Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 39
HINSTA KVEÐJA Elsku afi, ég trúi því varla að þú sért farinn. Þú sem hefur alltaf verið til staðar, svo rólegur og góð- ur. Þú sem slóst grasið með orfi og ljá og gafst mér litla hrífu til að raka með. Þú sem kenndir mér að elska sultu og allt sem sætt er. Takk fyrir allt afi minn, ég á eftir að sakna þín mikið en vonandi ertu nú á betri stað. Bless afi, við sjáumst síðar. Jóhanna Ósk Baldvinsdóttir. um tíma en svona urðu leikslokin. Þau voru bæði á sjúkrahúsi í Stykkishólmi þegar hann lést. Það fór vel um hann á Jaðri og við fjöl- skyldan hans þökkum innilega fyrir virkilega góða umönnun þar. Einnig viljum við þakka starfs- fólkinu á Sjúkrahúsinu í Stykkis- hólmi fyrir þeirra góðu umönnun á meðan foreldrar okkar voru þar. Elsku pabbi, á bráðamóttökunni þ. 17. janúar sl. sagðir þú þetta: „Það verður og fer sem fer, hið ókomna enginn sér“ og þannig er það víst örugglega. Við systkinin þökkum þér innilega fyrir sam- fylgdina og höldum áfram með henni mömmu okkar. Blessuð sé minning þín. Gunnar og Steiney. Það er svo margs að minnast um þig afi Lalli og ég er mjög þakklátur fyrir að hafa átt þig að. Það var alltaf gaman að koma við hjá ykkur ömmu og Gunnari frænda á Sæunnargötunni og spjalla um allt milli himins og jarð- ar. Þú sýndir öllu svo mikinn áhuga og varst svo vel upplýstur um það sem við spjölluðum um. Ættfræðin var þér ofarlega í huga og manni leið oft eins og þú þekkt- ir nánast hvern einasta Íslending því þú varst yfirleitt ekki lengi að tengja þá sem um var rætt við þann sveitabæ sem hann átti ættir að rekja til. Það var líka magnað hvað þú þekktir landið vel og þá sérstaklega sveitirnar því þegar við vorum að segja þér frá ferða- lögum okkar Elínar í sumarfríum þá skipti engu máli í hvaða lands- hluta við vorum að ferðast, þú gast alveg kortlagt næstu bæi og ör- nefni sem urðu á vegi okkar. Þú varst ótrúlega klár og úrræðagóð- ur og reddaðir alltaf hlutunum ef það voru einhver vandamál. Til dæmis minnist ég þess þegar við fjölskyldan öll vorum í vikudvöl að sumri til á Óspakseyri í Bitrufirði í sumarhúsi frænda okkar. Ég og Jóhanna Ósk áttum afmæli þessa vikuna og af því tilefni var slegið til veislu með öllu tilheyrandi. Þegar átti að fara að þeyta rjómann með kökunum komumst við hins vegar að því að það voru engin áhöld til eða tæki til þess. En þú varst ekki lengi að finna lausn á því, þú fannst þér nú bara venjulegan matargaff- al og hrærðir í rjómanum í dágóð- an tíma þar til hann var þeyttur því ekki var tekið í mál að rjómann myndi vanta á kökuborðið. Þú varst honum Jökli Ívari alltaf mjög góður og hlakkaði hann alltaf mik- ið til að hitta hann langafa Lalla og langömmu Maddý. Því kveðjum við þig með miklum söknuði afi og langafi. Guð geymi þig. Ólafur Ívar. Fyrir tíu árum var ég svo hepp- in að hitta myndarlegan og ynd- islegan dreng, Ólaf Ívar. Eftir eina ferðina vestur í Ólafsvík var tekin ákvörðun um að stoppa í Borgar- nesi og kynna mig fyrir afa, ömmu og Gunnari frænda. Við stoppuð- um því hjá afa Lalla, ömmu Maddý og Gunnari frænda á Sæunnargöt- unni. Ég var varla komin inn fyrir dyrnar þegar Lalli var farinn að spyrja mig hverra manna ég væri og hvert ég ætti ættir að rekja. Hann var ekki lengi að rifja upp kynni sín af tveimur systrum lang- afa míns sem höfðu verið með hon- um á síld hér á árum áður. Ég rétt mundi hvað þær hétu og má í raun segja að minni hans hafi verið betra en minnið í 19 ára gamalli stúlku. Svona hefur þetta verið alla tíð síðan. Það tók afa Lalla ekki nema örskamma stund að rifja upp og finna tengingar við flesta þá sem maður var að ræða við hann um. Ég á margar góðar og fallegar minningar um „afa“ Lalla. Hann lét mér alltaf líða eins og ég væri ein af barnabörnunum hans og fyrir þá væntumþykju og hlýju mun ég ætíð vera honum þakklát. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem Jökull Ívar fékk til að kynn- ast langafa Lalla þó að alltof stutt- ur væri. Jökull Ívar talaði alltaf um langafa Lalla og langömmu Maddý af mikilli hlýju og var alltaf glaður að kíkja á Jaðar og hitta þau. Við munum alla tíð halda minningu langafa Lalla á lofti og gefa Jökli Ívari tækifæri til þess að minnast hans. Elsku afi og langafi Lalli við munum sakna þín. Hvíldu í friði. Elín og Jökull Ívar. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Orri HF-180, sknr. 0923, Hafnarfirði, þingl. eig. Básafell - útgerð ehf., gerðarbeiðendur Hafnarsjóður Snæfellsbæjar og Sveitarfélagið Skagaströnd, miðvikudaginn 18. febrúar 2015 kl. 09.00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 13. febrúar 2015. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Búagrund 6, 208-5592, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Árni Valur Skarphéðinsson, gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf. og Reykjavíkurborg, fimmtudaginn 19. febrúar 2015 kl. 14.00. Hamrabrekkur 1, 223-1098, Mosfellsbær, þingl. eig. Sigurður Blöndal, gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtudaginn 19. febrúar 2015 kl. 11.00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 13. febrúar 2015. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Lómasalir 6, 0301, 50% ehl.gþ., fastanr. 225-3552, Kópavogi, þingl. eig. Ragnar Jens Bjarnason, gerðarbeiðandiTollstjóri, miðvikudaginn 18. febrúar 2015 kl. 11.00. Vatnsendablettur 710, fastanr. 228-4188, Kópavogi, þingl. eig. Íris Fanney Friðriksdóttir og Vilhelm Patrick Bernhöft, gerðarbeiðendur Arion banki hf og Kópavogsbær, miðvikudaginn 18. febrúar 2015 kl. 13.00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 13. febrúar 2015. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Andrésbrunnur 15, 226-2047, Reykjavík, þingl. eig. Sigmundur Friðgeir Guðlaugsson, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Sjóvá-Al- mennar tryggingar hf., miðvikudaginn 18. febrúar 2015 kl. 13.30. Lindarbraut 8, 206-7560, Seltjarnarnesi, þingl. eig. Agata Maria Knasiak og Robert Andrzej Knasiak, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf og Sjóvá-Almennar tryggingar hf, miðvikudaginn 18. febrúar 2015 kl. 10.00. Úlfarsbraut 64, 230-0619, Reykjavík, þingl. eig. Iðunn Brynja Sveinsdóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður verslunarmanna og Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 18. febrúar 2015 kl. 14.30. Þorláksgeisli 52, 226-8782, Reykjavík, þingl. eig. Ingibjörg Steindórsdóttir og Ingvar Ingvarsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 18. febrúar 2015 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 13. febrúar 2015. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Furuás 41, 0101, (230-2946), 50% ehl., Hafnarfirði, þingl. eig. Þb. Eva Lind Ágústsdóttir, gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarkaupstaður og LOCAL lögmenn sf., fimmtudaginn 19. febrúar 2015 kl. 09.30. Herjólfsgata 12, 0101, (207-5392), Hafnarfirði, þingl. eig. Guðlaugur Guðmundsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 19. febrúar 2015 kl. 10.30. Móabarð 34, 0204, (207-8298), Hafnarfirði, þingl. eig. Anna María Daníelsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 19. febrúar 2015 kl. 09.00. Norðurtún 4, 0101, (208-1621), Garðabæ, þingl. eig. Vilhjálmur Ólafsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, fimmtu- daginn 19. febrúar 2015 kl. 13.00. Þrastarlundur 15, 0101, (207-2572), Garðabæ, þingl. eig. Geir Brynjólfsson og Kristjana H. Þorgeirsd. Heiðdal, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 19. febrúar 2015 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 13. febrúar 2015. GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ! MOGGINN Í IPADINN WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD óþreytandi við uppeldishlutverkið, hann var í senn skipulagður og víðsýnn og þannig reyndist hann mörgu ungmenninu hrein fyrir- mynd. Og þótt einhverjum hafi fundist Hermann hafa farið full- geyst var markmiðið alltaf skýrt: Hámarksárangur fyrir hönd ein- staklingsins og heildarinnar. Samstarf okkar Hermanns á vettvangi ungmennafélags- og íþróttahreyfingarinnar þótti far- sælt á sinni tíð og rík ástæða til þess að þakka fyrir að hafa átt hann að félaga. Þar fór maður sem stóð við orð sín og oft rúmlega það, gat verið búinn að koma í verk hlutum sem varla voru þó komnir á dagskrá. Því kom fyrir að menn misskildu fyrirætlanir hans og kraftar hans nýttust ekki sem skyldi. Þó var Hermann framsýnn og vann gjarna vandaðar áætlanir þegar vinna þurfti í hópi. Þannig gátu ungir sem aldnir lært mikið af honum. Eiðaár Hermanns skiluðu ófáu ungmenninu vel nestuðu út í lífið. Hjá honum gátu menn bæði lært að treysta á sjálfan sig og byggja upp samfélag. Slíkir kennarar eru því miður sjaldgæfir í dag og full ástæða fyrir þá sem nutu þessarar handleiðslu að hugleiða margt sem þessi fallni garpur hafði fram að færa bæði í orði og verki. Megi minning hans lifa sem lengst og afrek hans í lífinu verða huggun þeim sem nú syrgja föður, bróður, traustan vin og félaga. Sigurjón Bjarnason. Okkur skólasystkin Hermanns Níelssonar langar til að minnast hans nokkrum orðum. Það kom snemma í ljós hvert hugur hans stefndi. Hann var íþróttamaður af Guðs náð, stæltur, kappsfullur, reglusamur og áræðinn, enda áttu íþróttir og allt er að íþróttum laut eftir að verða hans æðsta æviverk. Hann starfaði lengi á Austurlandi og þegar hann sneri aftur heim lét hann strax til sín taka. Hann hleypti nýju lífi í sitt gamla félag Hörð sem í dag rekur margþætta íþróttastarfsemi, m.a. hina þjóð- legu íþrótt glímuna. Í starfi sínu við menntaskólann bryddaði hann upp á ýmsum nýjungum og end- urvakti gamlar og grónar íþrótta- greinar eins og kappróðurinn. Það vakti athygli í bænum þegar glað- vær hópur ungra menntskælinga fyllti bryggjur og bólverk og hóf kappróður af miklum móð á Poll- inum í vorblíðunni. Þá stóð hann fyrir gerð kvikmyndar um afreks- braut sem hann setti á laggirnar við menntaskólann og var við- staddur sýningu hennar í sínum heimabæ í desember sl. Við krakkarnir fædd 1948 ól- umst upp í frjálslegu og öruggu umhverfi Skutulsfjarðar. Höfðum allt til alls sem þurfti á þeim árum. Ísafjörður var þá lítil stórborg eins og hann er reyndar enn í dag og stutt í óspillta náttúruna. Við, skóla- og fermingarsystkinin, höf- um hist reglulega á fjögurra ára fresti sl. 30 ár til að fagna tíma- mótum og minnast æskuáranna og verður Hemma sárt saknað næst er við hittumst. Við höfðum ráðgert að fara ferð til skólasystk- ina okkar í fjarlægum héruðum nú á þessu merkisári. Ef af því verður er ljóst að sú ferð verður farin í minningu okkar kæra vinar og skólabróður og allra þeirra félaga okkar sem horfnir eru þessum heimi. Við vottum móður hans og öðr- um aðstandendum okkar dýpstu samúð. Fh. árgangs 1948 frá Ísafirði, Samúel Einarsson (Sammi). Kveðja frá Menntaskól- anum á Ísafirði Í dag kveðjum við Hermann Níelsson, fyrrverandi samstarfs- félaga og kæran vin. Hermann hóf störf við Menntaskólann á Ísafirði haustið 2000 sem íþróttakennari og sviðsstjóri íþróttagreina. Hann kenndi einnig í gegnum tíðina ýmsar aðrar greinar og starfaði um tíma sem vistarvörður á heimavist skólans og sem félags- og forvarnarfulltrúi. Hermann hafði frumkvæði að stofnun íþróttaakademíu við skólann haustið 2006 sem gaf nemendum kost á að stunda afreksþjálfun í íþróttum í samstarfi við íþrótta- félögin á svæðinu. Þá hafði hann einnig frumkvæði að því að boðið var upp á nám við skólann í björg- un í samstafi við Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjarg- ar. Hermann var mjög áhugasam- ur um uppbyggingu íþróttastarfs við skólann og einnig á landsvísu. Þessum áhuga hélt hann allt til starfsloka. Um miðjan febrúar 2012 stóð Hermann fyrir málþingi í menntaskólanum um mikilvægi íþróttastarfs fyrir börn og ung- menni og þátttöku foreldra í því starfi. Á þessu málþingi, sem var vel sótt, kom fram smitandi áhugi Hermanns á þessum málum. Her- mann lagði sig fram um að end- urvekja glímuíþróttina á Ísafirði og margir nemendur skólans kepptu á glímumótum víða um land. Jákvæðni var Hermanni í blóð borin og smitaði hann út frá sér. Alltaf var hann boðinn og bú- inn þegar ný verkefni komu í skól- ann, hann var viðræðu- og úr- ræðagóður og fylginn sér. Samstarfið við Hermann var afar farsælt og gott, hann var ávallt prúðmannlegur í fasi, gætinn orða sinna, vingjarnlegur og hjálpsam- ur. Þegar kennarar menntaskól- ans fóru í starfsmannaferð til Vesturheims vorið 2012 var Her- mann ekki bara að skoða skóla heldur líka að taka upp kvikmynd og var með tökumann með sér í ferðinni. Elja hans og kraftur var með ólíkindum. Hermann lét af störfum við skólann vegna aldurs vorið 2012. Var haft á orði meðal starfsmanna skólans hve hann ætti gott að geta hætt störfum svona unglegur, hraustur og geisl- andi af lífsgleði og orku. En skjótt skipast veður í lofti og sl. vor greindist Hermann með illvígan sjúkdóm. Þrátt fyrir meðferð var hann orðinn þungt haldinn þegar leið á haustið. Hann komst þó aft- ur á ról í nóvember þökk sé umönnun Kristínar Theodóru Nielsen, eiginkonu hans. Það varð því mikil gleði á kennarastofunni þegar fréttist að Hermann ætlaði að koma heim á Ísafjörð í byrjun desember og sýna þær kvikmynd- ir sem hann hafði lokið við að framleiða. Hermann kom í heim- sókn í skólann, máttfarinn en glaður og bjartsýnn og allir voru sannfærðir um að hann myndi ná sér. Baráttujaxlinn Hermann ætl- aði sér að berjast áfram til hins síðasta. Mikill var því harmur okk- ar er við heyrðum um andlát hans hinn 21. janúar sl. Við sendum fjölskyldu Hermanns okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Fyrir hönd starfsfólks Mennta- skólans á Ísafirði, Jón Reynir Sigurvinsson skólameistari. Í dag kveðjum við kæran vin og félaga sem skilur eftir sig stórt skarð í okkar röðum. Hermann Níelsson lést á krabbameinsdeild Landspítalans hinn 21. janúar síð- astliðinn eftir snörp og erfið veik- indi. Hermann var fæddur árið 1948 inn í stóra fjölskyldu, for- eldra og frændgarðs, þar sem lífs- gildi mannúðar, drengskapar og jafnaðar voru í hávegum höfð og mótuðu hann til lífstíðar. Frjáls- ræði þess tíma efldi áræði og dirfsku til að standa á eigin fótum og skapa sér aðstöðu til leiks og starfa. Alla þessa kosti hlaut Her- mann í heimanmund. Íþróttir voru ástríða Hermanns frá barnsaldri til lokadags. Þar naut hann sín best. Hann stundaði frjálsar, fót- bolta, körfubolta og skíði á sínum yngri árum og var virkur í fé- lagsmálum íþróttahreyfingarinn- ar með Knattspyrnufélaginu Herði og einnig sem einn af stofn- endum KFÍ á Ísafirði. Hermann lærði málaraiðn hjá fjölskyldufyr- irtækinu á Ísafirði og starfaði við það fag alla tíð með öðrum störf- um sem hann tók sér fyrir hendur. Íþróttakennaranám stundaði hann á Laugarvatni og að námi loknu lá leiðin austur að Eiðum til kennslu. Síðar kenndi hann við Menntaskólann á Egilsstöðum og á Hvanneyri í Borgarfirði. Árin fyrir austan voru Hermanni dýr- mæt. Þar kom hann að mörgum þáttum mannlífsins, svo sem leik- list, dansi, var rótari, í pólitík og slysavarnamálum. Hann var framkvæmdastjóri ÚÍA og síðar formaður í allmörg ár. Hermann var öflugur bandamaður um efl- ingu almenningsíþrótta og sat í trimmnefnd ÍSÍ. Hann stóð fyrir fjölda námskeiða og málþinga um íþróttir, heilsueflingu og næring- arfræði, auk námskeiða í skyndi- hjálp. Heim á Ísafjörð kom hann um aldamótin og hóf kennslu við MÍ. Það var mikill fengur að fá hann heim. Hermann kom af krafti inn í starf íþróttahreyfing- arinnar og tók við stjórnartaum- um síns gamla félags Knatt- spyrnufélagsins Harðar, og efldi það svo eftir var tekið. Hann gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir HSV og leiddi okkar ferð á fyrsta landsmót HSV á Egilsstöð- um þar sem við áttum nær 140 keppendur og starfsmenn skráða til leiks. Glímu hefur Hermann endurreist til vegs og virðingar hér á Ísafirði sem og á landinu öllu, með aukinni aðsókn barna og unglinga til iðkunar íþróttarinnar. Hann endurvakti keppni um Vest- firðingabeltið, einn elsta verð- launagrip á Íslandi og stóð fyrir því að gerður yrði sambærilegur verðlaunagripur til keppni í kvennaflokki. Keppt var um hann í fyrsta sinn á nýliðnu vori og nefn- ist hann Vestfirðingamenið. Her- mann var mikill áhugamaður um kvikmyndagerð og eftir hann liggja athyglisverðar myndir eins og „leiðin til afreka “ og störf ung- liðasveita björgunarsveitanna svo eitthvað sé nefnt. Nú í desember fengum við að sjá þessar myndir í Ísafjarðarbíói að viðstöddum Her- manni og með hans formála. Það var einstök stund. Hermann hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín á sviði íþróttamála og er vel að þeim kominn. Hann hefur gefið okkur gjöf – gjöf sem ekki mun gleymast um ókomna tíð. Félagar og vinir í Knatt- spyrnufélaginu Herði senda að- standendum Hermanns okkar dýpstu samúðarkveðjur. Marinó Hákonarson.  Fleiri minningargreinar um Hermann Níelsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.