Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 6

Neytendablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 6
0-11 11-11 Actavis Apótekarinn Apótekið Atlantsolía Bananar Bensínorkan Borgun Bónus Brimborg Búr Byko elisabet.is Frumherji Hagkaup Heilsuhúsið Húsasmiðjan Iceland Express Icelandair IKEA Ísfugl Íslandspóstur Kaskó Kjarval Krónan Landsbankinn Lyf og heilsa Lyfja Matfugl MS N1 Nettó Nova Nóatún Orkuveita Reykjavíkur Penninn Rúmfatalagerinn Samkaup-Strax Samkaup-Úrval Samskip Securitas Síminn Sláturfélag Suðurlands Slippfélagið í Reykjavík SPARISJÓÐIRNIR Tal Tryggingamiðstöðin Valitor Vátryggingafélag Íslands Vífilfell Vínbúð Vodafone Vörður tryggingar hf. Mörgum þykir sparperur ljótar og birtan frá þeim ekki eins þægileg og frá glóperum. Almennt henta sparperur vel við dagleg störf og frá fagurfræðilegu sjónarmiði einnig. Vissulega eru til lampar og ljós sem ekki henta fyrir sparperur en með tímanum munu þeir hverfa af markaði. Halógenperur fyrir hefðbundin perustæði sem framleiða birtu af sömu gæðum og glóperur gera eru einnig fáanlegar. • Stærð og form: Sparperur eru fáanlegar í ýmsum stærðum og formum, sambærilegt við glóperurnar. Perur með ytra byrði sem felur flúorpípurnar eru algengar og líta fljótt á litið út eins og mattar glóperur. • Litaendurgjöf (colour rendering): Það hefur verið gagnrýnt að sparperur skili ekki réttum lit á hlutum. Til að tryggja ásættanlega endurgjöf lita eru gerðar lágmarkskröfur í reglugerðinni. Þó ber að geta þess að í nýlegri gæðakönnun ICRT kom fram að sparperur vantar töluvert uppá að ná glóperum þar. RA­stuðullinn segir að dagsljós sé 100 og þá er glóperan 99. Sparperur liggja enn neðar eða á milli 80­85. Rauður varalitur getur virkað brúnn eða gráleitur. Þetta getur valdið vandamáli þegar sest er við matarborðið með ljúffengri rauðri steik og grænu salati. Hver vill borða brúngráa steik og gulleit salat í bjarma sparperunnar? • Kalt ljós/heitt ljós: Á meðan glóperur gefa aðeins frá sér hlýja hvíta birtu er hægt að framleiða sparperur með mismunandi birtuhlýleika (heitt/kalt) eftir þörfum hvers og eins. Þessar upplýsingar eiga að finnast á umbúðum sparpera. • Design-ljós: Poul Henningsen, sem hannaði hið þekkta PH­ ljós, gerði ráð fyrir 100W glóperu í ljósið. Það voru ekki háar raddir um orkusparnað árið 1920 þegar PH­ljósið var hannað. PH­ljósið er þekkt fyrir hlýlega birtu og þægileg áhrif ljóss og skugga. Á vefsvæðinu www.louisepoulsen.com eru upplýsingar um hvaða sparperur henta fyrir eldri klassík eins og PH­ljósin. Ekki er úr vegi að nefna að Poul Henningsen var fyrsti ritstjóri TÆNK, danska neytendablaðsins. ÞH Fagurfræðileg sjónarmið  NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2009

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.