Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Blaðsíða 21
Erlent 21Helgarblað 10.–12. ágúst 2012
www.ils.is | Sími: 569 6900 | Grænt númer: 800 6969 | Borgartúni 21, 105 Reykjavík
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
Lán til íbúðarkaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa
Ráðgjöf og úrræði í greiðsluvanda
Hverfi á kafi Flugher Filippseyja tók og birti þessa yfirlitsmynd
sem sýna greinilega hvernig heilt hverfi er á kafi.
Standa saman Fjölskylda í
Valenzuela, norður af Maníla,
veður vatnið upp að mitti og
reynir að koma sér í skjól.
Berst við beljandi flóð Þessi maður neyddist til að synda til
að komast upp veg í Marikina í Maníla. Tók með sér góða skó ef
ske kynni að það myndi kannski stytta upp. Þurrkatíð er hins vegar
hvergi í kortunum.HÖFUÐBORG
ORÐIN VATNAVERÖLD
Fórnarlamba leitað Björgunarsveitir og sjálfboðaliðar í Quezon í Maníla koma fólki til bjargar og leita
þeirra sem gætu hafa lifað af undir aurskriðu. Vitað er að minnst níu létu lífið í hamförunum.
Allt reynt Þessi náungi í
Valenzuela reynir að þurrka
föt á heimili sínu. Það er
vafalaust óvinnandi vegur við
aðstæður sem þessar.
Skaut vin sinn
óvart í höfuðið
Anthony McGivern, 25 ára Breti,
hefur verið dæmdur í minnst
30 ára fangelsi fyrir manndráp
í Liverpool Crown Court. Mc
Givern, sem var dópsali, skaut
besta vin sinn óvart í höfuðið af
stuttu færi þegar hann ætlaði að
skjóta á keppinauta sína í fíkni
efnaviðskiptum. Skotárásina
ætlaði McGivern að gera úr bif
reið á ferð, svokallað „drive
by“, en ekki vildi betur til en svo
að hann skaut Kevin Gott, vin
sinn sem sat í farþegasætinu, í
höfuðið þegar hann reyndi að
skjóta á meðan hann ók bif
reiðinni.
„Fannst hann
fínn náungi“
Ronald Poppo var bara óþekkt
ur og heimilislaus 65 ára mað
ur í Miami í Bandaríkjunum þar
til 26. maí síðastliðinn þegar
hann komst í heimsfréttirnar eftir
hrottafengna árás. Hinn útúrdóp
aði Rudy Eugene veittist þá að
honum og beit hann í andlitið og
reif úr honum augun. Poppo er
blindur eftir árásina eins og gef
ur að skilja en hann hefur gengist
undir umfangsmiklar aðgerðir í
kjölfar hennar. CBSfréttastofan
hefur komist yfir lögreglu skýrslu
þar sem rætt er við Poppo sem
segir meðal annars:
„Hann reif mig í tætlur. Hann
nagaði andlitið á mér og plokkaði
úr mér augun. Og það er raun
ar allt sem hægt er að segja um
málið.“
Poppo og Eugene höfðu hist
úti á götu og rætt stuttlega saman
áður en árásin, sem stóð í 18
mínútur, byrjaði. „Mér fannst
hann fínn náungi. En síðan gekk
hann bara gjörsamlega af göfl
unum. Hann átti slæman dag á
ströndinni eða eitthvað og tók það
út á mér.“
Eugene var skotinn til bana af
lögreglumönnum meðan hann
var enn að naga sundur andlit
Poppos.