Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 1

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 1
Des. 1937. iflTMÁL OG MENNING Til félagsmanna! Þær iigætu viðtökur, sem Mál og menning hefir hlotið, lmfu þegar sýnt, að það er öruggur grundvöllur fyrir starfsemi fé- lagsins. Sá grundvöllur er leslrarhneigð islenzku þjóðarinnar. Alnienningur vill lesa, eigi hann kost bóka með því verði, sem hann hefir ráð á að gefa fyrir þær. Það var einmitt í trausti þessa, að við stofnuðum Mál og menning. Þjóðin hefir nú svar- að viðleitni okkar. Svarið var rausnarlegt, og það lét ekki á sér standa. Hinn hraði vöxtur félagsins. Er við sendum út boðsbréfið um miðjan júli i siimar, þá. þótti okkur svara fremstu vonum, ef við næðuni takmarkinu: að fá 1000 félagsmenn fyrir 1. október. En fólk streymdi inn í félag- ið miklu örar en við bjugginnst við. Um miðjan september gát- um við tilkynnt, að takmarkinu þetta ár væri náð. Og 25. nóv., þegar þetta er skrifað, eru komnir yfir 1600 félagsmenn. Bækurnar í ár. Við verðum að biðja afsökuuar á því, að svo skyldi þurfa til að takast með fyrstu bók félagsins, Vatnajökul, að hún skyldi ekki geta komið út á þcim tíma, sem ráðgert var. En við gát- um ekki séð fyrir né ráðið við þær tafir, sem urðu, sérstaklega á prentun myndanna, sem fór fram erlendis. Hinsvegar vonum við að félagsmenn fyrirgefi þessi mistök, er þeir sjá bækur þessa árs og kynnast þeim. Þær eru áreiðanlega' góð kaup fyrir 10 krónur, og það hefir verið vandað til þeirra að öllu leyti, og ættu þær því að gefa góð heit um sfarfsemi bókmenntafélagsins framvegis. Bækur næsta árs. Við höfum fyrir all-löngu siðan hafið undlrbúning útgáfunnar næsta ár. Fyrst verður skáldsagan „Móðirin“ eftir Maxirn Gorki, fyrra bindi. Þýðingin er fullgerð, og liefir Halldór Stefánsson rilhöfundur annazt liana. Sagan kemur út í febrúar. Onnur bók félagsins er æUazt til að verði rit um heimsmynd vísinda nútímans, samið af Birni Franzsyni. Hér á eftir fer stutt lýsing á báðum þessum bókum. Þá liöfum við gert ráð fyrir, að þriðja bók félagsins næsta ár verði skáldsaga eftir nýjasta Nobelsverðlauna-rithöfundinn, Rog- 1

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.