Ægir - 01.03.2003, Blaðsíða 31
31
B Á TA S M Í Ð I
aðföng
Smábátasjómenn
Hjá okkur fáið þið flestar rekstrarvörur fyrir smábáta-
útgerð. Allar nánari upplýsingar í þjónustuveri ESSO
síma 560 3400.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
6
7
0
8
Haukur segir að nýi báturinn
hafi komið á markaðinn síðastlið-
ið haust en í allri hönnun hans
var við það miðað að báturinn
væri hagkvæmur í rekstri og
notkun. „Við teljum að við höf-
um náð okkar markmiðum í nýja
bátnum og hann skilar því sem
smábátasjómennirnir krefjast.
Báturinn hefur náð 28-29 mílum
í ganghraða í prufusiglingum en
svokallaður vinnuganghraði, þ.e.
miðað við mönnun, lestun af olíu
og veiðarfæri um borð, er um 20-
23 mílur. Lestarrými í bátnum er
20 rúmmetrar og þar komast ell-
efu 660 lítra kör og eitt 380 lítra
kar. Prófanir leiða í ljós að bátur-
inn gengur 14-15 mílur full-
lestaður og það eru okkar kaup-
endur mjög ánægðir með,” segir
Haukur. Fyrst og síðast segir
hann að hönnunin sé lykilatriði í
vel heppnuðum fiskibátum.
„Skrokklagið sjálft skiptir
mjög miklu máli fyrir hraðfiski-
báta og við leggjum mjög mikið
upp úr því að bátarnir nái að
plana vel á keyrslu til að gera alla
olíueyðslu sem hagkvæmasta,”
segir Haukur en sem fyrr hefur
öll hönnun farið fram hjá starfs-
mönnum Samtaks.
Sem stendur er mikil eftirspurn
eftir bátum hjá Samtaki en frá ár-
inu 1985 hefur fyrirtækið smíðað
um 150 Viking-báta fyrir íslensk-
an markað. „Margir af okkar föstu
viðskiptavinum vilja núna nota
tækifærið og skipta úr minni bát-
unum yfir í þennan nýja 1135 bát
og ná þannig fram hagkvæmni í
sinni útgerð. Miðað við eftir-
spurnina þessa dagana sé ég ekki
annað en það sé bjart framund-
an,” segir Haukur.
Nýr Viking bátur frá Samtaki slær í gegn:
„Önnum engan veginn eftirspurn”
– segir Haukur Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri
„Það er greinilega ríkjandi bjartsýni meðal smábátakarla. Ástæð-
urnar eru margþættar, bæði bjartsýni á auknar veiðiheimildir og
einnig hitt að nú geta þeir stækkað við sig bátana og skipt upp í
allt að 15 tonna báta innan sama veiðikerfis. Þessum hópi getum
við mætt með nýjum 14,9 tonna Viking sem svo sannarlega hefur
slegið í gegn,” segir Haukur Sveinbjörnsson hjá Bátagerðinni
Samtaki í Hafnarfirði.