Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Blaðsíða 62

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Blaðsíða 62
undirstöðum. Þessvegna sé siðferðilegur sannleikur háður því á hvern hátt við skil- greinum sannleikann: Það er þekkingar- fræðilega eða frumspekilega. Heimspekingar hafa margir ætlað að setja fram siðfræðikenningu og byrjað á frum- speki og þekkingarfræði, en aldrei komist að siðfræðikenningunni. Ég held að þetta sé að byrja á öfugum enda. Sannleikshugtakið er að mínu áliti fyrst og fremst siðferðilegt hugtak. Það er siðfræðilegur sannleikur sem hinar tvær skilgreiningamar verða líka að reiða sig á, til að vera ekki innantómar. Það er að minnsta kosti villandi að líta svo á að siðfræðilegur sannleikur hljóti ævin- lega að koma á eftir frumspekilegum eða þekkingarfræðilegum. Fólk virðist hafa mun meiri áhuga á hverskyns dulhyggju og órök\’ísi, því sem er andsnúið skynseminni, heldur en sannleik- anum. Er það hœttulegt að þínum dótni? Dulhyggju má aldrei tefla gegn vísindunum eða opinberri trú. Hún kemur alltaf sem viðbót og þannig á hún vissan rétt á sér. Það er mikilsvert að fólk kunni skil á viðmiðun- um vísinda og opinberrar trúar, því að þau eru helsta kjölfesta skipulegrar hugsunar. Eitt er að gagnrýna vísindi og trú, það er nauðsynlegt. En það er háskalegt að tefla dulhyggju fram gegn viðteknum vísindum og ríkjandi trú. Það væri sama og að hundsa heilbrigða skynsemi. Það er ekki hægt að stunda vísindi án þess að taka mið af við- teknum vísindum, það er ekki hægt að stunda stjómmál án þess að taka mið af ríkjandi stjómmálum í þjóðfélaginu, og það er ekki hægt að trúa af viti án þess að taka mið af opinberum trúarbrögðum sem móta hugmyndaheim fólks. Dulhyggja og hvers kyns órökvísi, sem freistar fólks, veldur tómlæti um þau vandamál sem raunverulega er við að glíma í vísindum og stjómmálum, trúarlífi og sið- ferði. Hún gefur tæknilegri hugsun færi á að ná yfirhöndinni í samfélaginu. Nú hefurþú gagnrýntpresta ogfleiri stéttir, þar á meðal rithöfunda, fréttamenn og stjórnmálamenn. Er sannleikurirm sameig- inlegur kjarni íþessari gagnrýni? Það sem ég hef reynt af veikum mætti er að fá menn til þess að huga að forsendum eigin starfa og verka. Nútíminn krefst þess að fólk hugsi af krafti og rökvísi um það sem það er að gera og kunni að gagnrýna sjálft sig. Þama er ég bara að sinna því hlutverki sem heimspekingar hafa alla tíð haft í menningunni alveg frá því að Sókrates reyndi að ýta við samborgurum sínum í Aþenu forðum. Hann vildi vekja fólk til umhugsunar og fá það til að grundvalla skoðanir sínar á skynsamlegum rökum. Það hefur alltaf verið hlutverk heimspekinga að berjast gegn hugsunarleysinu. Ég hef líka reynt að koma á framfæri ákveðnum hugmyndum um að kirkjan þyrfti að taka sér tak og endurskilgreina sig miðað við gerbreyttan heim. Kirkjan á að hjálpa nútímafólki. Það geta rithöfundamir gert líka. En kirkjan getur að mínu viti gegnt lykilhlutverki í því að veita nútíma- fólki aðstoð til að takast á við og skilja lífsvandamál sín. Munurinn er kannski sá að kirkjan er stofnun en rithöfundar eru alltaf að fást við tiltekin verk sín. Það er hugsunarleysi að skeyta ekki um sannleikann og láta heilbrigða skynsemi, einsog við höfum talað um hana hér, stýra hugsunum sínum að öllu leyti. Mér finnst 52 TMM 1992:1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.