Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 28

Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 28
28 „Sjávarútvegur í Namibíu er atvinnugrein í vexti, sem hefur þó jafnframt leitt af sér þróun sem um margt er svipuð því sem gerst hefur hér á landi. Í öllum löndum og á öllum tímum hefur fólk flutt búferl- um í leit að betra lífi. Fyrir nokkrum áratugum þyrptist fólk úr sveitum á Íslandi í byggðarlögin við ströndina, enda var afkoma fólks þar með ágætum. Í dag er nákvæmlega þetta að gerast í Namibíu. Tekjur fólks, sem hefur vinnu í hafnarborgunum, eru bærilegri og því er fólk sem býr inn til landsins að flytjast út að ströndinni, þar sem það eygir bjartari fram- tíð,” segir Vilmundur Víðir Sig- urðsson, sem í desember sl. snéri aftur heim til Íslands eftir störf í hálft sjöunda ár á vegum Þróunarsamvinnustofn- unar Íslands við uppbyggingu sjómannamenntunar þar. Þróunarsamvinna með fátækum þjóðum er hluti af þeim skyldum sem Íslending- ar þurfa að sinna, til að geta talist þjóð meðal þjóða. Verk- efni Þróunarsamvinnustofn- unar Íslands hafa verið á Grænhöfðaeyjum, í Malaví, Mósambik og Úganda auk- inheldur sem gerðir hafa verið samningar um þróun- arsamvinnu við stjórnvöld í Sri Lanka og Nikaragúa. Í sautján ár hafa Íslendingar sinnt þróunaraðstoð í Nami- bíu eða allt frá því landið fékk sjálfstæði frá Suður- Afr- íku árið 1990. Á þeim árum sem liðin eru síðan þessi þró- unaraðstoð hófst hefur verið lögð áhersla á sjávarútveg í samræmi við óskir stjórnvalda í landinu. Starfið hefur meðal annars falist í því að koma á laggirnar sjómannaskóla sem Namibíumenn hafa nú tekið yfir og starfrækja á eigin vegum. Úr sjávarútvegi í félagsleg verkefni Að sögn Gunnars Salvarsson- ar, almannatengslafulltrúa Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, má í dag líta svo á, að helstu og mikilvægustu þróunarverkefni Íslendinga í sjávarútvegi í Namibíu séu komin í höfn. Því verða við- fangsefnin í næstu framtíð einkum á sviði mennta- og S J Á V A R Ú T V E G U R Í N A M I B Í U Þróunarverkefni Íslendinga við sjávarútveg í Namibíu að ljúka: Tvöfölduðu aflann með íslenskum aðferðum Hér er Vilmundur Víðir Sigurðsson annar frá vinstri. Ægi er ekki kunnugt um nafnið á manninum sem er vinstra megin við hann á myndinni. Hægra megin við hann eru Abraham Iyambo, sjávarútvegsráðherra Namibíu, Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar og Sig- hvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. aegirJAN2007.indd 28 2/2/07 9:12:42 AM

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.