Fréttablaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 70
30. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50 Gengið síðustu sex tímabil | 2009 7. sæti | 2010 8. sæti | 2011 4. sæti | 2012 5. sæti | 2013 3. sæti | 2014 1. sæti ● Íslandsmeistari 1 (2014) ● Bikarmeistari Aldrei (úrslit 2012, 2013) PEPSI DEILDIN 2015 Hefst 3. maí 1. SÆTI ? 2. SÆTI ? 3. Stjarnan 4. Breiðablik 5. Fylkir 6. Valur Spá Fréttablaðsins 7. Víkingur 8. Keflavík 9. Fjölnir 10. ÍA 11. ÍBV 12. Leiknir EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★ ★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★ ★★ LIÐSSTYRKURINN ★★★★★ HEFÐIN ★ ★ ★ ★★ STJARNAN HAFNAR Í 3. SÆTI ➜ Binni bjartsýni ➜ Nýju andlitin Garðbæingar verja ekki Íslands- meistaratitilinn en verða með í toppbaráttunni og komast aftur í Evrópukeppnina. Stjörnumenn voru skynsamir á leikmanna- markaðnum og þegar allir eru heilir er byrjunarliðið sterkt, með sérstaklega hættulega framlínu. Það er meira spurningamerki yfir varnarleiknum auk þess sem Stjörnumenn stóla á marga unga menn í sínu liði. Halldór Orri Björnsson missti af meistara- tímabilinu í fyrra eftir að hafa verið lykil- maður í Stjörnunni fimm ár í röð. Hann snýr nú til baka eftir eins árs dvöl í atvinnu- mennskunni í Svíþjóð og freistar þess að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Halldór Orri skoraði 47 mörk í 106 leikjum í efstu deild, langoftast sem kantmaður, sem er magnaður árangur. Stjörnumenn þurfa á því að halda að hann verði í sínu besta formi í sumar og haldi áfram að skora og leggja upp mörk fyrir samherja sína. Bikarinn áfram í Garðabæ Við fylltum í skörðin, erum með bestu stuðningsmennina, besta þjálfarann og leikmenn sem geta unnið leiki upp á sitt einsdæmi. Hér spila menn með hjartanu. Brynjar Gauti Guðjóns. ÍBV Gunnar Nielsen Skotland Halldór Orri Björnsson Sví. Jeppe Hansen Danmörk Fylgstu með þessum Þórhallur Kári Knútsson Uppalinn strákur fæddur 1995 sem hefur verið lykil- maður í 2. flokk Stjörnunnar sem varð meistari síðustu tvö ár. Skoraði sigurmarkið gegn KR í Meistarakeppni KSÍ á dögunum. ➜ Siggi svartsýni Erfitt að verja titilinn Það er miklu erfiðara að verja titilinn en að vinna hann, spyrjið bara öll önnur lið nema FH síðustu sautján árin. ➜ Lykilmaðurinn í sumar ÚRSLIT UNDANKEPPNI EM 2016 ÍSLAND - SERBÍA 38-22 (16-10) Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 12/1 (16/2), Arnór Þór Gunnarsson 9/1 (11/2), Aron Pálmarsson 6 (10), Róbert Gunnarsson 5 (5), Vignir Svavarsson 2 (2), Ásgeir Örn Hallgrímsson 2 (5), Rúnar Kárason 1 (3), Snorri Steinn Guðjónsson 1 (3), Ólafur Guðmundsson (2), Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13 (34/1, 38%), Aron Rafn Eðvarðsson (1/1, 0%), Hraðaupphlaup: 16 (Guðjón Valur 10, Arnór Þór 3, Vignir 2, Snorri Steinn 1). Mörk Serbíu (skot): Mijajlo Marsenic 7 (7), Momir Ilic 3/1 (6/1), Nemanja Zelenovic 3 (7), Marko Vujin 3 (9), Nemanja Ilic 2 (2), Dalibor Cutura 1 (1), Ilija Abutovic 1 (1), Darko Djukic 1 (2), Rastko Stojkovic 1/1 (3/1). Varin skot: Miroslav Kocic 11/2 (40/4, 28%), Dragan Marjanac (9, 0%). Hraðaupphlaup: 4. DOMINO‘S-DEILD KARLA LOKAÚRSLIT, 4. LEIKUR TINDASTÓLL - KR 81-88 (39-40) Tindastóll: Darrel Keith Lewis 37, Myron Dempsey 18/12 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 14/6 fráköst/8 stoðsendingar, Darrell Flake 4, Viðar Ágústsson 4, Helgi Rafn Viggósson 4. KR: Michael Craion 24/9 fráköst/7 stoðsend- ingar, Pavel Ermolinskij 21/8 fráköst, Helgi Már Magnússon 15, Brynjar Þór Björnsson 13, Darri Hilmarsson 13, Finnur Atli Magnússon 2. KR vann úrslitaeinvígið 3-1. Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is Verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00 Glös fyrir stór og smá tilefni Hjá Fastus fæst mikið úrval af glösum fyrir stóra og litla veitingastaði. Komið í verslun okkar að Síðumúla 16 og látið fagmenn hjálpa ykkur við að velja réttu glösin. FA S TU S _H _0 3 .0 1 .1 5 HANDBOLTI Eftir talsverða niður- sveiflu síðasta rúma árið þá stigu Strákarnir okkar eins og við þekkj- um þá aftur út á fjalir Laugardals- hallar. Serbía lenti undir íslensku hraðlestinni sem vann ótrúlegan sextán marka sigur, 38-22. Með viljann að vopni og sjálfs- traustið í botni hreinlega keyrðu strákarnir yfir Serbíu frá fyrstu mínútu. Komust í 8-1, misstu það niður í tvö mörk, 9-7, en gáfu þá bara aftur í og litu aldrei til baka. 16-10 í hálfleik og síðan var gefið í botn og keyrt yfir andstæðinginn í seinni hálfleik. Einhver besta frammistaða sem liðið hefur sýnt í nokkur ár. Þetta geta strákarnir og þeir vita það manna best. „Það small eiginlega allt frá byrjun og það gerir allt auðveld- ara. Þetta var frábær frammi- staða, sama hvar drepið er niður fæti,“ sagði brosmildur landsliðs- fyrirliði, Guðjón Valur Sigurðsson, en hann fór algjörlega á kostum. Skoraði tólf mörk í leiknum og þar af tíu úr hraðaupphlaupum. „Við vorum með svör við öllu og sundurspiluðum þá. Okkur hefur liðið vel og stemningin góð þó svo spilamennskan hafi verið slæm upp á síðkastið. Það er leiðinlegt að spila illa. Við þykjumst vita hvað hefur verið að og það hefur tekið tíma að laga það. Vonandi höldum við áfram svona þó svo ég sé nú ekki að gera ráð fyrir að vinna Serbíu á útivelli með sextán mörkum.“ Guðjón segir að það hafi verið lífsnauðsynlegt að ná í þessi stig og ofan á þetta verði að byggja. Eftir erfitt gengi segir hann afar ljúft að hafa náð að sýna aftur hvað liðið getur. „Við höfum verið að spila langt fyrir neðan okkar getu og það hefur nagað alla inn að beini. Það detta nokkur kíló af öxlunum í kvöld. Nú fer ég og gef strákunum pitsu,“ sagði fyrirliðinn og brosti allan hringinn. - hbg Velkomnir aft ur, strákar Strákarnir okkar buðu til veislu í sextán marka sigri á Serbíu í Höllinni í gær GÓÐ BYRJUN HJÁ ÓLAFI Guðjón Valur ræðir málin við nýja aðstoðarþjálfara liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR KÖRFUBOLTI „Það er skemmtileg- ast að vinna titilinn á heimavelli, en þetta var alveg frábært enda magnaður leikur,“ sagði Helgi Már Magnússon, leikmaður KR, við Fréttablaðið eftir að KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitil- inn í körfubolta með 88-81 sigri á Tindastóli í fjórða leik liðanna í Síkinu í gærkvöldi. Það var við hæfi að sjálf Fjall- konan skyldi afhenda dómurunum boltann fyrir leik því sannkölluð hátíðarstemning var í Síkinu í gær. Þar var slegist um hvert sæti og stemningin algjörlega rafmögnuð. Svo virtist sem KR-ingar ætl- uðu að sökkva í Síkinu eins og svo mörg önnur lið í vetur þegar Tindastóll byrjaði seinni hálfleik- inn með 10-0 spretti og komst níu stigum yfir, 49-40. Þar virtist allt á móti KR og allt féll með Stólun- um. Allt stefndi í oddaleik á laug- ardaginn. Pavel fór á kostum í seinni KR-liðið var þó ekki á þeim bux- unum. Reynslan og sigurhefðin vó þungt, en Pavel Ermolinskij, sem skoraði átta stig að meðaltali í fyrstu þremur leikjunum, fór á kostum í seinni hálfleik og skor- aði í heildina 21 stig auk þess sem hann tók átta fráköst. „Ég treysti öllum félögum mínum til að taka stór skot hve- nær sem er og það gerðu Pavel og Helgi Már. Þetta voru risastór skot undir lokin. Vá, hvað þetta er sætt,“ sagði Brynjar Þór Björns- son, stórskytta KR-liðið, sem skor- aði 13 stig í leiknum. Fimmti titill Brynjars Brynjar Þór er nú búinn að vinna fimm Íslandsmeistaratitla með KR og er á besta aldri. Hann er í besta liði landsins og ekki loku fyrir það skotið að KR-liðið verði áfram í titilbaráttunni næstu árin. Enginn hefur unnið fleiri Íslands- meistaratitla en Teitur Örlygsson, tíu talsins, en Brynjar er á leiðinni. Að vinna tíu eins og Teitur „Það yrði rosalegt. Þegar maður var að byrja í þessu hugsaði maður hversu skemmtilegt það yrði að vinna tíu eins og Teitur en manni datt ekki í hug það gæti gerst. En nú er aldrei að vita,“ sagði Brynjar Þór við Fréttablaðið. Stólarnir geta gengið sáttir frá borði. Nýliðarnir voru frábærir í vetur en uppskeran rýr þegar horft er á titlana. Enginn bikar vannst, en framtíðin er björt hjá Stólunum sem eru Íslandmeistarar í unglingaflokki. Þar spila strákar eins og Pétur Rúnar, Ingvi Rafn og Viðar sem allir hafa verið í stórum hlutverkum í vetur. Enginn saddur í Vesturbænum Reynsla, breidd og gæði KR-liðs- ins vó þungt í einvíginu og eiga Íslandsmeistararnir hrós skilið fyrir hvernig þeir létu Síkið ekki hafa of mikil áhrif á sig í gær- kvöldi. „Þeir sungu að við ættum enga stuðningsmenn en mér sýnist okkar fólk sem mætti hér í kvöld hafa troðið því ofan í þá,“ sagði Brynjar Þór og horfði á sitt fólk sem faðmaði, kyssti og jafnvel tæklaði leikmenn KR í gólfið til að fá myndir af sér með þeim. Erfitt er að sjá KR-liðið tætast í sundur nema einhverjir fái tæki- færi í atvinnumennsku. Í Vestur- bænum eru menn langt frá því að vera saddir. „Vonandi vinnum við bara miklu fleiri. Aðalmálið er að halda kjarnanum í liðinu. Það gerðum við núna og því gengur svona vel. Svo er bara að bæta við sig. Næsta mál á dagskrá er að vinna bikar- inn líka. Það hefur ekki gengið nógu vel,“ sagði Darri Hilmars- son. tomas@365.is Vinnum vonandi miklu fl eiri KR-ingar eru Íslandsmeistarar annað árið í röð eft ir 88-81 sigur á Tindastól í fj órða leiknum í Síkinu í gær. „Ég treysti öllum félögum mínum til að taka stór skot hvenær sem er,“ sagði fyrirliðinn Brynjar Þór. ANNAÐ ÁRIÐ Í RÖÐ HJÁ VESTURBÆINGUM Michael Craion, besti leikmaður lokaúrslitanna 2015, fagnar hér Íslandsmeistaratitlinum í Síkinu í gærkvöldi ásamt stuðningsmönnum KR-liðsins sem mættu á Krókinn. Með honum er Helgi Már Magnússon og í stúkunni má sjá kappa eins og Fannar Ólafsson, Skarphéðin Frey Ingason og Guðmund Magnússon. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN NÍELSSON HANDBOLTI Fram og ÍBV geta tryggt sér sæti í lokaúrslitum Olís-deildar kvenna í kvöld þegar fjórði leikur undanúrslitanna fer fram. Eyjakonur eru 2-1 yfir á móti deildar- og bikarmeisturum Gróttu og eru á heimavelli í kvöld. Grótta vann fyrsta leik- inn með 11 mörkum en ÍBV getur unnið þriðja leikinn í röð í kvöld og sent Gróttuliðið í sumarfrí. Framkonur eru 2-1 yfir á móti Stjörnunni en þurfa að sækja Garðabæjarkonur heim í Mýrina í kvöld. Heimaliðin hafa unnið þrjá fyrstu leikina. Leikurinn í Eyjum hefst klukk- an 18.00 en leikurinn í Garðabæ byrjar klukkan 19.30. - óój Komast Fram og ÍBV í úrslit? SPORT 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 8 0 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 F -2 4 1 C 1 6 3 F -2 2 E 0 1 6 3 F -2 1 A 4 1 6 3 F -2 0 6 8 2 8 0 X 4 0 0 9 B F B 0 8 0 s _ 2 9 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.