Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2009, Blaðsíða 40
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Klara B. Hjálmarsdóttir
kennaranemi í Hafnarfirði
Klara fæddist á Bíldudal
og ólst þar upp. Hún var í
Grunnskóla Bíldudals og
stundar nú kennaranám
við Menntavísindasvið HÍ.
Klara vann í fiski á
Bíldudal á unglingsárun-
um og var leiðbeinandi í
Grunnskóla Bíldudals.
Klara æfði og keppti
í frjálsum íþróttum á vegum ÍFB á
unglingsárunum og starfaði með
Leikfélaginu Baldri á Bíldudal um
árabil, þar sem hún m.a. lék ýmis
hlutverk.
Fjölskylda:
Maður Klöru er Bjarni Elvar Hannes-
son, f. 5.3. 1979, húsasmiður.
Dætur Klöru og Bjarna Elvars eru
Emilía Sara Bjarnadóttir, f. 20.6. 1998;
Hólmfríður Birna Bjarnadóttir, f. 1.3.
2003; Elva Lind Bjarna-
dóttir, f. 14.5. 2005.
Systkini Klöru eru Ein-
ar Steinsson, f. 3.4. 1963,
tölvufræðingur í Austur-
ríki; Ingveldur Lilja Hjálm-
arsdóttir, f. 10.5. 1966, hár-
greiðslukona í Reykjavík;
Sverrir Halldór Hjálm-
arsson, f. 6.9. 1969, raf-
tæknifræðingur í Garðinum; Petr-
ína Guðrún Hjálmarsdóttir, f. 28.5.
1978, bankastarfsmaður í Reykjavík;
Sunna Guðbjartsdóttir, f. 9.11. 1983,
bankastarfsmaður í Reykjavík; Tinna
Guðbjartsdóttir, f. 9.11. 1983, nemi
við HÍ, búsett í Reykjanesbæ.
Foreldrar Klöru: Margrét Guðný
Einarsdóttir, f. 9.6. 1943, handverks-
kona í Reykjavík, og Hjálmar Hún-
fjörð Einarsson, f. 3.11. 1943, d. 25.2.
1980, sjómaður á Bíldudal.
30 ára á föstudag 40 ára á laugardag
Rúnar Kristinsson
yfirmaður knattspyrnumála Hjá kr
Rúnar fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp í Vesturbænum til sex ára aldurs
en síðan í Breiðholtinu. Hann stund-
aði nám í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti í þrjú ár.
Á unglingsárunum starfaði Rúnar
lengst af hjá Pósti og síma. Hann sá
um verkfæralager Vinnuskóla Reykja-
víkur 1989-92, var afgreiðslulmaður
í Sporthúsinu í Reykjavík í tvö ár, var
síðan atvinnumaður í knattspyrnu í
Svíþjóð, Noreg og í Belgíu til 2007 en
hefur verið yfirmaður knattspyrnu-
mála KR frá hausti 2007.
Rúnar hóf að æfa knattspyrnu með
Leikni sex ára, æfði síðan með KR frá
því hann var á ellefta árinu. Hann lék
með meistaraflokki KR 1987-1995, lék
með Örgryte í Svíþjóð 1995-97, með
Lilleström í Noregi 1997-2000, með
Lokeren í Belgíu 2000-2007 og með
KR síðari hluta móts 2007 er hann
lagði skóna á hillun og varð yfirmaður
knattspyrnumála félagsins.
Rúnar varð fjórum sinnum Reykja-
víkurmeistari með KR og bikarmeist-
ari með liðinu. Hann var valinn efni-
legasti leikmaður fyrstu deildar 1987,
af leikmönnum liðanna, var valinn
knattspynrumaður ársins 1998, var
valinn leikmaður ársins í Noregi 1999
og var valinn einn af tíu bestu knatt-
spyrnumönnum þjóðarinnar af Stöð
2, 2008. Hann lék fyrst með landslið-
inu 1987, á að baki hundrað og fjóra
A landsleiki og var fyrirliði A - lands-
liðsins um skeið. Þá lék hann fjölda
drengja- unglinga- og U21 landsleik.
Fjölskylda
Eiginkona Rúnars er Erna María Jóns-
dóttir, f. 15.10. 1971, húsmóðir. Hún er
dóttir Jóns Árna Ágústssonar og Dag-
nýjar Ernu Lárusdóttur.
Börn Rúnars og Ernu Maríu eru
Rúnar Alex Rúnarsson, f. 18.2. 1995;
Thelma Rut Rúnarsdóttir, f. 31.10.
2000; Tanja Rut Rúnarsdóttir, f. 22.1.
2004.
Hálfsystir Rúnars er Ásta Hulda
Kristinsdóttir, f. 30.4. 1953, búsett í
Garðabæ, gift Ögmundi Kristinssyni
prentara og eiga þau einn son.
Bræður Rúnars eru Jónas Kristins-
son, f. 1.3. 1960, símvirki, íþrótta-upp-
eldisfræðingur og framkvæmdasjtóri
KR, búsettur í Reykjavík en kona hans
er Ásdís Eva Hannesdóttir fjölmiðla-
fræðingur og eiga þau þrjú börn;
Páll, f. 16.4. 1961, vélvirkjameistari í
Reykjavík, en kona hans er Guðlaug
Halldórsdóttir, grafískur hönnuður
og eiga þau eina dóttur auk þess sem
Guðlaug á dóttur frá því áður; Krist-
inn, f. 13.5. 1966, sjóntækjafræðing-
ur í Reykjavík, kvæntur Guðnýju Ól-
afsdóttur skrifstofumanni og eiga þau
tvo syni.
Foreldrar Rúnars eru Kristinn
Tryggvason, f. 8.8. 1932, fyrrv. starfs-
maður Pósts og síma, og Margét Páls-
dóttir, f. 7.6. 1940, húsmóðir og fyrrv.
starfsstúlka á barnaheimili.
Ætt
Hálfbróðir Kristins, samfeðra, er Gúst-
af Þ. Tryggvason lögfræðingur. Krist-
inn er sonur Tryggva, húsgagnasmiðs
í Ólafsfirði Hjálmarssonar, sjómanns
á Patreksfirði Péturssonar. Móðir
Tryggva var Klásína Eiríksdóttir.
Móðir Kristins var Hulda Jón-
asdóttir, b. á Þorgerðarstöðum og
Skjögrastöðum, síðar verkamaður
í Reykjavík Eiríkssonar, b. á Ormar-
slóni í Þistilfirði, bróður Helgu, móð-
ur Jósefs Axfirðings. Eiríkur var sonur
Galdra--Eiríks, b. á Ormarslóni Ei-
ríkssonar. Móðir Jónasar var Kristín
Björnsdóttir. Móðir Huldu var Krist-
ín Guðmundsdóttir, b. á Þverhamri
Bjarnasonar, úr Reykjavík Sigurðsson-
ar. Móðir Kristínar Guðmundsdóttur
var Helga Eiríksdóttir frá Kirkjubóls-
seli.
Margrét er dóttir Páls, starfs-
manns hjá Vífilfelli Guðmundssonar,
í Lambhaga og síðar keyrslumanns
hjá Garðari Gíslasyni í Reykjavík Guð-
laugssonar. Móðir Páls var Ingibjörg
Bjarnadóttir frá Sviðugörðum í Gaul-
verjabæjarhreppi.
Móðir Margrétar er Guðrún Ól-
afsdóttir, b. á Syðri-Velli í Gaulverja-
bæjarhreppi Sveinssonar, sjómanns
á Klöpp á Miðnesi Högnasonar, b. í
Reykjadal Árnasonar. Móðir Ólafs
var Ólöf, systir Ólafs fríkirkjuprests.
Ólöf var dóttir Ólafs Ólafssonar, bæj-
arfulltrúa í Reykjavík. Móðir Guð-
rúnar Ólafsdóttur var Margrét, syst-
ir Guðrúnar, langömmu Magnúsar
Kjartanssonar tónlistarmanns. Mar-
grét var dóttir Steins, b. í Miklaholti
og á Skúfslæk Jónssonar og Ingunn-
ar Þorkelsdóttur, b. á Ormsstöðum
Guðmundssonar. Móðir Ingunnar
var Guðrún Sigurðardóttir, b. í Gelti
og ættföður Galtarættarinnar Einars-
sonar.
Halldór fæddist í Reykjavík en ólst
upp á Flateyri. Hann lauk vélstjóra-
prófi frá Vélskóla Íslands 1982. Hall-
dór hefur verið til sjós frá því á ungl-
ingsárunum, lengst af á bátum og
togurum frá Flateyri. Hann er nú yf-
irvélstjóri á ísfiskstogaranum Stefni
frá Ísafirði.
Fjölskylda
Eiginkona Halldórs er Dorn Sakulp-
hron, f. 19. ágúst 1967, húsmóðir.
Bræður Halldórs eru Reynir, f.
18.11. 1953, ritstjóri DV, kvæntur
Halldóru Jónsdóttur og eiga þau
fimm börn; Björn Jakob, f. 22.2.
1961, d. 25.5. 1961; Þorsteinn, f. 16.6.
1962, verkamaður á Ísafirði en kona
hans er Jóna Símonía Bjarnadóttir
sagnfræðingur; Þórir, f. 2.12. 1977,
starfsmaður hjá RÚV í Reykjavík.
Foreldrar Halldórs: Jón Trausti
Sigurjónsson, f. á Húsavík 14.10.
1932, d. 16.7. 1978, verslunarmaður
á Flateyri, og Sigríður Sigursteins-
dóttir, f. 3.3. 1936, húsmóðir á Flat-
eyri.
Ætt
Jón Trausti var sonur Sigurjóns, sjó-
manns á Húsavík Jónssonar, org-
anista á Húsavík Sigurjónssonar,
bróður Helgu, móður Stefáns Pét-
urssonar, ritstjóra Alþýðublaðsins.
Móðir Jóns organista var Þórdís,
systir Bjargar, ömmu Árna Björns-
sonar tónskálds; systir Önnu, ömmu
Árna Kristjánssonar píanóleik-
ara, og systir Petrínu, ömmu Kristj-
áns Eldjárn forseta, föður Þórarins,
skálds og rithöfundar. Móðir Sigur-
jóns var Björg Gunnarsdóttir, b. á
Ketilsstöðum Benediktssonar.
Móðir Jóns Trausta var Guð-
rún Valdimarsdóttir, í Grímsey
Traustasonar. Móðir Guðrúnar var
Halldóra, systir Sigurðar á Sveins-
stöðum, afa Björns, fyrrv. ráðu-
neytisstjóra, og Stefáns, forstjóra Ís-
lenskra aðalverktaka Friðfinnssona.
Halldóra var dóttir Sæmundar, b. í
Grímsey Jónatanssonar.
Sigríður er dóttir Sigursteins, b.
á Búrfelli í Hálsasveit Þorsteinsson-
ar, b. á Höfða í Þverárhlíð Jónsson-
ar, b. í Síðumúla Þorvaldssonar, b. á
Vilmundarstöðum, bróður Vigdís-
ar, ömmu Hannesar bankastjóra,
Zóphaníasar skipulagsstjóra, Páls
Agnars dýralæknis, Hjalta, forstjóra
innflutningsdeildar SÍS og Vigdísar,
móður Páls Baldvins Baldvinssonar.
Þorvaldur var sonur Jóns, ættföður
Deildartunguættar. Móðir Þorsteins
var Helga Jónsdóttir, b. á Signýjar-
stöðum í Hálsasveit, bróður Vig-
dísar og Þorvalds. Móðir Helgu var
Guðrún, systir Helgu, langömmu
Guðmundar Arnlaugssonar, rekt-
ors MH, og Önnu, móður Flosa Ól-
afssonar leikara. Guðrún var dóttir
Böðvars, b. í Skáney Sigurðssonar,
og Ástríðar, systur Jóns, Þorvalds
og Vigdísar. Móðir Sigursteins var
Sigríður Jónsdóttir, b. í Steindyrum
á Látraströnd Einarssonar, og Ingi-
bjargar Benediktsdóttir, frá Hrings-
dal.
Móðir Sigríðar var Jakobína Guð-
ríður, dóttir Jakobs, trésmiðs í Vík í
Mýrdal, bróður Erlends, afa Erlends
Einarssonar, forstjóra SÍS. Jakob var
sonur Björns, b. á Dyrhólum, bróð-
ur Þuríðar, langömmu Bergsteins,
fyrr. brunamálastjóra og Sigurðar
sýslumanns Gissurarsona og Ólafs
G. Einarssonar, fyrrv. ráðherra. Móð-
ir Jakobs var Ólöf Þorsteinsdóttir, b.
á Ketilsstöðum, bróður Þórunnar,
langömmu Steinunnar, langömmu
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra. Móðir Jakobínu Guðríðar
var Guðríður Pétursdóttur, b. í Vatns-
skarðshólum, Erlendssonar, og Guð-
ríðar, systur Ólafar á Dyrhólum.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
50 ára á sunnudag
Halldór V. Traustason
vélstjóri á flateyri
Einar Bjarni Halldórsson
tölvunarfræðingur í reykjavík
Einar fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Vesturbæn-
um og Smáíbúðahverfinu.
Hann var í Réttarholtsskóla,
lauk stúdentsprófi frá MS
og lauk prófi sem tölvunar-
fræðingur frá HÍ 2005.
Einar hóf ungur störf hjá
Henson og starfaði þar með
skóla og á sumrin. Hann
hefur verið tölvunarfræðingur hjá
Internet á Íslandi frá 2006.
Einar hóf ungur að æfa og keppa
í knattspyrnu með Val og hefur verið
harður stuðningsmaður
félagsins alla tíð.
Fjölskylda
Systir Einars er Berg-
þóra Halldórsdóttir, f.
23.2. 1975, flugfreyja í
Reykjavík.
Foreldrar Einars eru
Halldór Einarsson, f.
23.12. 1947, framkvæmdastjóri og
eigandi Henson, og Esther Magnús-
dóttir, f. 10.8. 1947, meðstjórnandi
hjá Henson.
30 ára á föstudag
Guðrún L. Ingvarsdóttir
bréfberi í kópavogi
Guðrún fæddist í Reykja-
vík en ólst upp í Kópavogi.
Hún var í Kópavogsskóla
og stundaði nám við MK og
lauk þaðan stúdentsprófi.
Guðrún hóf störf hjá Ís-
landspósti eftir stúdents-
próf og hefur verið bréfberi
síðan.
Fjölskylda
Sonur Guðrúnar er Ingvar Pálmi
Vilhjálmsson, f. 24.7. 2004.
Bróðir Guðrúnar er
Ásgeir Ingvarsson, f.
3.6. 1977, starfsmaður
hjá tölvuleikjaverslun-
inni Geimsstöðinni.
Foreldrar Guðrún-
ar eru Birna Höskulds-
dóttir, f. 2.5. 1961, mat-
ráður við leikskólann
Kópahvol, og Ingvar
Stefánsson, f. 13.6. 1961, gröfumað-
ur í Kópavogi.
30 ára á föstudag
Jóna G. Pétursdóttir
sundlaugarvörður á Hvammstanga
Jóna fæddist á Hvamms-
tanga, ólst þar upp og
hefur átt þar heima alla
tíð. Hún var í Grunnskól-
anum á Hvammstanga.
Jóna var í vinnuskólan-
um á Hvammstanga á
unglingsárunum, starf-
aði við sláturhús KVH
1996-2001, vann við
rækjuvinnsluna á Meleyri 2001-
2003 og hefur starfað við íþrótta-
miðstöðina á Hvammstanga frá
2004.
Fjölskylda
Eiginmaður Jónu er Arnar Hlynur
Ómarsson, f. 12.10. 1974, starfs-
maður við íþróttamiðstöðina á
Hvammstanga.
Dætur Jónu og Arn-
ars Hlyns eru Arn-
dís Sif Arnarsdóttir, f.
22.3. 1999; Rannveig
Elva Arnarsdóttir, f. 9.3.
2003.
Hálfsystir Jónu er Amal-
ía Lilja Kristleifsdóttir, f.
7.2. 1977, nemi í dýra-
lækningum.
Foreldrar Jónu eru Pétur Hilm-
ar Guðbjörnsson, f. 27.9. 1959,
starfsmaður við Steypustöðina á
Hvammstanga, og Guðrún Að-
alheiður Matthíasdóttir, f. 21.8.
1960, starfskona við Heilbrigðis-
stofnunina á Hvammstanga.
30 ára á laugardag
40 föstudagur 4. september 2009 ættfræði