Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Blaðsíða 14

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Blaðsíða 14
Franz Kafka JSX Skýrsla handa akademíu Háttvirtu herrar í Akademíunni! Þið sýnið mér þann heiður að biðja mig að afhenda Akademíunni skýrslu um apalíf mitt hérna áður fyrr. Því miður get ég ekki orðið við þessum tilmælum á þann hátt sem óskað er. Næstum því fimm ár skilja mig frá apatilverunni. Það er kannski stuttur tími á mælikvarða almanaksins en óendanlega langur að þeysa í gegnum hann eins og ég hef gert, stundum í fylgd ágætra manna, ráðlegginga, fagnaðarláta og hljómsveita, en í rauninni samt aleinn því að ávallt hélt fylgdarliðið sig fjarri sviðsbrúninni til að geta fylgst vel með sýningunni. Eg hefði aldrei fengið þessu áorkað ef ég hefði af þrákelkni haldið fast í uppruna minn, í minningarnar um æsku mína. Afsal sérgæsku var einmitt æðsta boðorðið sem ég setti mér; sem frjáls api gekkst ég undir þetta ok. Þetta varð til þess að endurminningarnar tóku að sínu leyti að dyljast mér í stöðugt auknum mæli. Hefði ég í fyrstu, ef menn hefðu viljað það, átt frjálsa leið til baka um hið víða hlið sem himinhvolfið myndar yfir jörðinni, þá lækkaði og þrengdist þetta hlið jafnt og þétt eftir því sem þróun mín var pískuð áfram; mér leið orðið betur í mannheimi og ég hæfði honum sífellt betur; storminn, sem blés á eftir mér úr fortíð minni, lægði; núna er hann aðeins andvari sem kælir á mér hælana; og gatið í fjarska, þaðan sem hann kemur og þaðan sem ég kom einu sinni, er orðið svo þröngt að ég yrði að flá af mér feldinn til að komast í gegnum það ef mér entust þá kraftar og vilji til að fara þangað aftur. I hreinskilni sagt — ég nota gjarnan líkingar til að tjá þessa hluti — í hreinskilni sagt: apatilvera ykkar sjálfra, herrar mínir, svo framarlega sem þið eigið eitthvað slíkt að baki, getur ekki verið ykkur fjarlægari en mitt apalíf er mér. En alla sem ganga á jörðu hér kitlar í hælinn: litla simpansann jafnt sem hinn stóra Akkilles. 244
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.