Morgunblaðið - 27.02.2015, Blaðsíða 68
Stofnað 1913 49. tölublað 103. árgangur
F Ö S T U D A G U R 2 7. F E B R Ú A R 2 0 1 5
Í upphafi skyldi
endinn skoða.
Þann 22. apríl vinnur
heppinn áskrifandi glæsilega
Toyota Corolla bifreið.
SEGIR HÆGT
AÐ BÆTA KJÖR
VERKAFÓLKS SJÓARAR SEGJA SÖGUR
HEFUR GERT
UPP PARÍS
OG HAMBORG
TOGARAJAXLAR 51 FAGURKERI 43UMBÓTASTARF 41
„Það hefur verið mokveiði við
Reykjanesið hjá öllum sem sækja í
þorskinn. Ég man ekki eftir öðrum
eins landburði af fiski hjá minni
bátunum og er ég þó búinn að vera í
þessu frá 1988,“ segir Guðjón Þ.
Ólafsson, útgerðarmaður Óla Gísla
GK frá Sandgerði.
Þegar gefið hefur undanfarið
hefur veiðst mjög vel og náði afla-
hrotan hámarki á þriðjudaginn áð-
ur en vonskuveður skall á. „Þetta
var algjört ævintýri,“ segir Grétar
Sigurbjörnsson, hafnarstjóri í
Sandgerði.
Guðjón segir að mokveiði sé hjá
nánast öllum og minni línubátar,
sem ekki eru á flótta undan þorsk-
inum, hafi margir tvíhlaðið. Slíkt
teljist vart lengur til tíðinda. Auk
heimabáta landa bátar víða að í
Sandgerði, en þó einkum úr Grinda-
vík blási vindáttir þannig. »55
Aflahrota
og mok hjá
nánast öllum
Landburður af
fiski í Sandgerði
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Löndun Á góðum degi í Sandgerði.
Fjörutíu og fimm kjarasamn-
ingar á almennum vinnumarkaði
renna út á morgun ásamt á þriðja
tug samninga á opinberum vinnu-
markaði, þ.e. félaga í BHM og
BSRB. Samninganefndir Starfs-
greinasambandsins (SGS) og Sam-
taka atvinnulífsins (SA) koma sam-
an á sáttafundi í dag og segir Björn
Snæbjörnsson, formaður SGS, að ef
fundir reynist árangurslitlir muni
þeir þrýsta á kröfur sínar með að-
gerðum. Þorsteinn Víglundsson,
framkvæmdastjóri SA, segir kaup-
mátt launa hafa aukist um 5% á síð-
asta ári. Aukinn kaupmáttur og
stöðugleiki sé samtvinnað mark-
mið. »60
Samningar renna út
og sættir reyndar
Veðurblíðan braust fram í gær á milli þess sem vetur
konungur lét til sín taka með tilheyrandi vindi og snjó-
komu. Krakkarnir í Austurbæjarskóla biðu ekki boð-
anna og héldu út á fótboltavöll þar sem fram fór fót-
boltamót á milli bekkjanna. Sá bekkur sem bar sigur úr
býtum keppti að lokum við lið kennaranna. Þeir sem
ekki tóku þátt í keppninni tóku sér stöðu á hliðarlín-
unni og hvöttu sitt fólk til dáða, með sólina sér við hlið.
Stutt stund milli stríða
Morgunblaðið/Eggert
Sólin lét sjá sig í höfuðborginni í gær
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margrét@mbl.is
Hagnaður þriggja stærstu bankanna
nam samtals 81,2 milljörðum króna á
síðasta ári. Landsbankinn skilaði
mestum hagnaði eftir skatta eða 29,7
milljörðum króna, Arion banki var
með 28,7 milljarða hagnað og Íslands-
banki hagnaðist um 22,8 milljarða.
Árið á undan var samanlagður hagn-
aður bankanna þriggja 64,6 milljarð-
ar króna og hefur því hagnaður
þeirra aukist um 26% á milli ára.
1.139, í samstæðu Arion banka
voru jafnmargir starfsmenn, 1.139,
og í Landsbanka voru 1.126 starfs-
menn.
Bankarnir þrír greiða samtals 26
milljarða króna í tekju- og banka-
skatt. Þar af er bankaskattur 8
milljarðar króna. Landsbanki
greiðir þar hæstan skatt, 3 millj-
arða króna, Arion banki 2,6 millj-
arða og Íslandsbanki greiðir 2,4
milljarða króna í bankaskatt.
Hagnaður 81 milljarður
Hagnaður viðskiptabankanna þriggja jókst um fjórðung á milli ára Greiða 26
milljarða í skatta, þar af 8 milljarða í bankaskatt Starfsfólki fækkaði um 125
MLandsbankinn hagnast... »33
Heildareignir bankanna þriggja
námu samtals 2.943 milljörðum
króna í árslok þar sem hlutur Lands-
banka var stærstur eða 37%. Eigið fé
þeirra var samanlagt 598,5 milljarð-
ar króna. Mest var eigið fé Lands-
bankans, 250,8 milljarðar króna.
Eiginfjárhlutfallið er svipað hjá
Landsbanka og Íslandsbanka,
29,6%, en 26,3% hjá Arion banka.
Fjöldi starfsmanna var samtals
3.404 og hefur þeim fækkað um 125
frá árinu á undan. Fjöldi starfs-
manna í samstæðu Íslandsbanka var
Samsett mynd/Eggert
Bati Afkoma bankanna á síðasta ári
var umtalsvert betri en árið áður.
Lögmál borgarísjakans gildir um
verk listmálarans Jóhannesar Kjar-
vals sem varðveitt eru í Listasafni
Reykjavíkur við Klambratún. Að-
eins lítill hluti þeirra er sýnilegur;
flest verkin, stór og smá, eru í
geymslum í kjallara hússins.
Fjallað er um Kjarvalsstaði og rætt
við umsjónarmann verkanna þar í
greinaflokknum Heimsókn á höfuð-
borgarsvæðið í Morgunblaðinu í
dag. Einnig er sagt frá öflugu starfi
íþróttafélagsins Vals á Hlíðarenda
og nýrri Bónusverslun í hverfinu,
svo nokkuð sé nefnt. »34-35
Flest listaverkin
eru í geymslum
Vegunum um Hellisheiði,
Þrengsli, Sandskeið og Lyngdals-
heiði var lokað síðdegis í gær vegna
óveðurs og ófærðar. Ökumenn
höfðu þá lent í vandræðum m.a. á
Hellisheiði og í Þrengslum þar sem
stór rúta fauk til. Vegirnir voru enn
lokaðir í gærkvöld. Þá var veginum
um Súðavíkurhlíð lokað vegna snjó-
flóðahættu. »63
Fjölförnum leiðum
lokað fyrir umferð
Hellisheiði Ökumenn lentu í vandræðum.