Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015 Kaupum bíla Hærra uppítökuverð Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum. Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is og við sendum þér staðgreiðslutilboð þér að kostnaðarlausu. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Búið er að gera veg hafnarmegin með eystri brimvarnargarðinum við Landeyjahöfn. Einnig var byggður útsýnispallur við höfnina. Þá var flóðvarnargarður Markarfljótsmeg- in færður nær sjónum. Verkið var boðið út á liðnu vori og voru tilboð opnuð 18. júní 2014. Þjót- andi ehf. á Hellu átti lægsta tilboð upp á rúmar 35 milljónir eða 73,4% af áætluðum verkkostnaði. Helstu magntölur voru útlögn um 14.000 m3 af grjóti og kjarna og færsla flóð- varnargarðs upp á um 12.000 m3. Ólafur Einarsson, framkvæmda- stjóri Þjótanda ehf., sagði að verkið hefði hafist í september s.l. og því lokið í kringum laust eftir síðustu áramót. Byrjað var á að grafa upp flóðvarnargarðinn sem var kominn á kaf í sand, en fjaran hefur færst langt út á þessum kafla, að hans sögn. Ólafur sagði að gerð aðkomu- vegarins eftir eystri brimvarnar- garðinum hefði oft gengið erfiðlega vegna slæms veðurs og brims í höfn- inni. Að sögn Vegagerðarinnar var tal- in vera þörf fyrir aðkomuveginn vegna viðhalds og öryggis ef þarf t.d. að koma björgunartækjum út á garðinn. Yfirleitt eru ekki gerðir vegir hér að hausum hafnargarða, að sögn Vegagerðarinnar. Stærra svæði ræktað Útsýnispallurinn er sjávarmegin gegnt afgreiðsluhúsi Herjólfs og var lagður steyptur göngustígur upp að honum. Af pallinum sést vel yfir höfnina og yfir til Vestmannaeyja. Þá fengust þær upplýsingar hjá Vegagerðinni að flóðvarnargarður- inn hefði verið færður utar svo hægt væri að rækta upp stærra svæði. Ljósmynd/Pétur Pétursson Landeyjahöfn Gerður var vegur meðfram eystri hafnargarðinum. Það bæði auðveldar viðhald hafnargarðsins og eykur öryggi. Fram kom í björgunaræfingu fyrir nokkru að það þyrfti að vera hægt að koma tækjum út á garðinn. Vegur lagður með hafnargarðinum  Útsýnispallur við Landeyjahöfn  Varnargarður færður Vegagerðin hefur kannað ýmsan búnað sem gæti komið að gagni við dýpkun Landeyjahafnar í framtíð- inni. Þar á bæ vita menn af neðan- sjávarjarðýtum en helst er horft til einhvers konar sanddælubúnaðar. Í fyrstu kannaði Vegagerðin að setja upp fastan dælubúnað. Nú hef- ur dregið það mikið úr sandburði að það er ekki lengur talið vera hag- kvæmt. Nú hefur einkum verið at- hugað með færanlegan dælubúnað neðansjávar. Hann gæti dýpkað víða í höfninni. Þá hefur verið skoðað að moka sandinum upp með krana. Að sögn Vegagerðarinnar verður ekkert ákveðið í þessum efnum fyrr en tekin hefur verið ákvörðun um smíði nýrrar ferju. Þegar hún kemur þarf varanleg lausn að liggja fyrir. Vegagerðin segir að það sé óviðráð- anlegt verkefni að dýpka höfnina fyrir Herjólf yfir háveturinn og kostnaðurinn allt of mikill. Jarðýtunni fjarstýrt úr landi Fyrir Herjólf þurfi að dýpka niður á sjö metra en fyrir nýja ferju niður á fimm metra dýpi. Auk þess henti Herjólfur alls ekki til siglinga í Landeyjahöfn yfir háveturinn. Japanski vinnuvélaframleiðand- inn Komatsu smíðar neðansjáv- arjarðýtur. Þeim er fjarstýrt úr landi og geta þær unnið allt niður á sjö metra dýpi. Kraftvélar ehf. eru með umboð fyrir Komatsu hér á landi. Viktor Karl Ævarsson, sölu- og markaðsstjóri Kraftvéla, sagði að enginn hefði spurt eftir neðansjáv- arjarðýtu hjá Kraftvélum, hvorki til notkunar á botni Landeyjahafnar né annars staðar. gudni@mbl.is Enginn hefur enn spurt eftir neðansjávarjarðýtu Ljósmynd/Kraftvélar Neðansjávarjarðýta Komatsu smíðar ýtur sem geta unnið í sjó og allt niður á sjö metra dýpi. Þær hafa m.a. verið notaðar til að dýpka hafnir í Japan.  Helst er horft til einhvers konar dælubúnaðar Hafísjaðarinn var í gær um 30 sjómílur (56 km) norður af Hornströndum. Á miðvikudags- kvöld var hann aðeins um 18 sjómílur (33 km) norðnorð- vestur frá Kögri á Horn- ströndum og hafði því fjar- lægst nokkuð. Ekki eru líkur á að hafísinn nálgist landið á allra næstu dögum, að sögn Ingibjargar Jónsdóttur, haf- íssérfræðings hjá Jarðvís- indastofnun HÍ. Landsins forni fjandi fjarlægist MODIS/NASA/Jarðvísindastofnun Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Unnið er að því að afla fylgis innan íþróttahreyfingarinnar við sérstaka íþróttasjónvarpsstöð og náist sam- staða um málið geta útsendingar hafist í mars eða apríl á þessu ári. Stefnt er að því að senda út íþrótta- efni í opinni dagskrá allan sólar- hringinn alla daga vikunnar. Viðar Garðarsson og Einar Karl Birgisson fara fyrir verkefninu. Þeir eru virkir í íþróttahreyfingunni og með víðtæka þekkingu á þessu sviði fjölmiðlunar. Viðar hefur áratuga reynslu úr kvikmynda- og sjón- varpsframleiðslu og Einar Karl er fyrrverandi svæðisstjóri Latabæjar á Íslandi. Unnið að samningum Drög að samstarfssamningum við nokkur sérsambönd ÍSÍ liggja fyrir og viðræður við önnur standa yfir. Viðar áréttar að málið standi og falli með íþróttahreyfingunni, því hún þurfi að hafa efnið aðgengilegt og megi ekki loka á það með einkarétt- arsamningum við aðra. „Á þessu augnabliki höfum við sagt að við séum ekki 100% að fara af stað held- ur séu verulegar líkur á því,“ segir Viðar og bætir við að hlutirnir gerist mjög hratt þegar þeir gerist. Viðar segir að þótt sambönd eins og til dæmis Knattspyrnusambandið séu með samninga um sjónvarps- útsendingar frá leikjum í efstu deild karla og kvenna komi það ekki í veg fyrir útsendingar frá viðburðum í neðri deildum og grasrótinni. „Við getum boðið upp á hluti sem í raun eru litlar eða engar líkur á að verði í boði á öðrum ljósvakamiðl- um,“ segir Viðar. Tæknibylting á nýliðnum árum gerir hugmyndina mögulega, að sögn Viðars. Hann bendir á að allur útbúnaður sé margfalt ódýrari en fyrir nokkrum árum og þekking og tækni aðgengilegri. Áður hafi verið talað um kostnað upp á tugi eða hundruð milljóna en nú hlaupi kostnaður á nokkrum milljónum eða hundruðum þúsunda króna. Auknir möguleikar Málið á sér langan aðdraganda en að sögn Viðars hefur það þróast hratt í kjölfar kynningarfundar með formönnum og framkvæmdastjórum sérsambanda ÍSÍ fyrir nokkrum vikum. Hann segir að langvarandi óánægja mjög margra sérsambanda innan ÍSÍ með þjónustu ljós- vakamiðla hafi ýtt hugmyndinni af stað. Hann áréttar að fyrst og fremst sé horft til RÚV í þessu sambandi því önnur rök gildi um einkarekna fjölmiðla en ríkisrekna. Ljós- vakamiðlar 365 selji áskriftir að íþróttaefni og velji það efni sem þeir telji að sé góð söluvara og íþrótta- hreyfingin geti ekki gert lögmætar kröfur um að ákveðnum íþróttum sé sinnt. Öðru máli gegni um ríkisfjöl- miðilinn. „Menn eru mjög ánægðir með samstarfið við RÚV en vilja meira,“ segir Viðar. „Með nýju stöðinni vilj- um við svara þessari þörf og meðal annars búa til farveg fyrir greinar sem hafa ekki fengið tækifæri í ljós- vakamiðlunum.“ Vilja stofna sér- staka sjónvarps- stöð fyrir íþróttir  Útsendingar gætu hafist í mars eða apríl á þessu ári  Sent út allan daginn Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjónvarp Viðar Garðarsson hefur lengi unnið við kvikmyndagerð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.