Neytendablaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 6
Þessi gæðakönnun ICRT (International
Research and Testing) er hluti af reglu-
legum gæðaprófunum á farsímum og
er unnin í samstarfi við önnur neyt-
endasamtök í Evrópu. Hún er í gangi
allt árið með útgefnu gæðamati 3 til 5
sinnum á ári. Neytendasamtök í hverju
landi kaupa vinsæla síma í verslun eða
á netinu, hvert á sínu svæði, og senda
inn í rannsóknina. Að þessu sinni voru
19 símar prófaðir í júní en niðurstaðan
birtist núna í september. Prófanirnar
eru framkvæmdar af óháðri þýskri
rannsóknarstofu og tiltekin atriði/virkni
metin og gefin einkunn eftir fyrirfram
ákveðnu ferli. Frá því í janúar sl. hefur
91 farsími verið settur í gæðapróf.
Hér í blaðinu eru aðalflokkarnir sýndir
í töflu en á vef Neytendasamtakanna er
hægt að nálgast ítarlegri töflu úr þessari
gæðakönnun ásamt allnokkrum undir-
flokkum og markaðskönnun sem gerð
var hérlendis fyrr í haust.
• Í töflunni eru helstu niðurstöður
varðandi 91 farsíma sem ICRT hefur
kannað í ár. Af þessum 91 síma eru
33 fáanlegir hér á landi.
• Það er sjaldgæft að rekast á verulega
lélegan farsíma. Aðeins 24 af 91
fengu innan við 3,50 í meðaleinkunn.
Einkunnir farsímanna sem seldir eru
hér á landi voru frá 3,00 til 3,93 og
aðeins 6 símar fengu einkunn undir
3,50, sem verður að teljast nokkuð
gott þar sem einkunnir allra símanna
91 voru frá 2,81 til 3,93.
• Af 20 efstu símunum voru 11 frá
Nokia, 2 frá Motorola og 7 frá Sony
Ericsson. Sá ódýrasti var Nokia 2626
en hann kostaði 7.995 krónur.
• Fjórir vel viðunandi Nokia-símar
sem eru í gæðakönnun ICRT og fást
hérlendis kosta innan við 10.000
krónur, þ.e. ef leitað er að síma sem
getur lítið annað en að hringja, tekið
á móti símtali og sent SMS.
Markaðskönnun
Neytendasamtökin unnu að
markaðskönnun á GSM-símum seinni
hluta ágústmánaðar og kom í ljós að hjá
13 söluaðilum á höfuðborgarsvæðinu er
hægt að fá 126 mismunandi tegundir
af farsímum. Ódýrasti síminn er Nokia
1112 og kostar hann 3.989 krónur en
sá dýrasti, HTC X 7500, kostar 109.995
krónur. Ekki er tekin afstaða til gæða
heldur er eingöngu bent á hæsta og
lægsta verð í markaðskönnuninni.
Markaðskönnunin er birt í heild sinni á
vefsvæði félagsmanna NS á www.ns.is.
Vert er að benda á fyrri gæðakönnun á
GSM-símum á síðasta ári hér í Neytenda-
blaðinu en sú umfjöllun er einnig
aðgengileg á vefsvæði félagsmanna NS.
Gæði farsíma aukast
NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2007