Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Blaðsíða 15

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Blaðsíða 15
Þórarinn Eldjám Fáein orð um Wolf Biermann Wolf Biermann fæddist í Hamborg 1936. Faðir hans var hafnarverka- maður þar í borg og var myrtur af nasistum fyrir tvöfalt afbrot: Hann var bæði gyðingur og kommúnisti. Biermann flutti til Austurþýskalands 1953 og kom þar víða við, nam fræði og starfaði sem aðstoðarmaður í leikhúsi Brechts. Þar kom að hann hóf yrkingar sjálfur og fór að troða upp með gítar í kjölm fyrir ýmis konar smáhópa í báðum hlutum Þýskalands. Söngvar hans vöktu strax eftirtekt, en þó hann beitti mjög geiri sínum að kapítalismanum kom fljótlega í ljós að hér var ekki á ferðinni neinn lofsöngvari hins opinbera í Austur- þýskalandi, heldur kaus hann að fara með gems um þá afskræmingu sósíalisma sem valdhafar þar eystra halda að fólki í skjóli skrifræðis. Biermann hefur ævinlega gagnrýnt valdhafana „frá vinstri“, þ. e. hann hefur alla tíð verið talsmaður sósíalisma og lengst af virðist hann hafa haldið í þá von að austurþýska kerfið sé sósíalismi. Gallaður sósíalismi sem hægt sé að bæta. Skal hér enginn dómur lagður á þá skoðun. En þrátt fyrir þetta var háð hans stærri biti en valdhafarnir treystu sér til að kyngja og frá 1962 var honum bannað að koma opinberlega fram í Austur- þýskalandi. Frá þeim tíma kaus Biermann að starfa undir yfirborðinu, einbeita sér að því að lifa af og „bíða betri tíma“. Ekkert var fjær honum en að langa vestur yfir múrinn, enda vissi hann vel að stjórnvöldum eystra hefði verið mjög lítil eftirsjá að honum. Hann leit á Austurberlín sem þann stað þar sem hann ætti sín verk að vinna. Hann orti af kappi og fékk bækur sínar út- gefnar í Vesturþýskalandi á forlagi Wagenbachs. Fyrsta bókin, Gaddavírs- harpan (Die Drahtharfe), kom út 1965 og varð ásamt öðru til þess að sett voru lög í Austurþýskalandi sem kváðu á um það að austurþýskum höfundum skyldi óheimilt að gefa úr bækur í Vesturþýskalandi án leyfis austurþýskra yfirvalda. En allt kom fyrir ekki, bækur Biermanns héldu áfram að koma út og auk þess hljómplötur. Skáldfrægð hans jókst og bækur hans og plötur náðu æ meiri útbreiðslu á Vesturlöndum. 237
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.