Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Blaðsíða 8
fimmtudagur 27. nóvember 20088 Fréttir Þriggja manna nefnd með Hörð Torfason í forsvari fer með ákvörðunarvald um hverjir taka til máls á vikulegum útifundum á Austurvelli sem þúsundir manna hafa sótt og sýndir hafa verið í beinni útsend- ingu í sjónvarpi. Eiríkur Stefánsson er mjög ósáttur við fyrirkomulagið og gagnrýnir val Harðar á ræðu- mönnum. Kolfinna Baldvinsdóttir tekur í sama streng. Formaður Fjölskylduhjálpar Íslands átti að tala um fátækt á næsta útifundi en það boð var afturkallað vegna pólitískra tengsla. MÓTMÆLENDUR Í HÁR SAMANvalgEir örn ragnarSSonblaðamaður skrifar: valgeir@dv.is„Þarna eru ákveðnir aðilar sem geta ákveðið hverjir það eru sem fá að tala. Þeir velja þá sem þeim eru þóknanlegir. Þeir eru ekkert betri en stjórnmálamennirnir,“ segir Ei-ríkur Stefánsson, fyrrverandi for- maður Verkalýðs- og sjómannafé- lag Fáskrúðsfjarðar. Eiríkur er mjög ósáttur við að Hörður Torfason, skipuleggjandi útifundanna á Austurvelli, hafi ekki gefið honum tækifæri til að taka til máls og gagnrýna kvótakerfið á útifundunum, heldur hafi hann frekar valið óreynda námsmenn til þess að flytja ræður. „Þarna eru 19 og 20 ára unglingar sem eiga að fara að tala við fólkið í landinu um kreppuna. Fólk sem hefur aldrei unnið almennilega vinnu eða dýft puttanum í kalt vatn,“ segir hann. Eiríkur segist hafa krafið Hörð um að útskýra hvers vegna honum stæði ekki til boða að tala á fundin- um og hverjir það væru sem tækju ákvarðanir um hverjir kæmu fram. „Ég margspurði Hörð að því hverjir veldu ræðumennina, en hann neit- aði að segja mér það,“ segir Eiríkur. Hann segir kröfuna um að allt eigi að koma upp á borðið greinilega ekki eiga við hjá Herði Torfasyni. Þriggja manna nefnd „Það bara eru starfsreglur sem ég set. Það hefur verið starfað eft- ir þeim frá byrjun og hann verð- ur bara að sætta sig við það. Það kemur ekki að þessum palli fólk sem hefur unnið fyrir stjórnmála- samtök,“ segir Hörður Torfason um gagnrýni Eiríks. Hörður segir rétt að hann hafi fólk á bak við sig sem ákveði hverj- ir megi koma fram á útifundun- um. Hann vildi í fyrstu ekki gefa upp hverjir skipuðu þessa nefnd. „Ég er ekki tilbúinn að nefna það eins og er.“ Þegar blaðamaður innti Hörð frekar eftir svörum svaraði hann því að hans helstu ráðgjafar væru Ragnheiður Gestsdóttir rit- höfundur og Lára Hanna Einars- dóttir, þýðandi og leiðsögumaður. „Það er ekki alltaf sama fólkið, en þær tvær hafa hjálpað mér í lang- an tíma og ég leita álits hjá þeim. Ég kalla þær vinstra og hægra eyr- að mitt.“ „Eiríkur er kverúlant“ Hörður bendir á að hann hafi búið erlendis um langt skeið og þekki því ekki íslenskt þjóðfélag út í gegn. „Ég spyr álits og læt kanna þá sem biðja um að koma fram, ég kalla þetta síuna mína.“ Spurður um orð Eiríks sem gagnrýnir að námsmenn séu fyrir- ferðarmiklir í mótmælunum, svar- ar Hörður: „Ég veit ekki betur en þetta sé fólk úr öllum öngum þjóð- félagsins, sem ég er að safna til. Yf- irskriftin hefur verið Breiðfylking gegn ástandinu.“ Hörður segir að tilgangurinn sé að draga fram fólk sem ekki hefur fengið tækifæri áður til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Hörður undrast framgöngu Ei- ríks í málinu. „Eiríkur er kverúlant. Frekja og yfirgangur kemur ekki fólki á pallinn. Hann ætti að læra smá kurteisi, að vera ekki að hringja í fólk á miðnætti, eins og hann gerði við mig. Hann er númer 50 í röðinni að taka til máls. Það er gríðarlegur fjöldi sem er búinn að biðja um að fá að taka til máls, bróðir minn er búinn að sækja um að vera þarna en hann er bara í röðinni eins og annað fólk.“ Boðið afturkallað Ásgerður Jóna Flosadóttir, formað- ur Fjölskylduhjálpar Íslands, hafði fengið boð um að taka til máls á næsta útifundi en það boð var síð- ar afturkallað. „Það er ansi hart að það sé ekki hægt að koma á fram- færi ákveðnum upplýsingum sem ég hef aflað mér eftir að hafa verið í hjálparstarfi og verið mjög mik- ið inni í heimi þeirra sem fátækari eru,“ segir Ásgerður. Þegar skipuleggjendur mót- mælanna fréttu að hún hefði starf- að fyrir Frjálslynda flokkinn var boðið afturkallað. Ásgerður Jóna segist ekki hafa ætlað að koma fram í pólitískum tilgangi heldur til þess að vekja athygli á aðbúnaði fátækra á Íslandi. „Þeir hins vegar meta 12 ár í sjálfboðavinnu fyrir fátæka minna en eitt og hálft ár í starfi fyrir minnsta flokk á Íslandi,“ segir hún. Enga flokks- pólitíkusa Hörður segir ástæðu þess að hann hafi hætt við að bjóða Ásgerði Jónu að taka til máls á úti- fundinum vera skýra. „Hún er á vegum Frjáls- lynda flokksins, hún hafði ver- ið samþykkt, en ég vissi ekki að hún væri í Frjáls- lynda flokknum. Ég er búinn að segja það alveg frá byrjun að ef einhver er yf- irlýstur með- limur í stjórnmálahreyfingu hef ég reynt að draga úr því. Það er ekki það sem fólk vill heyra, það á frekar heima á borgarafundinum.“ Hann bætir því hins vegar við að það sé alltaf til endurskoðunar hverjir tali á fundunum. Kallar eftir nýju fyrirkomulagi Kolfinna Baldvinsdóttir, sem skipulagði mótmæla- göngu frá Austurvelli að Ráðherrabú- staðnum fyrir nokkrum vik- um, kallar eftir nýju fyr- irkomulagi á mótmælun- um. Hún gagn- rýnir að það sé á höndum eins manns að ákveða hverjir fái að taka til máls á mótmælun- um. „Ég fór af stað með mín eigin mótmæli þar sem við gengum að Ráðherrabústaðnum og þá kom upp fýla af hálfu Harðar Torfa- sonar vegna þess að hann taldi að framhjá honum hefði verið geng- ið,“ segir hún. „Ég lagði áherslu á að þetta væri samstarf ólíkra fé- lagasamtaka, ég veit ekki í hvaða tilgangi Hörður er þarna. Ég veit ekki fyrir hvaða hreyfingu hann talar. Mótmæli eru mótmæli en það þarf líka að vera skýrt og greinilegt hverju er ver- ið að mót- mæla.“ Kolfinna segist hafa útskýrt fyr- ir Herði að hún hefði ekki talið sig þurfa leyfi frá honum til þess að standa fyrir mót- mælum. Hörður Torfason „Það bara eru starfsreglur sem ég set. Það hefur verið starfað eftir þeim frá byrjun og hann verður bara að sætta sig við það. Það kemur ekki að þessum palli fólk sem hefur unnið fyrir stjórnmálasamtök.“ MYnD ÁSgEir Eiríkur Stefánsson „Ég margspurði Hörð að því hverjir veldu ræðumennina, en hann neitaði að segja mér það.“ MYnD KriSTinn Mótmæli um sjö þúsund manns tóku þátt í mótmæl- unum í síðustu viku. MYnD KriSTinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.