Morgunblaðið - 27.02.2015, Blaðsíða 60
60 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
84% tilvika flokkast sem gróft
eða mjög gróft kynferðislegt
ofbeldi.
Undirþrýstingur í miðeyra með vökva.
Eftir þrýstingsjöfnunmeðOtoventblöðru,
miðeyrað opið og engin vökvi.
Otovent meðferðin er til að létta á undirþrýsting
í miðeyra.
Getur fyrirbyggt og unnið á eyrnabólgu og vanlíðan
með því að tryggja að loftflæði og vökvi eigi greiða leið
frá miðeyra.
Meðferð getur dregið úr eyrnabólgum, sýklalyfjanotkun,
ástungumog rörísetningum. Læknar mæla með Otovent.
Klínískar rannsóknir sýna gagnsemi við lokun í miðeyra,
skertri heyrn eftir eyrnabólgur, óþægindum í eyrum við
flug, sundferðir eða köfun.
Otovent er einfalt og þægilegt fyrir börn og fullorðna.
Rannsóknir sýna góðan árangur. CE merkt.
Fæst í apótekum
Fyrsta hjálp til að
laga og fyrirbyggja
eyrnabólgur Viðurkennd meðferð
Umboð Celsus ehf
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Flottar
vorvörur
Str. 38-50
Kr. 15.900
kjóll
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Á fundi byggingafulltrúa Reykja-
víkurborgar á þriðjudag var tekin
fyrir fyrirspurn frá Knattspyrnu-
félaginu Val um það hvort leyft yrði
að byggja fjögurra hæða hús með
atvinnuhúsnæði á 1. hæð og þremur
íbúðarhæðum á lóð nr. 4 við Hlíð-
arenda. Afgreiðslu málsins var
frestað, samkvæmt fundargerð og
málinu vísað til umsagnar skipu-
lagsfulltrúa.
Brynjar Harðarson, fram-
kvæmdastjóri
Valsmanna ehf.
sagði í samtali
við Morgunblaðið
í gær, að þessi
byggingaráform
Knattspyrnu-
félagsins Vals
væru óviðkom-
andi bygging-
aráformum Vals-
manna ehf. á
öðrum reitum Hlíðarenda.
„Þessi reitur B er í eigu Knatt-
spyrnufélagsins Vals og því sendi
félagið inn þessa fyrirspurn. Þetta
er þó ekki þannig, að félagið sjálft
ætli að ráðast í byggingarfram-
kvæmdir á reitnum, heldur yrði það
mál í höndum Hlíðarenda SES,“
sagði Brynjar.
Kostar tæpa 1,6 milljarða
„Lóðin er á landi Vals og félagið
er með áform um að reisa þarna
4.500 fermetra hús, atvinnuhúsnæði
á neðstu hæðinni og þrjár íbúð-
arhæðir. Nú hafa þeir skilað inn
forteikningum og svo fer málið til
umhverfis- og skipulagssviðs og svo
framvegis,“ sagði Brynjar. Miðað
við að byggingarkostnaður á hvern
fermetra sé um 350 þúsund krónur,
væri kostnaðurinn við byggingu
Valsmanna 1,575 milljarðar króna.
Brynjar telur, að fái áform Vals-
manna jákvæða afgreiðslu í borg-
arkerfinu, geti framkvæmdirnar,
sem væntanlega verði stýrt af Hlíð-
arenda SES, hafist um svipað leyti
og framkvæmdir Valsmanna ehf. á
Hlíðarendareitnum. Framkvæmd-
irnar verði með öðrum orðum ekki í
höndum Knattspyrnufélagsins Vals.
Styðja Val og byggja upp
Sjálfseignarstofnunin Hlíðarendi
SES var stofnuð í september 2013
af Knattspyrnufélaginu Val og hef-
ur stofnunin þann tilgang að vernda
eignir knattspyrnufélagsins og
tryggja að þær séu ekki veðsettar
eða á einhvern hátt skuldsettar. Fer
stofnunin með hlutafjáreign Knatt-
spyrnufélagsins Vals í Valsmönnum
hf., líkt og fram kom í Morg-
unblaðinu í fyrra.
„Afraksturinn sem verður af
starfsemi sjálfseignarstofnunar-
innar Hlíðarendi er svo hugsaður til
þess að styðja Val og byggja upp til
framtíðar,“ sagði Brynjar Harð-
arson.
Valur Fái Knattspyrnufélagið Valur leyfi til þess að byggja 4.500 fermetra hús á B-reit Hlíðarendasvæðisins myndi byggingin kosta um 1,6 milljarða.
Valur vill leyfi til að byggja
4.500 fermetra hús á B-reit
Áformin óviðkomandi byggingaráformum Valsmanna ehf. á Hlíðarenda
Brynjar
Harðarson
„Ljóst er að ef ekkert gengur og
fundirnir, hver á eftir öðrum, verða
árangurslitlir þá skoða menn þá
möguleika sem eru í stöðunni. Við
þurfum að þrýsta á það sem við leggj-
um fram með einhverjum aðgerðum,“
segir Björn Snæbjörnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins (SGS), um
komandi kjaraviðræður við Samtök
atvinnulífsins (SA). Sáttafundur er
boðaður í deilunni í dag.
„Okkar helsta markmið er að
hækka lægstu launin í 300. þús. kr.
innan þriggja ára,“ segir Björn og
bætir við að leitað verði almennilegra
svara um hvort hægt verði að ná sam-
an, á fundi félaganna í dag.
Í leiðara nýs fréttabréfs SA í gær
segir Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, árangur kjara-
samninga síðasta árs sé betri en vonir
stóðu til. Kaupmáttur hjóna með
meðaltekjur hefði aukist um 450 þús-
und krónur á ári sem samsvari rúm-
lega þriggja mánaða matarútgjöldum
meðalheimilis. Kaupmáttur launa
hafi aukist um 5% á síðasta ári, sem
sé mesta aukning kaupmáttar á einu
ári á Íslandi samhliða efnahagslegum
stöðugleika. Þorsteinn segir að auk-
inn kaupmáttur launa og efnahags-
legur stöðugleiki sé samtvinnað
markmið. „Ef allir vinna að því mark-
miði verður hag heimilanna best
borgið.“
SGS mun
íhuga að-
gerðir
Kaupmáttur hjóna
jókst um 450 þúsund