Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.2004, Blaðsíða 24

Ægir - 01.05.2004, Blaðsíða 24
24 Víðir segir að ferðin hafi verið afar lærdómsrík og mikið af gagnlegum upplýsingum hafi fengist sem nýtist hérlendum kræklingaframleiðendum mjög vel. Víðir segir að kræklingarækt- in á Prince Edward eyju eigi sér um fimmtán ára sögu, áður hafi hún ekki verið til staðar. Í kjölfar hruns fiskveiða í Lawrence-flóan- um hafi stjórnvöld hins vegar stutt við bakið á fyrirtækjum á Prince Edward til að byggja upp kræklingaræktina og nú sé hún í raun orðin stóriðja á svæðinu, árs- framleiðslan er um 20 þúsund tonn. Ekki ólíkar aðstæður í Kanada Víðir segir fróðlegt að sjá hvernig Kanadamennirnir bregðist við þykkum ís á svæðinu. Línunum sé sökkt djúpt yfir vetrarmánuð- ina og líkur á áföllum séu þannig mun minni. Af þessu segir Víðir að hérlendir kræklingaræktendur geti ýmislegt lært, án efa sé unnt að minnka líkurnar á skemmdum á línunum með því að sökkva þeim niðurfyrir ölduna. „Það er fjölmargt sem við getum lært af Kanadamönnunum og við mun- um miðla þessari þekkingu til framleiðenda hér heima,“ segir Víðir. Hann bætir við að hérlend- ir kræklingaframleiðendur hafi glímt við það vandamál að losa spunaþráðinn sem skelin festir sig við kaðlana. „Þetta hefur valdið okkur nokkrum erfiðleikum og við töldum að þetta væri sérís- lenskt vandamál. Fyrir vikið hef- ur spænskur vélbúnaður ekki hentað okkur sem skyldi. Það kom hins vegar á daginn að Kanadamenn glíma við ekki ósvipað vandamál og til þess að leysa það hafa þeir yfir að ráða sérhönnuðum vélbúnaði. Við get- um vafalaust nýtt okkur slíkan búnað hér og alla þá þekkingu sem Kanadamennirnir hafa verið að afla sér á undanförnum árum.“ Víðir segir að tvímælalaust veiti það íslenskum kræklinga- ræktendum byr í seglin að við þær aðstæður sem Kanadamenn búa á Prince Edward sé atvinnu- greinin að ganga mjög vel og vert sé að hafa í huga að þar glími menn við mun fleiri og stærri vandamál en hér á landi. „Á Prince Edward er verið að rækta Fulltrúar frá Norðurskel kynntu sér kræklingaræktun á Prince Edward: Getum margt lært af Kanadamönnum - segir Víðir Björnsson hjá Norðurskel „Tilgangur með ferðinni vestur var fyrst og fremst að kynnast hvernig Kanadamennirnir stæðu að kræklingaræktinni yfir vetrarmánuðina. Við höfum kynnt okkur kræklingarækt víða í Evrópu, en okkur vantaði að sjá ræktun sem væri eitthvað nálægt þeim aðstæðum sem við þekkj- um hér heima. Það sem við sáum í Kanada sannaði fyrir mér að við ætt- um að hætta að væla, Kanadamennirnir búa við mun erfiðari aðstæður en við. Við vorum þarna í kringum 20. apríl og þá var mikið vetrarríki og ís yfir öllu,“ segir Víðir Björnsson, kræklingaræktandi hjá Norður- skel í Hrísey, en hann gerði sér ferð vestur á Prince Edward eyju, sem er skammt norðan við Nova Scotia í Kanada.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.