Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 38

Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 38
fr’djxskir ckg&r ® [esjovips fröjxtjeus Texti: María Ósk Óskarsdóttir og Guðrún íris Valsdóttir Myndir: Albert Eirtksson ogjóhanna Kr. Hauksdóttir I 20&p- <^> AOie komið að einstaka viðburðum á Frönskum dögum á einn eða annan hátt í gegnum tíðina. Sumir hafa meira að segja séð um sömu viðburðina ár eftir ár. Þátttaka sem þessi er auðvitað algerlega ómetanleg og gerir það að verkum að hátíðin heldur áfram að vera það aðdráttarafl sem hún svo sannarlega er. Stuðningur bæjarbúa, sveitarfélagsins og fyrir- tækja er lífæð hátíðarinnar. Stuðningurinn skilar sér svo til baka í góðu umtali út á við, vexti og velgengni fyrirtækja, fjölgun ferðamanna og al- mennri ánægju bæjarbúa og annarra velunnara. Dagskrá Franskra daga hefur verið í nokkuð föstum skorðum undanfarin ár þó alltaf séu ein- hverjar breytingar á milii ára. Sumir viðburðir hafa haldið sér frá upphafi svo sem listsýningar, hátíðardagskrá á sviði, götuhstafólk, Pétanque, dansleikur, brekkusöngur, varðeldur og fleira, en aðrir hafa komið og farið. Nokkrir alger- lega ómissandi viðburðir hafa bæst við á síðustu árum svo sem Kenderíisgangan sem haldin er á fimmtudagskvöldum. Þar gefst fólki tækifæri á að ganga um bæinn, nýskreyttan og fínan, sýna sig og sjá aðra. Oft á tíðum verða þar fagnaðar- fundir þar sem æskufélagar hittast og eiga saman góðar stundir. Setning hátíðarinnar á Búðagrund er einn af hornsteinum hátíðarinnar og hefur verið svo frá upphafi. Setningin er með nokkuð hefðbundnu sniði, bæjarstjóri eða fuUtrúi hans býður fólk vel- Franskir dagar hafa verið haldnir á Fáskrúðs- firði þriðju helgina í júlí síðastliðin 20 ár. Upphaf hátíðarinnar má rekja til þess að á haust- mánuðum 1995 hittist hópur fólks, sem flest átti sæti í nefndum á vegum Búðahrepps, og velti fyrir sér þeirri spurningu hvað heimafólk á Búðum gæti gert til að laða að fleiri ferðamenn til Fá- skrúðsfjarðar. Eftir að málin höfðu verið rædd á alla kanta var samþykkt að blása til bæjarhátíðar með frönsku ívafi sem haldin yrði í júlí, sem næst Bastilludeginum, þjóðhátíðardegi Frakk- lands. Töluvert var um hátíðir og íþróttamót á Austurlandi þá ekki síður en nú, og var síðasta helgin í júlí, helgin fyrir verslunarmannahelgi, eina helgin sem var „laus“ og því var hún valin. Hátíðin fékk nafnið „Franskir dagar". Hátíð sem þessi þarfnast mikils undirbúnings sem stendur yfir allt árið um kring. Huga þarf að því í tíma að sækja um styrki, bóka skemmti- krafta, selja auglýsingar í blað Franskra daga ásamt öllu öðru því sem fylgir slíkri hátíð. Því starfi sinnir framkvæmdastjóri Franskra daga ásamt öflugum meðhmum Undirbúningshóps um Franska daga. Fáskrúðsfirðingar hafa verið afar heppnir með starfsfólk og nefndarfólk í gegnum tíðina og það hefur sýnt sig að enginn gefur kost á sér í svona starf án þess að hafa brennandi áhuga á því. Fyrstu árin sá Undir- búningshópurinn um framkvæmdina en með stækkandi hátíð var ekki hjá því komist að ráða launaðan framkvæmdastjóra. Það fyrirkomulag gekk í nokkur ár en þar sem ekki tókst að afla nægra styrkja til að standa undir launakostnaði var horfið til fyrra fyrirkomulags í nokkur ár á meðan fjárhagsstaðan var rétt af. Síðustu þrjú ár hafa Franskir dagar haft launaðan framkvæmda- stjóra og hefur það gefist mjög vel. Meira að segja hefur tekist, með samstilltu átaki, að safna smá varasjóði til að standa undir glæsilegri 20 ára afmælishátíð í ár. Mörgum Fáskrúðsfirð- ingum finnst hátíðin vera hápunktur sumarsins, þar sem brottfluttir Fáskrúðs- firðingar, nærsveitungar og ferðafólk leggur leið sína í þetta 700 manna bæjar- félag austur á fjörðum og skemmtir sér með heima- fólki. Flestir bæjarbúar hafa 38

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.