Morgunblaðið - 23.02.2015, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 3. F E B R Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 45. tölublað 103. árgangur
„EKKERT RIT HEFUR
HAFT JAFN MIKIL
ÁHRIF Á MIG“ ÓÞARFA OFFARSI
„ÁFRAM MARG-
BROTIN KVEN-
HLUTVERK“
LEIKFÉLAG KÓPAVOGS 10 HVATNINGARORÐ HERU Á EDDUNNI 36ÁHRIFASAGA SALTARANS 34
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ófærð Víða var ófært á Suðurlandi
og veginum um Hellisheiði lokað.
Vonskuveður var um allt land í gær
og sums staðar glórulaust, sérstak-
lega á Suðausturlandi. Lokað var fyr-
ir alla umferð undir Eyjafjöllum að
Vík og frá Skaftafelli að Kvískerjum
vegna veðursins. Bílar fóru á hliðina
undir Eyjafjöllum og brotnuðu rúður
á bæjum og í bílum. Þá þurftu björg-
unarsveitir að sinna útköllum sem
sneru að lausum þakplötum.
Talsverðar tafir urðu á samgöng-
um og fugi til Ísafjarðar og Egils-
staða var aflýst um kvöldið. Hellis-
heiði, Sandskeiði og Þrengslum var
lokað. Gert er ráð fyrir að innan-
landsflug verði samkvæmt áætlun í
dag.
Verst var veðrið á Suðausturlandi í
gær, þar sem meðalvindur var 28
m/s. Rafmagnslaust varð í Vík þar
sem rafmagnslína bilaði en vararafall
tryggði bænum rafmagn. Einnig
slitnaði rafmagnslína frá Vík í Mýr-
dalinn og var því hvorki upphitun þar
né símasamband í gærkvöldi.
Vonskuveður verður á austan-
verðu landinu í dag og samkvæmt
upplýsingum hjá Veðurstofu verður
ferðaveður mjög slæmt þar. Vind-
hviður á svæðinu munu fara upp í 28
m/s. Annars staðar lægir en þó verð-
ur stíf norðanátt með 10-15 m/s víð-
ast hvar um land en úrkomulaust. »2
Vonskuveð-
ur og víða
glórulaust
Bílar fóru á hliðina
og þakplötur fuku
Ný úttekt Capacent
» 3,1 fermetri af matvöru-
verslunarrými er á hvern íbúa
samkvæmt nýrri úttekt Capa-
cent.
» Samkvæmt skýrslu McKin-
sey frá árinu 2012 er 4,1 fer-
metri af verslunarrými á hvern
íbúa.
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
„Iðulega, ekki síst í pólitískri um-
ræðu, höfum við þurft að sæta að okk-
ar mati ósanngjörnum ásökunum um
óhagkvæmni verslunar á Íslandi hvað
varðar fermetrafjölda,“ segir Andrés
Magnússon, framkvæmdastjóri Sam-
taka verslunar og þjónustu. Samtökin
létu Capacent gera úttekt á stærð
verslunarrýmis á Íslandi og eru nið-
urstöðurnar aðrar en í skýrslu ráð-
gjafafyrirtækisins McKinsey sem
fyrirtækið gaf út
um Ísland 2012.
Í skýrslu
McKinsey kom
fram að verslun-
arfermetrar á
hvern íbúa á land-
inu séu 4,1. Í út-
tekt Capacent,
sem aðeins tók til
matvöruverslana,
kemur fram að verslunarfermetrar
séu tæplega 3,1 á hvern íbúa hér á
landi, samanborið við Noreg þar sem
talan er tæplega 4,9. Þar er meðal-
stærð matvöruverslana 671 fermetri
en hér er hún 618.
Andrés veltir því upp hvort röng
skráning verslunarhúsnæðis í þjóð-
skrá geti skýrt skekkjuna á milli út-
tektar Capacent og skýrslu McKin-
sey. „Án þess að geta fullyrt það, þá
getur það verið skráningin sem er
skýringin og gerir það að verkum að
tölurnar eru ekki samanburðarhæfar
á milli landa,“ segir Andrés.
Rýmið minna en talið var
Úttekt bendir til þess að verslunarrými á Íslandi sé minna en áður var talið
Röng skráning gæti verið ástæðan Mun minna en í Noregi, skv. nýrri könnun
Andrés Magnússon
MÁsakanir verið ósanngjarnar »4
Erfiðar aðstæður voru í gær til leitar að konu á fer-
tugsaldri við Mýrdalsjökul að sögn Svans Sævars
Lárussonar, formanns Flugbjörgunarsveitarinnar á
Hellu. „Þetta þokast, en alveg ofboðslega hægt,“ sagði
Svanur í gærkvöldi. Þremur snjóbílum, sem voru á leið
inn Fljótshlíðina til leitar að konunni miðaði afar hægt
vegna veðurs og í ljósi aðstæðna á svæðinu þótti ekki
forsvaranlegt að senda vélsleða til leitar.
Konan sem er á fertugsaldri hugðist fara á göngu-
skíðum í kringum jökulinn og lagði af stað á þriðjudag.
Hún er búin SPOT-tæki en síðustu boð frá henni bárust
á föstudag. Konan er sögð vera vön ferðlögum og erfið-
um aðstæðum og er vel búin. Jónas Guðmundsson,
verkefnastjóri slysavarna ferðamanna hjá Landsbjörg,
segir hana hafa skilað inn ferðaáætlun og ítarlegri
ferðalýsingu hjá vinafólki sínu. „SPOT-tækið, sem hún
hefur með sér segir okkur hvar hún var þegar síðustu
skilaboð voru send úr því á föstudag en það segir ekk-
ert til um það hvar hún er í dag. Það hjálpar hins vegar
við leitina að hafa ferðaáætlun hennar.“
Gífurleg aukning er á hálendisferðum á þessum árs-
tíma, en Jón segir um 30 til 50 erlenda ferðamenn vera
í göngu- eða gönguskíðaferðum á hálendinu á þessum
tíma. „Það er 100% aukning á ferðaáætlunum sem við
fáum sendar inn milli ára og ég myndi ætla að það
væru 20 til 40 erlendir ferðamenn að meðaltali á hverj-
um degi að ferðast fótgangandi eða á skíðum um og yf-
ir hálendið á þessum árstíma.“
Kljást við erfiðar aðstæður
í grennd við Mýrdalsjökul
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Á vaktinni Svanur Sævar Lárusson, formaður Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu, Bjarni Arnþórsson, bílstjóri
snjóbíla hjá sveitinni, og Þorsteinn Jónsson, formaður Dagrenningar á Hvolsvelli, meta aðstæður í stjórnstöð.
Stefnt er að því
að flokkun og
endurvinnsla á
dósum og flösk-
um verði einn
stærsti tekju-
stofn skátahreyf-
ingarinnar. Þetta
segir Bendt H.
Bendtsen, verk-
efnastjóri
Grænna skáta í Árbæjarhverfi.
Rætt er við hann í blaðinu í dag í
greinaflokknum Heimsókn á höfuð-
borgarsvæðið. Ennfremur er sagt
frá uppbyggingu íbúðahverfa í
Norðlingaholti og starfsemi í Ár-
bæjarsafni. »16-17
Endurvinnsla
verði helsti
tekjustofn skáta
Á síðasta stjórn-
arfundi Faxa-
flóahafna var
lögð fram grein-
argerð um skipa-
verkstöð á
Grundartanga,
sem yrði blanda
af þurrkví og
dráttarbraut.
„Skipaverkstöðin
er eitthvað sem við höfum verið að
skoða fyrir framtíðina. Skýrslan
sem var tekin saman rammar svo-
lítið inn okkar hugmyndir og það
er áhugi hjá mönnum að athuga
hvort ekki sé hægt að ráðast í það
verkefni. Það eru margir sprotar
að koma í ljós á svæðinu sem geta
verið okkur dýrmætir til lengri
tíma,“ segir Gísli Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Faxaflóahafna.
Fyrir helgi festi Eimskip kaup á
þremur lóðum á Grundartanga og
hefur í huga frekari uppbyggingu
á svæðinu. „Þessi áhugi á svæðinu
er í takt við það sem við höfum
verið að byggja upp hægt og bít-
andi síðustu tíu árin,“ segir Gísli
en fyrir helgi festi Eimskip kaup á
þremur lóðum á Grundartanga og
hefur í huga uppbyggingu á svæð-
inu.
Sterkir innviðir og gott land
Spurður hvað það sé sem veki
áhuga fyrirtækja á Grundartanga
segir Gísli það vera innviðina. „Þar
eru gríðarlega sterkir innviðir sem
atvinnu- og athafnasvæði þarf að
hafa og gera svæðið mjög álitlegt.
Þarna er gott land til að byggja á
og síðan er hafnargerðin tiltölulega
einföld og aðstæður við höfnina
góðar. Síðan er það líka sú stað-
reynd að þetta er einn sterkasti
afhendingarpunktur á rafmagni á
landinu og nálægðin við önnur
fyrirtæki,“ segir Gísli. bmo@mbl.is
Bygging
slipps til
skoðunar
Uppbygging á
Grundartanga
Gísli Gíslason