Lögmannablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 11
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/14 11
UMFJÖLLUN
Suðurlandsbraut 4, 3. hæð, 108 Reykjavík
Sími 414 4100 · Fax 414 4101 · www.law.is
Gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár
CATO
L Ö G M E N N
betur hvernig lögmenn ættu að ræða
við vitni og taldi að setja ætti ítarlegri
leiðbeiningarreglur til þess að fara eftir.
Kristinn Bjarnason hrl. taldi eðlilegra að
bíða niðurstöðu Hæstaréttar í Al – Thani
málinu sem myndi væntanlega skýra
með dómi sínum snemma á næsta ári,
hvernig lögmenn ættu að umgangast
vitni í sakamálum. Kristinn sagðist
ekki taka afstöðu til efnis tillögunar en
sagði að slík regla í siðareglum kynni
að vera nauðsynleg. Garðar Steinn
Ólafsson hdl. sagði tillöguna ekki veita
lögmönnum nýja heimild heldur væri
hún að skýra betur heimild sem fyrir
væri. Einar Gautur Steingrímsson hrl.
lýsti þerri skoðun sinni að LMFÍ ætti að
setja siðareglur á eigin forsendum og
því væri rétt að setja skýrar reglur um
samskipti lögmanna við vitni. Ekki skipti
máli hvort Hæstiréttur ætlaði að fjalla
um málið eða ekki. Varðandi sjónarmið
Kristins sagði Reimar að héraðsdómarar
hefðu mismunandi viðhorf til málsins og
því væri mikilvægt að afstaða LMFÍ lægi
fyrir um hvað teldust fagleg vinnubrögð
áður en dómur yrði uppkveðinn.
Í lok fundar samþykktu fundarmenn
eftirfarandi ályktun um samskipti
lögmanna og vitna og ósk til stjórnar
Lögmannafélagsins um að vinna málið
áfram:
„Fundurinn ályktar að lögmanni sé
heimilt og geti eftir atvikum verið skylt
að hafa samband við vitni í máli. Hafi
lögmaður samband við vitni ber honum
að gæta tillitsemi og forðast að hafa
áhrif á framburð þess. Lögmenn skulu
í þessu gæta faglegra vinnubragða sem
samrýmast siðareglum félagsins. Stjórn
félagsins er falið að vinna áfram að
þeirri tillögu sem liggur fyrir fundinum
um breytingar á siðareglum félagsins
þessu til staðfestu“.
Anna Lilja Hallgrímsdóttir