Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 16

Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 16
Frárennsli frá gallabuxnaverksmiðju í Maseru, höfuðborg Lesótó litar ánna Caledon bláa. Mengun af þessu tagi viðgengst víða þar sem umhverfislög­ gjöf er ábótavant. Robin H am m ond/Panos Pictures Gallabuxur skilja eftir sig spor Bómullarræktun Aðalhráefnið í gallabuxum er bómull en hún er ræktuð í yfir 100 löndun og þekja bómullarakrar um 2,5% af ræktunarlandi heims ins. Bómullarframleiðsla verður seint talin umhverfisvæn því til að framleiða eitt kíló af bómullargarni þarf 7.000 lítra af vatni. Þá krefst bómullarræktun gríðarlegs magns eitur­ og varnarefna enda fara um 10% allra slíkra efna sem notuð eru í heiminum í bómullarræktun. Ræktun á lífrænni bómull hefur færst í aukana en hún nam þó aðeins 1,1% af heimsframleiðslunni árið 2010. Fair trade bómull stendur fyrir sanngjörn viðskipti og tryggir bændum m.a. lágmarksverð á bómull. Framboðið af lífrænni og fair trade bómull er mjög lítið en eftirspurnin fer þó ört vaxandi og munar sérstaklega um að margir stórir framleiðendur, svo sem H&M, Nike, Adidas, C&A, Levi’s og Walmart, hafa aukið hlut lífrænnar bómullar í framleiðslu sinni. Litun og vefnaður Úr bómullarþráðunum er spunnið bómullargarn og úr garninu er ofið textílefni. Áður en bómullin er spunnin þarf að hreinsa hana vel og í það ferli er notað mikið af vatni og hreinsiefnum. Þá er ýmsum brögðum beitt til að styrkja og mýkja efnið og þar koma allskyns efni við sögu, svo sem vax, parafín, olíur og ætiefni. Þegar búið er að spinna garnið er það litað og ofið í denim­efni eða gallabuxnaefni. Litarefnin, auk annarra efna sem notuð er við meðhöndlun á efninu, geta verið skaðleg sé ýtrasta öryggis ekki gætt og starfsfólki úthlutað öryggisbúnaði. Litunin fer oftast fram í Kína, löndum Suður­Ameríku eða Afríku þar sem litlar kröfur eru gerðar um hreinsun á menguðu vatni sem verksmiðjur skila frá sér. Jafnvel þótt reglur séu til staðar getur spilling leitt til þess að mengað vatn er losað út í umhverfið þar sem það skaðar náttúru og dýralíf. Slíkt er tilfellið í Tehuacan í Mexíkó þar sem fjölmargar gallabuxnaverksmiðjur eru staðsettar. Blátt mengað vatn rennur út úr verksmiðjunum og mengar ræktunarsvæði bænda í nágrenninu. Sandblásið og steinþvegið Gallabuxnatískan er síbreytileg og meðal þess sem neytendur eru tilbúnir að borga fyrir dýrum dómum eru nýjar buxur sem þó líta út eins og notaðar. Til að ná þessu slitna útliti eru buxurnar sandblásnar en í því felst að sandi er sprautað af miklum krafti á buxurnar. Í sandinum eru kísilagnir sem geta valdið alvarlegum lungnaskaða við innöndun. Þótt framleiðslan fari að mestu fram utan Evrópu eru enn margar gallabuxnaverksmiðjur í Tyrklandi og þar hafa margir verkamenn orðið veikir eftir að hafa unnið við sandblástur. Eftir að 40 verkamenn létust af lungnasjúkdómi sem kallast kísillunga eða silicosis bönnuðu tyrknesk stjórnvöld sandblástur í gallabuxnaverksmiðjum þar í landi. Í mörgum öðrum löndum er þessi aðferð enn notuð. Dorte Sörenssen, sem starfar hjá Clean Clothes Campaign (CCC) í Danmörku, segir í viðtali við danska blaðið Tænk að ekkert standi í vegi fyrir því að sandblása á forsvaranlegan hátt en það sé hins vegar dýrt. Þá viti verkamennirnir oft ekki hversu hættuleg þessi vinna sé. CCC hefur barist fyrir því að framleiðendur hætti sandblæstri og í fyrra voru Levi’s og H&M fyrst til að hætta alfarið að selja sandblásnar gallabuxur og sífellt fleiri framleiðendur bætast í hópinn. Flutningur Áður en gallabuxur enda í fataskáp neytenda hafa þær staðið í miklu og ströngu ferðalagi. Bómullin er ræktuð í einu landi en þráð urinn spunninn í öðru. Efnið er síðan ofið í enn öðru landi og flutt þaðan í saumaverksmiðjur í fjórða landinu. Að lokum eru buxurnar fluttar á markað á Vesturlöndum. Framleiðsla á einu pari af gallabuxum tekur svo sannarlega sinn toll af umhverfinu. Það er því ábyrgt að nýta gallabuxur, rétt eins og annan fatnað, eins vel og hægt er. 16 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.