Morgunblaðið - 25.02.2015, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 5. F E B R Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 47. tölublað 103. árgangur
SAMVERA
MEÐ BÖRNUM
ER DÝRMÆT
„EINS OG
AÐ VINNA Í
HAPPDRÆTTI“
NEÐANJARÐARMANN-
VIRKI UNDIR
KRINGLUMÝRARBRAUT
HEIÐURSGESTIR
STOCKFISH 38 BOLHOLTSSTÖÐIN 20STANDA SAMAN AÐ VEFSÍÐU 10
FORTE
blanda meltingargerla
MÚLTIDOPHILUS
þarmaflóran
hitaþolin
www.gulimidinn.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mjólkursamsalan og Matís vinna að
rannsókn á möguleikum þess að
breyta mysu í vín, framleiða etanól
úr mjólkursykurvatni sem er auka-
afurð við ostaframleiðslu.
Mikið fellur til af mysu við osta-
gerð, ekki síst í stóru ostagerðar-
búunum á Norðurlandi. Úr henni er
búið til mysupróteinþykkni sem
notað er til framleiðslu á prótein-
drykknum Hleðslu og einnig endur-
nýtt til ostagerðar. Við þessa
vinnslu fellur til aukaafurð sem
kölluð er mjólkursykurvatn og
vantar hlutverk fyrir, að sögn
Björns S. Gunnarssonar, vöruþró-
unarstjóra MS.
Mjólkursykurvatnið er hægt að
gerja og eima og búa til etanól sem
getur verið grunnur í áfengi, elds-
neyti og vörur til iðnaðar. Rann-
sóknarverkefni MS og Matís geng-
ur út á að finna hagkvæmustu leiðir
til að nýta þetta hráefni. Sérstak-
lega er hugsað til áfengis. Mjólkur-
vodki er til dæmis þekkt afurð í
þeim löndum sem hafa náð tökum á
að nýta mysu í þessum tilgangi.
Einhverjir eiginleikar mjólkur-
innar koma þá fram í áfenga
drykknum. »24
Ætla að
breyta
mysu í vín
Verðmætar afurð-
ir úr mjólkursykri
Morgunblaðið/Ómar
Ostur Mysa fellur til við ostagerð.
Vegna mikillar hækkunar á húsnæð-
isverði í miðborg Reykjavíkur munu
ódýrir gististaðir færast í úthverfin
þar sem húsnæðiskostnaður er
lægri.
Þetta er skoðun Bjargar Jóns-
dóttur, rekstrarstjóra KEX hostel,
sem segir að vart yrði ráðist í jafn
kostnaðarsamar endurbætur á hús-
næði til að opna stað á borð við KEX
í miðborginni í dag. Húsnæði hafi
enda hækkað svo mikið á svæðinu.
„Það er ljóst að slík gisting mun
færast frá miðbænum og þessum
kjarna sem er að verða dýrastur.
Staðir sem bjóða upp á góðar al-
menningssamgöngur koma þar til
greina. Það er til dæmis hægt að
taka strætó númer 15 upp í Mos-
fellsbæ og sækja þangað gistingu.
Ég gæti trúað því að ódýrasta
gistingin færi til dæmis að færast
inn í Skeifuna í Reykjavík, eða til
staða þar sem eru þjónustukjarnar
en hægt að finna ódýrt húsnæði,“
segir Björg. »6
Spáir því að ódýrari gisti-
staðir færist í úthverfin
Reiknað er með því að frysting loðnuhrogna
hefjist almennt á næstu dögum, en hrognin eru
verðmætasta afurð loðnunnar. Reyndar var til
skoðunar hjá HB Granda á Akranesi í gær að
frysta eitthvað af hrognum úr afla Faxa RE, en
verið var að landa úr skipinu. Loðnuvertíðin er
að ná hámarki og þrátt fyrir vonskuveður hafa
skipin getað athafnað sig á milli og þá mokveitt.
Handagangur hefur verið í öskjunni þegar skip-
in hafa komið inn til löndunar, enda hver dagur
dýrmætur. Myndin er tekin í Eyjum í gær þegar
landað var úr Júpiter ÞH og Sigurði VE. »16
Vertíðin að ná hámarki og hrognafrysting að hefjast
Ljósmynd/Páll Scheving Ingvarsson
Met var slegið í sölu á heitu vatni
frá Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í
janúarmánuði sl. þegar viðskipta-
vinir fyrirtækisins á höfuðborgar-
svæðinu notuðu alls 9.660 þúsund
rúmmetra, eða nærri 9,7 milljónir
tonna. Fyrra metið var 9.631 þús-
und rúmmetrar í desember árið
2013. Notkunin í febrúar hefur
verið mikil en ólíklegt að met
verði slegið þar sem mánuðurinn
er þremur dögum styttri en jan-
úar. Kannanir Orkuveitunnar
hafa sýnt að um 90% af heita
vatninu eru notuð til kyndingar.
»6
Metsala hjá OR á heitu
vatni í janúarmánuði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kuldatíð Orkuveitan seldi vel af
heita vatninu í janúarmánuði.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Í mati á hryðjuverkahættu hér á
landi sem greiningardeild Ríkislög-
reglustjóra sendi frá sér í gær kem-
ur fram að lögreglan búi yfir upplýs-
ingum um að vígamenn frá
Norður-Ameríku hafi farið um Ís-
land á leið til eða frá þátttöku í bar-
dögum í Mið-Austurlöndum í nafni
Ríkis íslams. Óvissa um hryðju-
verkaógn á Íslandi fer vaxandi sam-
kvæmt mati greiningardeildarinnar
og hefur hættustig vegna hryðju-
verkaárása verið fært af lágu stigi í
meðalstig. Það þýðir að ekki sé hægt
að útiloka hættu á hryðjuverkum
vegna ástands innanlands eða í
heimsmálum.
Í skýrslunni kemur meðal annars
fram að lögreglan viti um einstak-
linga hér á landi sem lögreglan telji
hættulega samfélaginu. Viðkomandi
búi bæði yfir löngun og getu til að
fremja voðaverk.
„Ég er nýbúinn að fá þessa
skýrslu í hendurnar og nú þurfum
við að fara yfir hana því það þarf að
gæta að öryggi borgaranna fyrst og
fremst og um leið að tryggja frelsi
þeirra,“ sagði Ólöf Nordal innanrík-
isráðherra í samtali við Morgunblað-
ið í gærkvöldi.
Í matinu segir að óvissa fari vax-
andi. Sú staða kunni að skapast að
nauðsynlegt verði að hækka vástig/
viðbúnaðarstig lögreglu snögglega.
Vígamenn fóru um Ísland
Hættustig vegna hryðjuverkaárása fært upp um eitt stig í nýju hættumati Rík-
islögreglustjóra Innanríkisráðherra segir að gæta verði að öryggi borgaranna
MHryðjuverkaógnin eykst »4