Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 5

Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 5
Leigjendaaðstoðin Óánægja með bólstrun Eldri hjón leituðu til leiðbeininga­ og kvörtunarþjónustunnar eftir að þau höfðu látið bólstra gamlan leðurstól. Hjónin völdu nýtt leður áklæði hjá bólstraranum, sem skipti einnig um svamp í stóln­ um. Bólstrunin ásamt efni kostaði 120.000 kr. Þegar hjónin fengu stólinn til baka voru þau ekki ánægð með árangurinn. Stóllinn var talsvert öðruvísi en áður í útliti og var illa bólstraður að mati hjónanna. Meðal annars voru saumar skakkir, hauspúði of lágur og áklæðið illa strekkt. Nýi svampurinn var of harður og lögun púða því talsvert öðruvísi en áður. Hjónin kvörtuðu við bólstrarann sem sagði að stóllinn myndi mýkjast upp með tímanum, ef ekki gæti hann ef til vill sett eitthvað mýkra inn í hann. Hjónin voru ekki ánægð með þessa niðurstöðu. Leituðu þau því til tveggja hlut lausra fagaðila og var það mat þeirra beggja að bólstrun stólsins væri ekki í lagi. Neytendasamtökin höfðu í kjölfarið samband við bólstrarann og eftir nokkur símtöl samþykkti hann að greiða öðrum bólstrara fyrir að laga stólinn. Hjónin voru þó ekki sátt við þá niðurstöðu þar sem þau töldu að stóllinn yrði aldrei góður þrátt fyrir viðgerð og kom þar einnig til að þau voru óánægð með nýja áklæðið, sem þau höfðu þó valið sjálf. Þau óskuðu einnig eftir að fá gömlu púðana til baka þar sem þeim fannst lögunin á þeim nýju óásættanleg. Þau vildu helst láta bólstra stólinn upp á nýtt hjá öðrum fagaðila. Að lok um sættust allir aðilar á endurgreiðslu að hluta ásamt því að hjón in fengu gömlu púðana til baka. Neytendasamtökin hafa nú tekið að sér rekstur leigjendaaðstoðar með samningi við velferðarráðuneytið. Mikil eftirspurn hefur verið eftir slíkri aðstoð og er mikið leitað til samtakanna vegna leigumála. Hér má sjá dæmi um fyrirspurnir frá leigjendum. Munnlegur leigusamningur Leigjandi hafði leigt íbúð í rúm tvö ár en aldrei hafði verið gerður skriflegur leigusamningur. Húsaleigan var hagstæð og þegar leigu­ sali vildi hækka leiguna vildi leigjandinn ekki una því. Leigusalinn fann þá nýja leigjendur sem voru tilbúnir að borga meira og til kynnti leigjandanum að hann þyrfti að rýma íbúðina. Þegar ekki er gerður skriflegur leigusamningur teljast aðilar hafa gert með sér ótímabundinn samning og gilda öll ákvæði húsa leigu­ laga um slíka samninga. Um fjárhæð leigunnar gildir þá sú regla að hún telst sú fjárhæð sem leigusali getur sýnt fram á að leigj­ andi hafi samþykkt. Leigjandinn í þessu tilviki hafði greitt sömu fjárhæð athugasemdalaust allan leigutímann og því taldist fjárhæð leigunnar vera sú upphæð. Þar sem um munnlegan, og þar með ótímabundinn, leigusamning var að ræða var hann einnig með 6 mánaða uppsagnarfresti þannig að leigusalinn gat ekki gert leigj­ and anum að rýma íbúðina með minni fyrirvara heldur varð að segja samningnum upp með réttum hætti. Tímabundinn samningur Leigjandi sem hafði gert tímabundinn leigusamning óskaði upp lýsinga um hvernig hann gæti losnað undan samningnum, en ýmsar ástæður voru fyrir því að húsnæðið hentaði ekki lengur. Sam kvæmt húsaleigulögum eru tímabundnir leigusamningar óupp segjanlegir, þ.e. leigjandi og leigusali eru báðir bundnir við samn inginn út leigutímann. Hins vegar er heimilt að semja um að leigutíma ljúki fyrr en leigusamningur gerir ráð fyrir ef báðir aðilar eru sammála um það. Nauðsynlegt er að slíkt samkomulag sé skriflegt og vottað til að það hafi gildi gagnvart báðum aðilum og til að hægt sé að sýna fram á efni samkomulagsins. Það er því mikilvægt, ef leigjandi sem gert hefur tímabundinn leigusamning vill losna undan honum, að hafa samband við leigusalann og reyna að komast að samkomulagi um lok leigutímans. Sjá ýtarlegar upplýsingar um húsaleigumál á www.ns.is undir leigjendur 5 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.