Morgunblaðið - 27.02.2015, Blaðsíða 51
FRÉTTIR 51Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
Hjá Parka færðu flottar flísar í hæsta gæða-
flokki frá þekktum ítölskum framleiðendum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Dalvegi 10-14 • Kópavogi
Full búð af
flottum flísum
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég sakna þess mest frá togaraár-
unum að vera með gömlu félögun-
um í borðsalnum og heyra þá segja
frá. Þetta voru miklir sögumenn
og sögðu mest gamansögur af sér
og skipsfélögum sínum. Svona
sögumenn hittir maður ekki leng-
ur, þetta fór að breytast upp úr
1960,“ segir Lúkas Kárason sjó-
maður þegar blaðamaður hlustaði
á hann og nokkra gamla skips-
félaga af togaranum Aski RE 33 í
eins konar bryggjuspjalli í Sjó-
minjasafninu Vík.
Félagarnir voru saman á Aski á
árunum 1958 til 1960 og hafa kom-
ið nokkrum sinnum saman til að
ræða um gamla, góða daga. Alls
voru um 30 menn í áhöfn, margir
ungir og frískir strákar í bland
með eldri og reyndari mönnum.
Meirihluti félaganna er látinn en
níu þeirra halda enn sambandi þótt
56 ár séu liðin frá því þeir voru
saman á Aski. Nokkrir þeirra fóru
með Guðna skipstjóra þegar hann
tók við togaranum Frey sumarið
1960. Margt hefur drifið á daga
þeirra síðan og vegir þeirra legið
um mismunandi slóðir.
Eitt sinn var Askur á heimleið
með fullfermi og fréttist þá af
mokveiði hjá togurunum. Þá gall í
Valla graða: „Þetta er meira and-
skotans óstuðið á okkur og við ekki
á veiðum.“
„Bindið hann“
Markús Alexandersson segir
sögu af Tomma stút. Lestir voru
orðnar fullar og karlinn ákvað að
taka eitt hal til viðbótar. Tommi
fór þá að stilla upp á dekkinu til að
taka við væntanlegum afla. Guðni
skipstjóri var hjátrúarfullur eins
og margir til sjós og fannst það
ekki viðeigandi enda vissi enginn
hvað kæmi í trollið. Tommi var
kappsfullur og hélt áfram. Kallinn
öskraði út um brúargluggann:
„Bindið hann Tomma.“ Trollið
reyndist barmafullt af fiski, yfir 20
tonn, og þá var ekki annað til ráða
en að bíða á meðan stillt var upp.
Það tók sinn tíma og látið reka
með trollið á síðunni. Tómas var
ekki vanur að láta stoppa sig af og
því sendi hann skipstjóranum og
fleirum ögrandi bros á meðan stillt
var upp, eins og hann hafði viljað
gera strax.
Guðmundur Ásgeirsson segir að
netamennirnir hafi verið lykillinn
að góðum árangri á karfaveiðum
við Austur-Grænland á þessum
tíma. Þar var oft mikið rifrildi.
Stjórnborðs- og bakborðstrollin
brúarglugganum var skellt aftur.
Í annað sinn kom níðþungur
bobbingur úr pokanum. Tommi
stútur reyndi að koma honum út-
byrðis en hreyfði varla enda var
stálið fullt af sjó. Lúkas segist hafa
séð hvar lak úr og eftir matinn
sagði hann við Tómas: „Hvað, ætl-
ið þið ekkert að gera í þessu?“,
rykkti bobbingnum og náði að
koma honum út fyrir lunninguna
enda vatnið að mestu farið. „Ég
vissi alltaf hvað Lúkas er sterkur,“
sagði Tommi, heldur stúrinn yfir
því að hafa orðið að gefast upp.
„Ertu að bíða eftir
endurkomu Krists?“
„Voruð þið ekki með þegar Keli
var nýbyrjaður 16 ára gamall?“
segir Guðmundur og víst mundu
félagar hans eftir því. Frændi
skipstjórans var í sínum fyrsta túr.
Í mikilli brælu, kolniðamyrkri og
veltingi og auk þess hálf sjóveikur
stóð hann á dekkinu framan við
brúna og átti fullt í fangi með
sjálfan sig og hélt sér því fast.
Brúarglugginn opnaðist og Guðni
kallaði: „Hrafnkell, hjálpaðu
mönnunum, maður.“ Keli færði sig
tvo metra fram en hélt sér áfram
með báðum höndum. Aftur opn-
aðist glugginn og nú gargaði skip-
stjórinn á frænda sinn: „Hjálpaðu
mönnunum, Hrafnkell, ertu að
bíða eftir endurkomu Krists, eða
hvað?“
Saknar enn sögumannanna
Gamlir félagar af togaranum Aski RE 33 hittast til að skiptast á sögum Tommi stútur, Valli
graði og „karlinn“ í brúarglugganum koma mikið við sögu í samræðum þeirra á Víkinni
Morgunblaðið/Golli
Skipstjórinn Ljósmynd af Guðna Sigurðssyni er í öndvegi þegar félagarnir hittast í kaffi. Ekki er
þó víst að Lúkas Kárason, Guðmundur Ásgeirsson og Eggert Gíslason séu að hlæja á kostnað hans.
hafi farið út til skiptis og ekkert
verið að tjasla í heldur trollið tekið
strax í viðgerð. Netamennir fóru
ekki í fisk heilu túrana. Segir Guð-
mundur að ýmsar aðrar útgerðir
hafi átt erfitt með að manna skipin
og verið án netamanna. Því hafi
þeir oft þurft að láta reka vegna
trollviðgerða.
Eitt sinn þegar trollið var tekið
með blönduðum afla kom stærsta
gerð af skötu í síðasta pokanum.
Ruslfiski var oftast hent í upphafi
túra. Um sama leyti og skatan
kom úr pokanum kom Guðni skip-
stjóri upp í brú og öskraði: „Nú
hirðum við allan fisk“. Tommi stút-
ur heyrði mjög illa og spurði hvað
karlinn hefði verið að gelta. Guð-
mundur gat ekki setið á sér og
sagði að skipstjórinn hefði verið
spyrja hvað hann gæti hent stóru
skötunni langt. Tommi stútur
setti þá í herðarnar, réðst á hal-
ann og sveiflaði skötunni 30 til 40
metra út á sjó. „Tómas, ó, ó!,“
heyrðist þá úr brúnni um leið og
Morgunblaðið/Golli
Manst þú eftir þessari? Markús Alexandersson, Valur Gunnarsson, Jón Hjaltason, Lúkas
Kárason og Guðmundur Ásgeirsson skemmta sér í kaffispjalli.
Askur var nýsköpunartogari, smíð-
aður í Skotlandi og kom til landsins
1947. Upphaflega var hann í eigu
samnefnds hlutafélags sem var
tengt Kveldúlfi og síðar gerður út
af Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
unni Kletti. Þegar þeir félagarnir
voru um borð fiskaði hann mest
karfa fyrir frystihúsin í Reykjavík.
Mikið var sótt á miðin við Austur-
Grænland og Nýfundnaland. Guðni
Sigurðsson skipstjóri var mikill
aflamaður. Þeir fiskuðu oft vel,
fylltu lestarnar við Grænland eða
Nýfundnaland og bættu oft tugum
tonna á dekkið. Var Askur aflahæsti
togarinn þessi árin.
Skipið varð ekki gamalt því það
var selt til Belgíu til niðurrifs og
tekið af skrá 1969.
Aflahæsti togari landsins um 1960
NÝSKÖPUNARTOGARINN ASKUR RE 33 KOM TIL LANDSINS 1947
Ljósmynd/Íslensk skip
Togari Askur RE 33 var mikið aflaskip undir stjórn Guðna Sigurðssonar skipstjóra.