Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015
Ný tónleikaröð
hefur göngu
sína í Mengi á
Óðinsgötu 2 í
kvöld. Fyrir röð-
inni stendur
Bedroom Comm-
unity og verður
hún á dagskrá
annan hvern
mánuð. Á fyrstu
tónleikum raðarinnar í kvöld kl.
21 koma fram Valgeir Sigurðsson
og Liam Byrne, en þeir hyggjast
flytja efni af væntanlegri plötu
sem út kemur síðar á árinu.
Öllum tónleikum raðarinnar
verður varpað beint frá Mengi til
fylgjenda Bedroom Community á
tónlistarveitunni Drip.fm. Einnig
verður hægt að spjalla við lista-
men útgáfunnar á Google hangout
í gegnum Drip, en fyrstir í röðinni
verða James McVinnie í mars,
Nico Muhly í maí og Valgeir Sig-
urðsson í júlí. Fylgjendur Bedro-
om Community á Drip.fm fá m.a.
þrjár rafrænar útgáfur í hverjum
mánuði.
Miðaverð er 2.000 krónur og
eru miðar seldir við innganginn.
Valgeir Sigurðsson
Bedroom Comm-
unity í Mengi
Frá myrkri til ljóss er yfirskrift
annarra tónleika í tónleikaröðinni,
Konsert með kaffinu sem haldnir
verða í Hannesarholti á morgun kl.
15. Þar munu Anna Jónsdóttir sópr-
an og Sophie Schoonjans hörpuleik-
ari leiða áhorfendur með tónum og
textum, úr myrkrinu yfir í birtuna,
frá þunga í léttleika og frá sorg í
gleði.
„Byrjað er á íslenskum lögum
þar sem þjóðlög eru áberandi með
sinn dimma og kyrrláta anda. Síðan
koma þýsk og frönsk lög sem hafa í
sér bæði ljós og myrkur. Að lokum
eru ensk og írsk lög sem bera með
sér andblæ vorsins og ljóssins,“ seg-
ir m.a. í tilkynningu. Miðar eru
seldir við innganginn.
Dúó Sophie Schoonjans og Anna Jóns-
dóttir koma fram í Hannesarholti.
Frá myrkri til ljóss
AF SÓNAR
Anna M. Björnsson
amb@mbl.is
Það fyrsta sem bar fyrir augu áSónar Reykjavík-hátíðinniþegar ég mætti þangað
snemma kvölds var ung stúlka að
kasta upp fyrir utan dansandi ljósin
í glervegg Hörpu.
Ég bjóst við að þetta upphafs-
kvöld tónlistarveislunnar miklu
myndi byrja í rólegri kantinum en
sú var ekki raunin. Andrúmsloftið
var spennuþrungið og talsvert um
læti og fyrst fékk ég á tilfinninguna
að flestir gestirnir væru um tvítugt
og hefðu hlakkað svo til að mæta á
Sónar að þeir hefðu verið í fyrir-
partíi skólaballs með flösku af
landa. Stúlkurnar voru allar með
gimstein límdan á milli augnanna,
svona feik indversk „bindí“, greini-
lega aðalmálið í teknóheimum.
Yngstu gestirnir blönduðust
skemmtilega við erlenda gesti,
steratröll og eldri raftónlistarspek-
inga á annarri hæð Hörpu þar sem
nýtt svið, SónarPub, blasti við í
Hörpuhorninu. Þetta svið var mjög
vel til fundið hjá Sónar-fólki og ein
besta nýting á þessu fallega rými
við glervegg Ólafs Elíassonar sem
ég hef séð til þessa. Þetta gerði það
að verkum að um leið og maður
gekk upp himnastiga Hörpu gekk
maður inn í dansandi heim teknó-
tónlistarinnar og mér leið á ákveðn-
um tíma eins og allt tónlistarhúsið
hefði breyst í klúbb.
En Harpa er ekki sveittur teknó-
klúbbur, hún er listaverk, og því
öðlast öll sú raftónlist og spuni
plötusnúða nýtt og jafnvel dálítið
æðra gildi þegar þeir hefja flutning
sinn inni í rýmum hússins.
Tilraunataktar í Kaldalóni
Þess má geta að ljósin í glerhjúp
Hörpu dansa í takt við tónlistina í
Silfurbergi meðan á hátíðinni stend-
ur en tónlistin þar stýrir hraða og
styrk ljósanna. Þess á milli geta
gestir spilað hinn fornfræga PONG-
tölvuleik á glerhjúpnum með notk-
un snjallsíma. Því má með sanni
segja að húsið myndi hina full-
komnu umgjörð um framsækna, al-
þjóðlega tónlistarhátíð sem þessa
sem að þessu sinni hefur kjörorðin
tónlist, sköpun og tækni að leiðar-
ljósi.
Dagskráin í Kaldalóni, sem nefn-
ist Sónar Complex um þessa helgi,
heillaði mig en þar er á ferð til-
raunakenndari uppröðun en á öðr-
um sviðum hússins. Kaldalón var
svolítið eins og önnur veröld þegar
Jón Ólafsson og Futuregrapher
slógu saman í gigg. Falleg og seið-
andi tónlist sem hefði sómt sér vel í
melankólískri evrópskri kvikmynd.
Íslenska raf tvíeykið Mankan tók
við næst. Interaktívt myndbands-
verkið fyrir aftan þá kallaðist
skemmtilega á við hljóðheiminn en
þeir virtust leika sér með sömpl og
spuna og leyfa hljóðunum að verða
til í rýminu út frá innsæi.
Dansvæn lyftutónlist
Samaris steig á svið klukkan hálf-
ellefu í Silfurbergi og byrjaði settið
sitt strax með dansandi takti. Þessi
frábæra íslenska sveit hefur magn-
aða sviðsveru og það var gaman að
bera saman þessa Sónar-tónleika og
síðustu tónleika sem ég sá með
sveitinni á Airwaves. Í fyrravöld
breyttist Samaris í miklu meiri
danshljómsveit þar sem elektrón-
ískar tónsmíðar Þórðar Kára Stein-
þórssonar nutu sín til fulls. Það er
skemmtilegt þegar hljómsveitir
geta sýnt á sér aðeins aðrar hliðar
eftir því hvar þær koma fram.
Hápunktur dagskrárinnar á
fimmtudagskvöldinu var án efa
Norsarinn Todd Terje en að eigin
sögn spilar hann „góða lyftutónlist
sem hægt er að dansa við“. Terje
skapaði ofurhressa veröld í Silfur-
bergi, einhverskonar sixtíslegan,
exótískan, kokkteilpartí-, lounge-
sörfheim þar sem allir eru glaðir og
dansa. Þessi heimur Terjes er af-
slappaður og hann virðist ekki þurfa
að taka sig of alvarlega eða reyna
að búa til einhverja magnþrungna
meiningu á bak við tónlist sem er,
eftir allt saman, tónlist til að dansa
við.
Teknóprinsessur og dansandi glerhjúpur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sörfheimur Todd Terje bjó til sixtíslegan, exótískan, kokkteilpartí-, lounge-sörfheim.
Mankan Myndbandsverkið kallaðist skemmtilega á við hljóðheiminn.
Sæla Gestir stigu alsælir dans á tónleikum
hins norska Todd Terje.
»Hápunktur dag-skrárinnar á fimmtu-
dagskvöldinu var án efa
Norsarinn Todd Terje
en að eigin sögn spilar
hann „góða lyftutónlist
sem hægt er að dansa
við“.
48
RAMMA
E.F.I -MBL
Spenna, hasar og ótrúlegar
tæknibrellur í frábærri ævintýra-
mynd með stórleikurunum Jeff
Bridges og Julianne Moore
2 VIKUR
Á TOPPNUM!
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS
- bara lúxus