Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2012, Blaðsíða 14
„SjálfSvíg eru erfiðaSti andStæðingurinn“ Hópkynlíf með nemendum n Brittni Nicole Colleps misnotaði fimm unglingspilta H in 28 ára gamla Brittni Nicole Colleps, ensku kennari við g agn fræða skóla í bænum Kennedale, í Texas í Banda- ríkjunum var á dögunum sakfelld fyrir að hafa stundað kynlíf með fimm nemendum sínum og fyr- ir að hafa stundað hópkynlíf með sumum þeirra. Colleps var gert að sæta fimm ára fanga vist fyrir brotin, en hún þótti hafa misnotað traust drengjanna og mis notað þá kyn- ferðislega. Þrátt fyrir að drengirn- ir væru orðnir átján ára var ákveðið að ákæra Colleps, en lög í Texas kveða á um að hvort sem nemendur eru orðnir átján ára eða ekki er það glæpur ef kennari á í ástarsambandi við nemanda. Þykir Colleps í raun vera heppin þar sem kviðdómur dæmdi hana til lágmarksrefsingar, en brot af þessu tagi geta þýtt 20 ára fangelsi fyrir hvert brot fyrir sig. Colleps, sem er gift og þriggja barna móðir, hafði starfað í stutt- an tíma í gagnfræðaskólanum þegar hún fór að misnota drengina. Upp komst um ástarsambönd henn- ar við drengina þegar myndband af henni að stunda kynlíf með nokkrum drengjanna var sett á internetið. Colleps gekk sjálf inn á lögreglu- stöðina í Kennedale og játaði brot sín í kjölfarið og greindi frá því að hún hefði boðið nemendum sínum að koma á heimili hennar. Á tveggja mánaða tímabilið á síðasta ári komu fimm drengir heim til hennar þar sem þau stunduðu kynlíf. Þrír gamlir nemendur hennar, sem báru vitni í réttar haldinu, kváð- ust ekki líta á sjálfa sig sem fórn- arlömb heldur sögðust hafa verið ástfangnir af kennaranum sínum. Tveir drengjanna sögðu frá því að sambandið hefði hafist með smá- skilaboðum sem kennarinn og nemendurnir sendu sín á milli. Þau urðu fljótlega kynferðisleg. Þá lýsti einn nemendanna frá því hvern- ig hann stundaði hópkynlíf ásamt Colleps og öðrum nemendum en það var hann sem tók upp mynd- band af einni kynlífs athöfninni á farsímann sinn. astasigrun@dv.is 14 Erlent 20. ágúst 2012 Mánudagur É g tel að það sé vel hægt að koma í veg fyrir að þessi líf týnist,“ segir bandaríski her- foringinn Lloyd J. Austin III. sem fer fyrir átaki innan Banda- ríkjahers sem ætlað er til að berj- ast gegn nýjum óvini. Sjálfsvígum hermanna. Óhugnanleg fjölgun hefur orðið á sjálfsvígum með- al hermanna. Staðreyndin er nú orðin sú að miklu fleiri hermenn falla fyrir eigin hendi en falla í bar- dögum á vígvöllum víðs vegar um heim þar sem Bandaríkin standa í stríðsrekstri. Versti mánuðurinn Þrjátíu og átta hermenn, sem ým- ist sinna skyldustörfum eða eru í varaliði hersins, sviptu sig lífi í síð- asta mánuði. Júlí er versti mánuð- urinn hvað sjálfsvíg hermanna varðar síðan Pentagon hóf að birta tölur yfir þennan málaflokk árið 2009. Ef fram heldur sem horfir munu 200 hermenn svipta sig lífi á árinu. Það yrði langhæsta tíðni sjálfsvíga í bandaríska hernum í áratug. „Sjálfsvíg eru erfiðasti and- stæðingurinn sem ég hef þurft að glíma við á 37 ára ferli mínum í hernum,“ segir Austin. En það er ekki bardagi sem hann ætlar að tapa. Í júlí sviptu 26 hermenn í þjón- ustu sig lífi en við þá tölu bætast 12 þjóðvarnarliðsmenn og hermenn úr varaliði Bandaríkjahers, það er, hermenn sem voru ekki í þjónustu einmitt þegar þeir frömdu sjálfs- víg. Þetta eru tvöfalt fleiri hermenn en féllu til að mynda í bardögum í Afganistan í júlí. Ekki sátt um leiðir Sérfræðingar eru heldur ekki á einu máli um hvernig bregðast megi við þessu. Washington Post hefur eftir félagsráðgjafanum Kim Ruocco að herinn reyni allt hvað hann geti, en það þurfi meiri pen- ing, meiri mannafla til og að gera geðheilsu hermanna hærra undir höfði. „Það eru enn of mörg göt í þjónustunni sem veitt er og of löng bið fyrir hermenn sem þó leita sér aðstoðar.“ Frank Ochberg, prófessor í klínískum geðlækningum við Michigan State-háskólann, tel- ur að vandinn sé annar og meiri. „Ég tel að við getum ekki bara hent fleiri geðlæknum, sálfræðingum og félagsráðgjöfum í vandann og það lagi allt.“ Hann telur að til að fækka sjálfs- vígum í hernum þurfi að útrýma fordómum og skömm sem ríki gagnvart geðrænum vanda í sam- félagi hermanna. „Kúltúrinn auð- veldar engum að leita sér aðstoð- ar,“ segir Ochberg í Washington Post. Herforinginn Austin tekur undir þetta og segir að hvetja þurfi hermenn enn frekar til að leita sér aðstoðar þegar svartnættið sækir að þeim. Bandaríski herinn verður seint sagður halda að sér höndum hvað þetta varðar. Ákveðið hefur verið að verja 50 milljónum dala, nær sex milljörðum króna, í bar- áttuna gegn sjálfsvígum. Sláandi tölur Í fyrra greindu bandarískir fjöl- miðlar frá því að árið 2010 hefði „Kúltúrinn auðveldar engum að leita sér aðstoðar n Miklu fleiri hermenn svipta sig lífi en deyja á vígvellinum n Júlí versti mánuðurinn í áratug Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Fallnir félagar Banda- rískir hermenn glíma við sinn erfiðasta andstæðing hingað til. Geðræn vandamál sem ásækja þá marga eftir áratug á og við vígvöllinn. Vandamál sem draga þá marga til dauða. Áföll og streita Margir hermenn ná sér aldrei eftir þjónustuna. Það sem þeir hafa reynt og séð í blóðugum átökum er erfitt að losna við úr martröðunum. Fór sjálf og játaði Brittni játaði brotið eftir að myndband þar sem hún sást stunda hópkynlíf fór á netið. Chapman vill frelsi Mark David Chapman, morðingi Johns Lennon, mun í næstu viku í sjöunda skipti síðan árið 2000 geta sótt um reynslulausn. Á hann bókaðan fund með fangelsismála- yfirvöldum í New York í næstu viku þar sem ákvörðun verður tek- in um hvort hann hljóti frelsið á nýjan leik. Samkvæmt fréttaveitu Reuters er búist við að ákvörðun um málið liggi fyrir í síðasta lagi á föstudag. Það eru 32 ár síðan Chapman skaut Lennon fjórum sinnum fyrir utan íbúð tónlistarmanns- ins goðsagnakennda í New York- borg. Hann hlaut dóm til 20 ára til lífstíðar. Síðast sótti hann um reynslulausn árið 2010 og miðað við afstöðu skilorðsnefndarinnar þá, á hann ekki von á góðu í vik- unni. Harmleikur í Súdan Á fjórða tug manna létust þegar farþegaflugvél hrapaði í suður- hluta Súdan á sunnudagsmorgun. Meðal hinna látnu er minnst einn ráðherra úr ríkisstjórn landsins og er óttast að hugsanlega hafi fleiri ráðamenn verið í vélinni, að því er Reuters-fréttastofan grein- ir frá. Voru þeir á leið á íslamska trúarhátíð þegar slysið varð. Þegar þetta er skrifað liggur ekki fyr- ir hvort vélin sem fórst var í eigu ríkisflugfélagsins Sudan Airways en vélar þess hafa undanfarin ár ítrekað lent í slysum. Drepnir í verkfalli Mikil reiði ríkir í Suður-Afríku eftir að lögreglumenn skutu á námu- menn í verkfalli á fimmtudag. 34 voru skotnir til bana og 78 særðir. Um er að ræða starfsmenn hvíta- gullsnámu breska fyrirtækisins Lonmin í norðvesturhluta Suð- ur-Afríku. Námumennirnir krefj- ast betri kjara en atburðirnir hafa magnað reiðina til muna. Ættingj- ar hinna látnu segja að yfirvöld hafi ekki gefið út lista yfir nöfn þeirra sem létust en samkvæmt BBC hefur fjöldi kvenna farið á milli spítala og líkhúsa til að leita að látnum fjölskyldumeðlimum sínum án árangurs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.