Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2012, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2012, Blaðsíða 15
U ng kona fer heim úr skóla vegna mikilla tíðaverkja. Hún tekur strætó og í vagninum líður yfir hana af verkjum. Þegar hún rankar við sér, veltir hún fyrir sér hvort þetta eigi í alvöru að vera svona sárt. Kona mætir á heilsugæslustöðina með þvagsýni vegna sársauka við þvaglát. Verkir við blæðingar eru einnig sár­ ir. Ekkert finnst í þvagsýninu og ekki þykir ástæða til að tengja þetta tvennt saman. Hún hugsar með sér að vænt­ anlega sé hún bara svona gölluð. Ung stúlka er nýlega byrjuð á blæðingum. Verkir eru miklir og hún liggur í fóstur­ stellingu á gólfinu heima og bíður eftir að móðir hennar komi heim úr vinnu. Verkjalyf virðast lítið virka og tíminn líður hægt. Allt eru þetta raunverulegar sögur af konum með endómetríósu eða leg­ slímuflakk. Hvað er endómetríósa? Endómetríósa er krónískur, sársauka­ fullur sjúkdómur sem orsakast af því að frumur úr innra lagi legsins finnast á öðrum stöðum í kviðarholinu en leg­ holinu. Legslímuflakk hefur fundist á eggjastokkum, eggjaleiðurum, blöðru, ristli, legböndum og víðar. Sjúkdómur­ inn er meðfæddur og virðist að veru­ legu leyti háður erfðum. Frumur í legslímuflakki bregðast við mánaðarlegum hormónabreyting­ um líkt og þær gera á sínum eðlilega stað í leginu. Afleiðingin er að blæð­ ingar eiga sér stað inn í vefi og valda þar bólgu og örvefsmyndun með sam­ gróningum milli líffæra í kviðarholinu og blöðrumyndun á eggjastokkunum. Í stað þess að fara út úr líkamanum eins og við hefðbundnar blæðingar kemst blóðið ekki í burtu. Slæmir verk­ ir tengdir tíðablæðingum koma í kjöl­ farið og verða oft mjög langvinnir og erfiðir. Af þeim konum sem hafa sjúkdóm­ inn eru um 60% með einkenni og um 20% með mjög sár einkenni. Sjúk­ dómurinn einkennist meðal annars af miklum sársauka við blæðingar, sárs­ auka við egglos, verkjum í kviðarholi á milli blæðinga, verkjum við samfarir, þvaglát og hægðalosun, erfiðleikum við að verða barnshafandi og ófrjósemi, erf­ iðleikum á meðgöngu og við fæðingu. Þjáðst í hljóði Talið er að 5–10% kvenna í heiminum þjáist af endómetríósu en erfiðustu tilfellin nái til um 2% kvenna. Árið 2012 voru rúmlega 70.000 konur á Ís­ landi á aldursbilinu 13 til 45 ára. Má því reikna með að á hverjum tíma eigi hundruð ef ekki þúsundir kvenna í vanda vegna sjúkdómsins hér á landi, en hjá mörgum greinist sjúkdómurinn seint og ekki fyrr en óafturkræfar vefja­ skemmdir hafa orðið. Ranghugmyndir hafa lengi verið uppi um sjúkdóminn og upplýsinga­ gjöf villandi. Ein þessara ranghug­ mynda er að verkir séu eðlilegur hluti af lífi konunnar eða að tíðaverkir séu fyrst og fremst sálrænir. Aðrar kon­ ur fá að heyra að þær séu bara með lágan sársaukaþröskuld. Þegar þessu er haldið fram getur það fælt stúlkur og konur frá því að leita sér hjálpar. Einnig þekkist að læknar ráðleggi jafn­ vel ungum stúlkum að verða barns­ hafandi til að losna við sjúkdóminn. Vandinn er að meðganga og brjósta­ gjöf geta, líkt og hormónameðferð, dregið tímabundið úr einkennum en lækna ekki sjúkdóminn. Sama gildir um aðgerðir þegar leg og/eða eggjastokkar eru fjarlægð, en með því er oft ekki tekið á legslímuflakki utan legsins. Áhrif endómetríósu geta verið mik­ il á líf kvenna. Í breskri rannsókn frá 2005 kom fram að 65% kvenna höfðu fengið ranga sjúkdómsgreiningu í upp­ hafi og að meðalgreiningartími er 8,3 ár. Jafnframt kom fram að 78% þeirra kvenna sem þjást af legslímuflakki hafa misst að meðaltali 5,3 daga í mánuði úr vinnu sökum sjúkdómsins. Konur með endómetríósu eru einnig mun líklegri til að eiga í erfiðleikum við að eignast börn og þurfa á tækni­ frjóvgun að halda og eiga í erfiðleikum á meðgöngu og við fæðingu. Tökum sjúkdóminn alvarlega Það er kominn tími til að hætta að þjást í hljóði. Endómetríósa er sjúk­ dómur sem þarf að taka alvarlega og konur sem af honum þjást trúan­ legar. Því mun ég á þessu þingi endur­ flytja tillögu um að ráðherra beiti sér fyrir fræðslu um sjúkdóminn og skoði möguleikann á stofnun göngudeildar fyrir konur með endómetríósu. Með­ flutningsmenn mínir eru Álfheiður Ingadóttir, Sigríður Ingibjörg Inga­ dóttir, Siv Friðleifsdóttir, Höskuldur Þórhallsson, Björn Valur Gíslason og Mörður Árnason. Íslenskar stúlkur eru bráðþroska og hefjast blæðingar hjá þeim við 13 ára aldur að meðaltali. Því er algengt er að stúlkur leiti fyrst til kennara, hjúkr­ unarfræðinga eða heimilislækna vegna verkja. Með því að auka fræðslu um sjúkdóminn og tryggja að stúlkur fái greiningu sem fyrst má draga úr skaða, vanlíðan og verkjum. Með samþykkt ályktunarinnar gætum við stutt við starfsfólk heilbrigðis­ og skólastofn­ ana, stytt greiningartíma, tryggt sér­ hæfða þjónustu og aukið lífsgæði stórs hóps kvenna. Að lokum vil ég minna á ráðstefnu sem Samtök um endómetríósu halda um sjúkdóminn laugardaginn 15. sept­ ember í Hörpunni. Hún er hugsuð fyr­ ir fagfólk, konur og aðstandendur og hefst klukkan 9. Nánari upplýsingar má finna á vefnum endo.is. Það er brjálað veður Þetta er viðbjóðslegt Hrönn Björnsdóttir í Mývatnssveit segir veturinn kominn. – DVLíkamsræktarfólk tekur lyf ætlað hestum til að grennast. – DV Sársauki er ekki sjálfsagður Spurningin „Já, heldur betur. Maður þolir þetta alveg.“ Hafþór Magnússon 27 ára og atvinnulaus „Nei, ég er nýkomin frá Svíþjóð þar sem er enn sumar og sól.“ Dodda Maggý 31 árs myndlistarmaður „Já, já. Ég er bara ánægð.“ Elín Von 53 ára hómópati „Já, það er fínt að fá smá tilbreytingu.“ Sjöfn Guðlaugsdóttir 23 ára nemi „Já, þetta er samt óþarflega snemmt og óþarflega kalt.“ Arngunnur Árnadóttir 24 ára tónlistarkona Ertu sátt/ur við að veturinn sé á næsta leiti? 1 Nýr vandræðagemlingur í Hollywood Amanda Bynes lenti í árekstri og stakk af – í tvígang. 2 „Maður skilur ekki af hverju einhver myndi gera svona lagað“ Helena Mawby, amma Krist- jáns Hinriks Þórssonar sem myrtur var í Oklahoma í Bandaríkjunum um helgina. 3 Gengur illa að ganga út? Nokkur góð ráð fyrir einhleypa einstak- linga sem vilja ganga út. 4 Gunnlaugur græðir enn á Kögunarauðnum Fjárfestingar- félag hans græddi 364 milljónir króna í fyrra. 5 Gefins hús í Grindavík Gegnt því að viðkomandi fjarlægi húsið af lóðinni. 6 „Ég er þeirrar skoðunar að hrunið sé fall frjálshyggj­ unnar“ Sigmundur Davíð segir tíðarandann fyrir hrun hafa verið óheilbrigðan. 7 Bankastjóri, ekki knattspyrnu­stjóri Rafael Benitez um tíma sinn hjá Liverpool skömmu áður en hann hætti. Mest lesið á DV.is Skýr skilaboð Nokkrir tugir komu saman á Austurvelli á þriðjudag og mótmæltu þegar Alþingi var sett. Mótmælin fóru friðsamlega fram þó að sumum hafi verið nokkuð heitt í hamsi. Mynd EyÞór ÁrnaSonMyndin Umræða 15Miðvikudagur 12. september 2012 Hann vildi öllum vel Þór Karlsson missti son sinn í harmleik í Tulsa í Oklahoma. – DV Kjallari Eygló Harðardóttir „Áhrif endó­ metríósu geta verið mikil á líf kvenna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.