Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Blaðsíða 35
35Helgarblað 10.–12. ágúst 2012
hundar Nágrannadeilur fóru úr böndunum i Ástralíu árið 2010 þegar Russell
Mendoza og félagi hans skutu 33 hunda til bana. Mendoza var viss um að einn af 39 hundum
Rowan Hargreaves nágranna síns hefði drepið Terrier-hundinn sinn. Mendoza og vinur hans
stráfeldu hundana með rifflum en þeir drápu 10 fullorðna hunda og 23 hvolpa.33
F
élagarnir Chris Lippert og
Charles Roache gengu ber-
serksgang í Norður-Karólínu
í Bandaríkjunum í september
1999. Þeir stálu bílum, ýmsum
öðrum varningi og myrtu sex manns
sem á vegi þeirra urðu. Roache var
dæmdur til dauða fyrir hræðilega og
tilefnislausa glæpi sína í október 2004
en Lippert í lífstíðarfangelsi.
Allt hófst þetta morguninn 29.
september. Chris Lippert var þá á ferð
ásamt félaga sínum Chad Watt. Þeir
höfðu kynnst á bar nokkrum vikum
áður og höfðu þeir félagarnir drukkið
saman og reykt kannabisefni.
Myrtu vin sinn
Þessi morgunn var engin undantekn-
ing og undir áhrifum fóru þeir og
sóttu vini Lipperts. Þá Mark Stout og
áðurnefndan Charles Roache. Það var
Lippert sem sá um að aka bíl Watts
en hann ók bílnum á með þeim af-
leiðingum að gat kom á bensíntank
hans.
Þegar Watt æsti sig út af skemmd-
unum á bílnum gengu Roache og
Stout illilega í skrokk á honum. Þeir
börðu hann sundur og saman og
hentu honum loks í skott bifreiðar-
innar. Þeir keyrðu með hann út í skóg
þar sem Lippert sló hann svo fast með
haglabyssuskefti að hann hálsbrotn-
aði og dó.
Þeir létu ekki staðar numið held-
ur skaut Roache Watt í augað áður
en Lippert skaut hann í höfuðið með
haglabyssunni. Þremenningarnir
grófu svo Watt í skóginum áður en
leiðir þeirra skildu.
En þeir félagar voru rétt að byrja.
Daginn eftir stal Lippert Ford-jeppa
og ók að heimili Stout. Lippert, Stout
og Roache fóru í Wal Mart-verslun
þar sem þeir stálu ýmsum varningi
og áfengi. Stuttu seinna skildu leiðir
þeirra. Lippert og Roache fóru saman
en höfðu fengið afsagaða haglabyssu,
skotfæri og piparúða að láni hjá Stout.
Lyklana eða lífið
Þeir voru blindfullir og æstir þegar
þetta ferðalag þeirra end-
aði með því að Lippert
velti jeppanum sem hann
hafði stolið. Þeir yfirgáfu
flakið gangandi og næsti
viðkomustaður var við
götuna Rabbit Skin Road í
bænum Jonathan Creek, bæ í Norður
Karólínu, ekki langt frá fylkjamörkun-
um. Ódæðismennirnir leituðu nú að
nýjum bíl og námu staðar við heimili
Earl og Coru Phillips.
Tvímenningarnir ruddust inn
á heimili hjónanna og heimtuðu
bíllykla, skotfæri og pening. Þetta
endaði með því að Roache skaut Coru
í höfuðið og Lippert skaut Earl einnig
í höfuðið.
Myrtu heila fjölskyldu
Tvímenningarnir æddu af stað og út í
Ford-jeppa þeirra hjóna. Þeir komust
ekki nema stuttan spöl frá húsinu
áður en þeir veltu honum líka. Svo
annarlegt var ástand þeirra.
Lippert og Roache fóru þá til baka
að húsi hjónanna en þangað hafði
sonur þeirra, Eddie, komið í millitíð-
inni. Lippert og Eddie slógust fyrir
framan húsið sem endaði með því að
Roache dró upp byssu og skaut Eddie
til bana. Þaðan fór þeir aftur inn í hús
hjónanna þar sem eiginkona Eddie,
Mitzi Phillips, var. Roache skaut hana
einnig til bana.
Þegar glæpir þeirra félaga gátu
ekki orðið hræðilegri heyrðist hljóð
innan úr einu herbergja hússins.
Yngsta dóttir þeirra Eddie og Mitzi,
Kaite Phillips, hafði verið með í för.
Roache fór úr herbergi í herbergi þar
til hann fann Katie og myrti hana.
Guð, fyrirgefðu mér
Tvímenningarnir tóku annan bíl við
húsið en enn og aftur rú-
stuðu þeir bílnum inn-
an skamms. Að þessu
sinni skildu leiðir þeirra.
Roache náðist skammt
frá heimili Phillips-hjón-
anna í annarlegu ástandi. Hann ját-
aði glæpi sína en lífsýni úr tvímenn-
ingunum voru á morðvopnunum, á
heimili hjónanna og í bílunum sem
þeir stálu. Roache sagði Lippert hafa
verið með sér og hófst því leit að hon-
um sem stóð í rúma viku.
Roache var sem fyrr sagði dæmd-
ur til dauða og tekinn af lífi árið 2004.
Lippert var dæmdur til fangelsisvistar
ævilangt. Með síðustu orðum sínum
áður en Roache var tekinn af lífi, bað
hann Guð um að fyrirgefa sér.
Drukku,
stálu og
myrtu
n Chris og Charles myrtu saklaust fólk í helreið sinni um Norður-Karólínu
Bar líkkistur fórnarlambanna
n Misþyrmdi fjölskyldu vinar síns
Á
rið 2005 var morðinginn og
nauðgarinn Earl Richmond
Jr. tekinn af lífi í Norður-Kar-
ólínu. Richmond var lið-
þjálfi í Bandaríkjaher en var rekin
úr hernum í kringum 1990 fyrir ótil-
greind agabrot.
Einn af betri vinum Richmonds
var Wayne Hayes sem átti eigin-
konu, Helisu Stewart Hayes sem var
27 ára, og tvö börn, Phillip, átta ára,
og Darien, sjö ára.
Richmond var eitt sinn gestur
á heimili þeirra þegar Wayne var
fjarverandi. Honum og Helisu
sinnaðist sem endaði með því að
Richmond réðst á eiginkonu vinar
síns. Hann barði hana og nauðg-
aði henni. Að því loknu kyrkti hann
Helisu. Hann lét ekki þar við sitja
og elti Phillip inn á baðherbergi
þar sem hann kyrkti drenginn með
rafmagnssnúru og stakk hann 20
sinnum með skærum. Næst snéri
Richmond sér að Darien og batt
enda á líf hennar með rafmagns-
snúru af krullujárni.
Til marks um siðleysi
Richmonds má nefna að hann var
kistuberi í jarðarför fjölskyldunnar
en ekki komst upp um hann fyrr en
skömmu eftir að fórnarlömbin voru
borin til grafar.
Þá kom myrk fortíð Richmonds
í ljós en nokkrum mánuðum áður
hafði þessi siðblindi morðingi
banað Lisu Ann Nadeau. Hann
barði hana með hamri, batt og
kyrkti áður en hann nauðgaði
henni.
Enn síðar kom í ljós að
Richmond hafði nauðgað ungri
stúlku nokkru fyrir morðin en lög-
reglumenn sem unnu að málinu
sáu mynd af Richmond fyrir til-
viljun í blöðunum. DNA-rannsókn
leiddi í ljós að hann var gerandinn
en hann var einnig grunaður um að
hafa nauðgað einni konu til viðbót-
ar.
Richmond var við réttarhöldin
lýst sem skrímsli í mannslíkama
og að eftirsjá hans eða iðrun væri
engin.
Earl Richmond Jr. Siðlaus morðingi með öllu.
Charles
Roache
Bað Guð um
fyrirgefningu
áður en hann
var tekinn af lífi.
Í annarlegu ástandi
Tvímenningarnir veltu
tveimur Ford-jeppabif-
reiðum í helför sinni.
Afsöguð haglabyssa Var á meðal
morðvopnanna.