipun var foreldrum falið að kenna börnunum að lesa og fræða þau um trúar- leg efni. Slíkt fyrirkomulag fræðslu er yfirleitt nefnt heimafræðsla. Til að fylgjast með heima- fræðslunni var prestum ætlað að kanna hvernig foreldrarnir sinntu uppfræðsluskyldu sinni og skráðu þeir þá í prestþjónusmbækur upplýsingar um þekkingu barnanna á sviði kristindóms og hæfni þeirra til að lesa. Að því kom að eðlilegt þótti einnig að börnum yrði kennt að draga til stafs og dálítið í reikningi en hinir fullorðnu voru mjög misjafnlega í stakk búnir til að veita leiðsögn um slíkt. Tæplega hundrað árum eftir að tilskipunin var gefin út ritaði séra Olafur Indriðason, prestur á Kolfreyjustað, sóknarlýsingu þar sem hann meðal annars lýsir stöðu lestrar-, skriftar- og reiknings- kunnáttu Fáskrúðsfirðinga. Sóknarlýsingin er fest á blað árið 1841 og þar segir meðal annars: „Bóklæsir eru að vísu alliryfir 10 ára gamlir aðfrá- teknum tveimur vitskertum. Flestir bændur kunna hér nokkuð að skrifa ogfáeinir vel; líka vinnumenn margir en fátt affullorðnu kvenfólki. Fleiripartur unglinga lærir ntí dálítið að skrifa. Orfáir kunna hérað reikna eftir reglum en sumirdável íhuga sér. “ I sóknarlýsingunni veltir séra Ólafur fyrir sér hvers vegna námsáhugi í Fáskrúðsfjarðarhreppi sé takmarkaður. Kemst hann að þeirri megin- niðurstöðu að skortur á áhugaverðu lesefni sé helsta skýringin. Telur klerkur að ef til staðar væri áhugavert lesefni fyrir unglinga og fullorðna myndi námsáhugi aukast til mikilla muna. Tæplega ijörutíu árum eftir að séra Ólafur sendi 16 frá sér áðurnefnda sóknarlýsingu, eða árið 1880, voru gefin út lög um uppfræðslu barna í skrift og reikningi en áður höfðu engin lagaákvæði gilt um slíka fræðslu. Áfram var ætlast til að foreldrar bæru ábyrgð á kennslunni og prestar fylgdust með því hvort hún væri innt af hendi. Farkennslan kemur til Allt til ársins 1892 virðast Fáskrúðsfirðingar hafa búið við hefðbundna heimafræðslu þó ekki sé úti- lokað að heimiliskennarar hafi verið ráðnir til að sinna kennslu barna á efnameiri heimilum. Arið 1893 brá hins vegar svo við að Bjarni Sigurðsson sótti um styrk til landssjóðs vegna starfa sinna sem sveitarkennari eða farkennari í Fáskrúðs- fjarðarhreppi veturinn 1892-1893. Bjarna var síðan veittur umbeðinn styrkur að upphæð 20 kr. Fremur takmarkaðar upplýsingar hafa fund- ist um kennslu Bjarna umræddan vetur en þó kemur fram í bréfi stiftsyfirvalda til landshöfð- ingja að hann hafi alls kennt 25 börnum. Ekki kemur hins vegar fram hvar var kennt né hve kennslutíminn var langur. Fyrirliggjandi er vott- orð prestsins á Kolfreyjustað þar sem farið er lof- samlegum orðum um árangur af kennslu Bjarna þennan vetur. Samkvæmt þessu er Bjarni Sigurðsson fyrsti maðurinn sem starfaði við almenna barnafræðslu í Fáskrúðsijarðarhreppi og má óhikað halda því fram að kennslustörf hans veturinn 1892-1893 hafi brotið blað í fræðslusögu byggðarlagsins. Bjarni var menntaður búfræðingur frá Búnaðar- skólanum á Eiðum og hafði fengist við kennslu í Lóni og á Djúpavogi áður en hann hóf slík störf í Fáskrúðsfjarðarhreppi. Eftir þetta voru farkennarar starfandi í Fáskrúðs- fjarðarhreppi flesta vetur til aldamótanna 1900 en þó kom fyrir að ekki væri boðið upp á slíka kennslu og var þá að öllu leyti treyst á heima- fræðsluna. Góðar heimildir eru til um fyrir- komulag kennslunnar veturinn 1894-1895 en áðurnefndur Bjarni gegndi þá á ný starfi far- kennara. Kennslan fór fram á tveimur stöðum. Á tmv <ievW**.tvtiÍA aj\ifl/ív. ÓIúJ Totv^ttw f* Tórto^ottt*... f &.*u»iótL*. 4l + rhlLI.^ f júf ióttiv 4' i . f' f1 f 4l r f 4' 4' 4 4• 4' 4 4* 4' 4 r f* f 4' f f f f f 4' f f 4' 4 J' f* f 4' 4* 4* 4' f f f f f 4* 6 6 4 f 6 f f f 4* * f 4* J' -v Z$._ 3í>. CLfrít A3.Q.4 . oVIttA^ M+it- íitvUvttvtv f f f f* 4* * 4 Ji'W—.- f.Fi f, re 4.t f~ f„ Jf, tu -- fur f.i. í.------ju+~ f*t. 4. tt. iLxux. t+u 4.,r 4.o 4.ur 4.24- 3.n. afo. df*rí/ /f(L/ - % ______ _ - - í"0»» : ----------). _ V Skýrsla um einkunnir nemenda semþreyttupróf íbarnaskólanum iBúðaþorpi vorið 1901. Skýrslan erskrifuð afVilhelm Knudsen kennara en hann þótti listaskrifari.

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.