Morgunblaðið - 28.02.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.02.2015, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 8. F E B R Ú A R 2 0 1 5 Stofnað 1913  50. tölublað  103. árgangur  LEIKRITIÐ ANNAR TENÓR FRUMSÝNT KARAKTER- BRAGÐ AF KJÖTINU HOLDANAUT 10FRAMHALDSVERK 54 Morgunblaðið/RAX Hjón Erlingur Erlingsson og Caitlin Hay- den gengu í hjónaband á Íslandi í fyrra.  „Þetta var ótrúlegur tími og mik- il forréttindi fyrir mig að fá tæki- færi til að gegna þessu starfi. Ég fékk gæsahúð í hvert skipti sem ég gekk inn um hlið Hvíta hússins. Þetta er mjög erilsamt starf og langtímum saman var ég hlekkjuð við skrifborðið mitt, ef svo má að orði komast. Og þegar ég var heima var ég í símanum, að fást við atburði í Íran, Sómalíu eða annars staðar. Erlingur sýndi þessu alveg ótrúlegan skilning. Við höfðum lít- inn sem engan tíma fyrir okkur,“ segir Caitlin Hayden, fyrrverandi talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, en hún er stödd hér á landi ásamt eiginmanni sínum, Erlingi Erlingssyni sendiráðunaut. Rætt er við þau í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins en Caitlin kynntist Barack Obama forseta ágætlega. Gæsahúð í hvert skipti sem hún kom í Hvíta húsið Hefur stækkað kökuna » Helga Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, segir útleigu íbúða auka framboð á gistingu. » Slík útleiga hafi stækkað kökuna, einkum yfir háönn. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Framboð gistirýma í Reykjavík og ná- grenni á gistivefnum airbnb var 137% meira í janúar en í sama mánuði í fyrra og voru alls 1.300 rými í boði. Aukn- ingin á landinu öllu var 133% og voru gistirýmin alls 1.500. Samkvæmt upplýsingum frá air- bnb.com má ætla að um 30% gistirýma séu herbergi, 70% íbúðir eða hús. Even Heggernes, framkvæmdastjóri airbnb.com á Norðurlöndum, segir hlutfall notenda síðunnar af íbúafjölda á Íslandi mjög hátt eða um 5%. Skv. því eru notendur hér um 17.000. Slík útleiga er hluti af deilihagkerfi sem er að skjóta hér rótum og segir Þorvarður Sveinsson, sviðsstjóri hjá Vodafone, næstu netbyltingu munu stórauka vöruskipti fólks. Birgir Þór Halldórsson forritari stofnaði vefinn samferða.net árið 2005 og hafa síðan yfir 71.500 bílferðir verið skipulagðar í gegnum vefinn. „Ég hef mikla trú á því að fólk vilji draga úr neyslu sinni. Það virðist óskynsamlegt að vera einn í bíl á leið til Akureyrar þegar hægt er að deila ferðinni með þremur farþegum.“ MHeimskreppan ól af sér »24 Framboð ríflega tvöfaldast  Sprenging í útleigu íbúða til ferðamanna milli ára  137% aukning í Reykjavík  Hluti af deilihagkerfinu  Yfir 70 þúsund bílferðir skipulagðar á deilivefsíðu Arðgreiðslur Lands- bankans í ríkissjóð 2015 Heimildir: Fjárlagafrumvarp 2015, Landsbankinn Áætlun Raun 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 millj.kr. 23.500 6.931 Arður sem rennur til ríkissjóðs af starfsemi Landsbankans vegna rekstrarársins 2014 verður 240% hærri en gert var ráð fyrir í fjár- lögum sem samþykkt voru á Alþingi 16. desember síðastliðinn. Frum- varpið gerði ráð fyrir 6,9 milljarða króna arðgreiðslu frá bankanum en stjórn hans hefur nú lagt til að greiddir verði út 24 milljarðar til eig- enda. Ríkissjóður á 97,9% af hlutafé bankans.Vanáætlun frumvarpsins nemur því 16.600 milljónum króna. Er þetta annað árið í röð sem fjárlög vanáætla arðgreiðslur af hendi Landsbankans því í fyrra greiddi bankinn ríkissjóði 19.740 milljónir en fjárlög höfðu gert ráð fyrir 6.000 milljóna heildararðgreiðslu af eign sinni í viðskiptabönkunum þremur. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, fagnar arðgreiðslutillögu stjórnar Lands- bankans. „Sömuleiðis fagna ég hin- um varfærnu áætlunum sem fram koma í fjárlagafrumvörpum síðustu tveggja ára. Ég er hlynnt því að menn sýni varkárni og komi í veg fyrir að tekjur ríkissjóðs séu ofáætl- aðar.“ »26 Staða ríkissjóðs batnar  Arðgreiðsla Landsbankans 16,6 milljarðar umfram fjárlög Veðrið í Reykjavík hefur ekki verið árennilegt undanfarna daga og hver lægðin birst á fætur annarri. Vinkonurnar Þórkatla og Helena létu það ekki á sig fá í gær og klifruðu í trjánum líkt og vinsælt er að gera á sumrin. Þær minna okk- ur á að kannski er vorið ekki langt undan. Kattfimir krakkar boða vor í lofti við Langholtsskóla Morgunblaðið/Golli Þrátt fyrir slæmt veður á undanförnum dögum er vorið handan við hornið  Fullorðnir ein- staklingar, sem ekki hafa verið bólusettir gegn mislingum eða eru í óvissu um það, geta farið á næstu heilsu- gæslustöð og óskað eftir bólu- setningu. Sérstaklega er mælt með að fólk láti bólusetja sig sé það á leið þangað sem vitað er að mislingar hafi komið upp. Annars er ekki þörf á bólusetningu. »24 Fólk getur fengið mislingasprautu Bólusetning Fæst hjá heilsugæslunni.  Fleiri tíundubekkingar hafa próf- að að reykja rafsígarettur en venju- legar sígarettur. Þetta kemur fram í nýrri könnun Rannsókna og grein- inga við Háskólann í Reykjavík. 17,1% tíundubekkinga hafa prófað rafsígarettur en 15% sögðust hafa prófað að reykja venjulegar sígar- ettur. Þetta er í fyrsta sinn sem Rannsóknir og greiningar spyrja um notkun rafsígaretta í könnun sinni á vímuefnanotkun ungmenna. Í ár var einnig spurt um svokall- að tóbakslíki í fyrsta sinn og sögð- ust 9% tíundubekkinga hafa notað það einhvern tímann um ævina, en 5% níundubekkinga og 2,6% áttundubekkinga. Alls tóku 10.440 ungmenni í efstu bekkjum grunn- skóla þátt í könnuninni. Að sögn Jóns Sigfússonar, fram- kvæmdastjóra Rannsókna og greininga, hefur dregið úr vímu- efnaneyslu ungmenna ár frá ári síðustu ár. Mjög hefur dregið úr munntób- aksnotkun, hún mældist nú 10% hjá drengjum í 10. bekk en var 31% árið 2003. »6 Fleiri tíundubekkingar hafa prófað rafrettur en venjulegar sígarettur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.