Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 30

Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 30
Texti: Albert Eiríksson, Vilborg Eiríksdóttir og Þórhildur Helga Þorleifsdóttir Myndir: Ymsir í~pðj\skip ckgap ® [esjoxips [rðjx^eus I Tunguholtsskóla er lesið og leikið létt er hér nemendum öllum íhug ogfólkið á staðnum er hrifið og hreykið pví hér var nú unnið afframsýn og dug. Til heilla pað verðurpað hamingjan veit að hafa sinn skóla ípessari sveit. Þetta ljóð Jónasar Jónassonar á Kolmúla var flutt á Litlu jólum í Tunguholtsskóla 1968 við lag Steingríms Sigfússonar. Þeir sömdu ljóð og lag að beiðni Valdísar kennara. A árunum 1966 til 1978 var rekinn heimavistar- skóh í Tunguholti. Til að fá sem gleggsta mynd af skólastarfmu hittum við nemendur, kennara og fleiri og stofnuðum fasbókarsíðu þar sem nem- endur voru hvattir til að deila minningum sínum. Á þessum tíma þóttu heimavistarskólar góður kostur fyrir fólk sem bjó í dreifbýli. Fyrsti heima- vistarskólinn sem nefndur er í Barnafræðslu- skýrslunum er heimavistarskólinn í Gnúpverja- hreppi í Árnessýslu sem stofnaður var árið 1923. Heimavistarskólar voru mjög fáir þar til um 1930 en eftir það virðist hafa farið af stað flóðbylgja í uppbyggingu heimavistarskóla. Áður en kennslan hófst í Tunguholti var far- kennsla í sveitinni, það kennsluform var á undan- haldi í landinu og erfitt fyrir heimilin að taka að sér verkefnið, því vantaði sárlega lausn á skóla- málunum. Vilhjálmur Pálsson og Steinunn Ulf- arsdóttir stofnuðu nýbýlið Tunguholt og byggðu íbúðarhúsið. Eftir að sonur þeirra lést í slysi brugðu þau búi og fluttu til Selfoss. Húsið var þá falt, Fáskrúðsfjarðarhreppur keypti það og breytti í kennsluhúsnæði. Alls stunduðu Aftan á þessari mynd stendur: Valdis og Leifur sem er að segja brandara. um fimmtíu börn nám í Tunguholti, sum einn vetur en önnur lengur. Seint að hausti 1966 varTunguholtshúsið komið í það ástand að hægt væri að hefja kennslu en erfltt reyndist að finna kennara. Siggi á Vattar- nesi, formaður skólanefndar og Þorgeir oddviti á Brimnesi fóru á stúfana að finna kennara. Einar Baldursson á Sléttu var beðinn að taka að sér kennslu í nýja skólanum þennan veturinn, var nokkrum fortölum og þrýstingi beitt í því skyni að ráða hann sem kennara. Fyrstu árin keyrðu foreldrarnir börnin í skólann á sunnudagskvöldum. Þegar Guðmundur Þor- steinsson tók við Tunguholti tók hann að sér skólaaksturinn h'ka og næstu árin var sá hátt- urinn á að kennararnir sóttu börnin síðdegis á sunnudögum og keyrðu þau svo heim síðdegis á föstudegi. Seinna voru ráðnir aðrir sem sáu um aksturinn, meðal annars Rögnvaldur Olafsson, Jón Ulfarsson ogTryggvi Sigmundsson. I upphafi heimavistarskólans í Tunguholti var kennslustofa, herbergi kennara, eldhús, borðstofa og stúlkna- og drengjaherbergi á efri hæðinni. Fljótlega var kjaUarinn gerður upp og þá fluttust nemendur niður í herbergin þar en á efri hæðinni var útbúin lítil íbúð fyrir kennara og ráðsfólk. Málum var síðan þannig komið fyrir að nemendum var skipt í yngri og eldri deild. 7 til 9 ára börn voru í yngri deildinni en 10 til 12 ára í þeirri eldri. Um tíma gistu unghngarnir úr sveitinni í Tunguholti en var keyrt daglega út í Búðaskóla. Nemendur voru í Tunguholti á virkum dögum en fóru heim um helgar. Fyrirkomu- lagið var þannig að yngri deildin var í tvær vikur í skólanum en sfðan í þijár vikur heima á meðan eldri deildin var í skólanum og eldri deildin þá heima þann tíma sem yngri deildin var íTunguholti. I gögnum frá Hér- aðsskjalasafni Austurlands kemur fram að kennsluvikur skólaársins hjá yngri deild voru tíu en fjórtán hjá þeim eldri. I lotunum heima fengu nemendur með sér langan hsta yfir heimanám sem þurfti að sinna. Þó oft hafi verið gaman þá var heimþráin sár og grátið í koddann á Arið 1966 keypti Fáskrúðsjjarðarhreppur nýbýlið Tunguholt. sem þá var lagt niður sem sjálfstatt býli og tekið undir skólasetur hreþþsins. Fyrstu árin var efri hœðin eingöngu notuð fyrir skólahaldið en um 1969 vargerð úttekt á húsnaðinu ogþað síðan endurbætt. í skýrslu um matsgjörð frá Húsameistara ríkisins frá aprtl 1969 kemurfram að húsið hafi verið byggt 1960, múrhúðað og málað. Flatarmálþess sé 104,3 fermetrar og valmaþak sé áþví en bæði vantiþakrennur og niðurfoll. Igluggum sé að mestu einfalt gler og ísetningu þess ábótavant. Úti- og innihurðir sæmilegar og gluggar ófúnir. Miðstöðvarlögnin illa lögð og hitna ofhar misjafhlega segir iskýrslunni ogþar kemur einnigfram að rotþrósé engin en skolplögn séfrá húsinu út í opinn skurð. Neysluvatnslögn er talin í lagi. Útveggir einangraðir með kork og múrhúðaðir en kjallari þó að mestu óeinangraður. Múrhúðin er víða sprungin og málningu á veggjum trúlega aldrei verið lokið, slitinn dúkur á gólfum. Eldhúsið er 7,3 fermetrar með ófullnægjandi innréttingu, 1,5 metra löngum neðri skáp, stálvaski og lélegum veggdúk. A efri hæð er einnig borðstofa 10fermetrar, skólastofa 14,2fermetrar, tvö 8 fermetra herbergi og eitt lOfermetra. A stiga og útitröppum vantar handrið. I kjölfar þessarar matsgjörðar var ráðist t endurbætur á húsnæðinu og til dæmis var kjallarinn endurskipulagður og í stað verkfæra- og fóðurgeymslu útbúin sex heimavistarherbergi fyrir nemendur istað tveggja herbergja á efri hæðinni. Skólaferðalag nemenda úr Tunguholtsskóla. 1 Einar Sigmundsson, 2 Vilborg Bjömsdóttir, 3 Jóhanna Bjömsdóttir, 4 Þorsteinn Bjömsson, 5 Óskar Þorólfsson, 6 Albert Eiriksson, 7 Guðný Elisdóttir, 8 Steinvör Þorleifsdóttir, 9 Dagbjört Oddsdóttir, 10 Sigmundur Sigmundsson, 11. Hjörtur Sveinsson, 12 Oddur Oddsson, 13 Guðmundur Eiriksson, 14 Kristmundur Þorleifsson, 15 Steinn Eiriksson, 16 Karen Þórólfsdóttir og 17 Þórhildur Helga Þorleifsdóttir. 30

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.