Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 21

Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 21
Niðurstöður könnunarinnar Á heimasíðu Neytendasamtakanna má sjá töflu með 85 mynda­ vélum, en hér í blaðinu eru einungis birtar niðurstöður fyrir vélar sem eru með hærra en 3 í heildareinkunn. Félagsmenn geta prentað töfluna út og farið með hana í verslun til að skoða hlutlaust gæða­ mat á staðnum. Taflan er á læstum síðum fyrir félagsmenn á heima síðunni www.ns.is. Ódýrar en ágætar myndavélar Þrjár vélar frá Panasonic (Lumix DMC­S3, DMC­S1 og DMC­FP1) hafa sæmileg myndgæði og eru fjölhæfar, auðveldar í notkun og á góðu verði. DMC­S3 og DMC­S1 eru báðar ódýrastar hjá Max, en kosta aðeins einni krónu meira hjá Sjónvarpsmiðstöðinni. DMC­S3 kostar aðeins meira, en tekur betri kvikmyndir en DMC­S1. Vél sem fær góða einkunn og er á hagstæðu verði Nikon Coolpix L120 fékk háa einkunn. Hún er jafnframt í ódýrari kantinum og kostar 54.000 kr. í Beco. Vatnsheldar vélar sem fá lélegar einkunnir Það gæti verið ástæða til að forðast Fujifilm FinePix XP10 og XP30. Báðar eru vatnsheldar myndavélar og kosta tæplega 40.000 kr., en koma frekar illa út úr könnuninni. Veldu hvaða hæfileika þú vilt Almennt sýnir taflan mjög skýrt að dýrari myndavélar hafa marga eiginleika. Þær eru aðeins auðveldari í notkun og taka betri ljós­ myndir og kvikmyndir. Spurningin er samt hvort bestu mynda­ vélarnar hafi fleiri eiginleika en þú hefur þörf fyrir? Margir geta líklega sætt sig við myndavél sem gerir mikilvægustu hluti bara ágætlega ef hún er ódýr og sæmilega nothæf. Stundum er keypt myndavél fyrir ungt barn eða aukamyndavél til að geyma í vinnu eða í bíl og í þeim tilfellum getur einföld vél dugað vel. Ef þú hefur hinsvegar sérþarfir − og margir hafa þær í sambandi við vinnu, fjölskyldu eða áhugamál − þá borgar sig að greina þær og leggja smá vinnu í að finna myndavél sem þjónar þér sem best. Verð í útlöndum Ef leið þín liggur til útlanda á næstunni borgar sig að kaupa mynda vél þar ef hún er í ódýrari kantinum. Dýrari vélar rúmast mögu lega ekki innan tollfríðinda ferðamanna við komu til landsins (farþegar mega taka vörur að verðmæti allt að 65.000 kr. með sér, en enginn einn hlutur má kosta meira en 32.500 kr.) Að kaupa Nikon Coolpix L120 í Bandaríkjunum rétt sleppur því hún kostar 29.250 kr. í ristastóru J&R tækjabúðinni í New York en hún kostar 54.000 kr. á Íslandi. Panasonic Lumix DMC­S3, sem kostar 19.989 kr. á Íslandi, kostar um það bil 11.700 kr. frá Amazon.com eða 15.900 kr. frá Amazon.co.uk. Nikon Coolpix L120 fær mjög góða einkunn en er ekki eins dýr og sumar svipaðar myndavélar. Panasonic Lumix DMC­S3 fær einkunnina 3 sem er hæsta einkunn meðal mynd avéla undir 20.000 kr. Fujifilm FinePix XP10 og XP30 eru frekar dýrar vatnsheldar mynda­ vélar sem fengu áberandi lélegar einkunnir eða 2 í heildareinkunn. 21 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.