Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 23

Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 23
23L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð 37. NORRÆNA LÖGFRÆÐINGAÞINGIÐ var haldið í Reykjavík dagana 18.-20. ágúst sl. Þátt- takendur voru um 1.100, þar af tæplega 100 frá Íslandi. Í grein þessari verður fjallað nokkuð um framkvæmd þingsins en það var almennt kynnt til sögunnar í síðasta tölublaði Lögmannablaðsins frá því í júní. Fjölbreytileg fræðileg dagskrá var í boði á þinginu og voru fyrirlesarar og fundarstjórar ríf- lega 70. Af Íslands hálfu fluttu fyrirlestra þau Aðalheiður Jóhannsdóttir lektor, Berglind Ásgeirsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri OECD, Guðmundur Sigurðsson dósent, Jakob Möller hrl., Sif Konráðsdóttir hrl., Sigurður Líndal fyrrver- andi prófessor og Valborg Snævarr hrl. Meðal fundarstjóra voru Gunnlaugur Claessen hæstarétt- ardómari, Jakob Möller hrl. og Viðar Már Matthíasson prófessor. Auk þeirra voru meðal fyrirlesara, fundarstjóra og þátttakenda á þinginu margir af þekktustu lögfræðingum Norðurland- anna, m.a. margir helstu fræðimenn Norðurland- anna á sviði lögfræði, stór hluti af hæstaréttar- dómurum Norðurlandanna (m.a. fjórir af fimm forsetum Hæstarétta), umboðsmenn þjóðþinga, ráðuneytisstjórar, ríkislögmenn, ríkissaksóknarar og ríkislögreglustjórar. Sameiginlegir fundir voru haldnir við upphaf og lok þingsins. Að öðru leyti var fjallað um efni þingsins í málstofum, en 4-5 slíkar voru haldnar samhliða á hverjum tíma. Við setningu þingsins 37. norræna lögfræðingaþingið í Reykjavík í ágúst 2005 Ármann Snævarr, heiðursfélagi Íslandsdeildarinnar, á tali við þátttakendur á þinginu flutti Sigurður Líndal, fyrrverandi prófessor, rétt- arsögulegt erindi um lagahugtakið á miðöldum, m.a. á Íslandi, og áhrif þess á þróun réttarins í Evrópu í dag. Við lok þingsins voru pallborðsum- ræður um stöðu og þýðingu norrænnar samvinnu á sviði lögfræði. Meðal fjölmargra annarra umræðuefna voru ýmis álitaefni sem tengjast grundvallarréttindum einstaklinga, svo sem hvernig standa megi vörð um þau í tengslum við baráttuna gegn hryðjuverkum, hvort og hvernig vernda eigi slík réttindi á vettvangi Evrópusam- bandsins og hvort svigrúm löggjafans til lagasetn- ingar sé orðið of takmarkað vegna slíkra réttinda. Einnig var til að mynda fjallað um sönnunar- vandamál sem upp koma þegar á reynir hvort ein- staklingum hafi verið mismunað með ólögmætum hætti, um vinnuréttarleg ágreiningsefni sem tengjast alþjóðlegum verktökum, um meðferð efnahagsbrota og refsingar fyrir þau, um stöðu hugverkaréttarins í nútíma samfélagi, um ofbeldi gegn konum, um norræna lagasamræmingu á sviði sifjaréttar, um yfirlýsingar sem dómarar láta falla um gildandi rétt utan dóma og um stöðu þagnarréttar lögmanna. Nánari kynningu á efnum þingsins má finna á heimasíðu þess, www.cong- ress.is/njm2005. Á heimasíðunni hafa verið birtar þær greinargerðir (referat) sem lágu til grund- Formenn landsdeilda norrænu lögfræðinga- þinganna

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.