Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Blaðsíða 64

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Blaðsíða 64
einhver svífandi órökvísi og óskynsamleg- ar tilfínningar. En tilfinningar eru ekki and- stæða skynseminnar. Fólki hættir til að rugla saman órökvísi og tilfmningum. Þess- vegna verður óánægja fólks og ófullnægja vegna tæknihyggjunnar og þess sem af henni leiðir svo ómarkviss. En málið er að tæknihyggjan skeytir ekki um sannleikann, með öðrum orðum: tæknivitið, eða verks- vitið, skiptir sér ekki af sönnu og ósönnu, og ekki heldur réttlæti eða ranglæti, fegurð eða ljótleika. Verksvitið má aldrei vinna alveg sjálf- stætt. Það verður alltaf að tengjast öðrum starfsháttum skynseminnar: siðviti og bók- viti. Þetta þrennt lýsir því hvernig mannleg skynsemi starfar. Öll „vitin“ hafa ákveðnar hugsjónir að leiðarljósi sem varpa ljósi á staðreyndimar. Bókvitið hefur hugsjónina um hlutlægni til dæmis helst að leiðarljósi. Verksvitið gengur hinsvegar að ákveðnum markmiðum vísum. Það er siðvitið sem set- ur þessi markmið. En siðvitið verður að fá upplýsingar frá hinum „vitunum". Það er stórhættulegt ef siðvitið starfar einangrað, ekki síður en þegar verksvitið verður alls- ráðandi. Þá sitjum við uppi með hugsjóna- menn úr tengslum við veruleikann. Eg held að gott sögulegt dæmi um slíkt sé franska byltingin. Siðvitið er ekki yfir annað hafið, allt verður að vinna saman til að mannleg skynsemi fái notið sín. Ertu að segja að afþví leiði alltaf einhvers- konar siðblinda þegar þessir þrír þœttir skynseminnar vinna ekki saman? Glóps- hátturþegarsiðvitið eitt vísar veginn, hugs- unarleysi þegar tœknivitið er annarsvegar og ábyrgðarleysi þegar bókvitið rœður ferðinni? Já. Það er eitt dæmi um siðblindu að halda að bókvitið geti starfað óháð siðviti sem kemur meðal annars fram í þeirri trú að vísindi séu hlutlaus og að ekki verði dregn- ar ályktanir um verðmæti af staðreyndum. Niðurstöður, staðreyndir eru oft verðmæti sjálfar. Hvað er skynsemi? Ein skilgreining á henni er að hún felist í að sjá það sem gott er og gera það sem rétt er. Sönn skynsemi sameinar siðvit, bókvit og verksvit. Er svo að skilja að þú viljir bera saman ástandið nú á dögum og ástandið í Frakk- landi á dögum byltingarinnar og segja að þá hafi siðvitið eitt tekið yfirhöndina, í nú- tímanum sé það aftur á móti tœknivitið sem leiki eitt lausum hala? Nei. Kannski er þó enn meira sammerkt með þessu tvennu. í frönsku byltingunni var það á vissan hátt líka tæknivit sem tók yfirhöndina. Menn héldu að þeir gætu lagt gamla þjóðfélagið niður og byggt upp nýtt á grundvelli tiltekinna sanninda sem hefðu verið uppgötvuð. Þessum markmiðum átti að vera mögulegt að ná eins og þau væru tæknileg markmið. Það er alveg sami vand- inn og nú: Tæknivitið og dýrkun á því hafa þanist út á kostnað siðvits og bókvits. Og ég held að þetta sé nátengt hugmyndalegri þróun á Vesturlöndum síðustu aldirnar. Eitt höfuðeinkenni á mótun hugmynda- heims Vesturlandabúa síðustu þrjár aldim- ar, frá upphafi nýaldar er ofuráhersla á sjálfið. Heimsmynd okkar á að verulegu leyti rætur að rekja til vísindabyltingarinnar og hruns heimsmyndar miðalda. Upphafn- ing sjálfsins er ofuráhersla á manneskjuna sem sjálfsvitandi veru. Hún er sett í mið- punkt heimsins. Það eru einkum Descartes, 54 TMM 1992:1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.