19. júní


19. júní - 19.06.2012, Blaðsíða 6

19. júní - 19.06.2012, Blaðsíða 6
19. júní TímariT kvenréTTindafélags íslands 61. árgangur riTnefnd 19. júní kannaði viðhorf forseTaframbjóðenda Til femínisma og allir voru Þeir spurðir sömu spurningarinnar: ErT þú fEmínisTi? verður ForSetinn Já, ég er femínisti. Bæði er ég femínisti og jafnframt kona sem þorir, getur og vill taka þátt í að hafa áhrif á samfélagið. Ég skilgreini femínisma þannig að það er karl eða kona sem áttar sig á að við búum ekki við jafnrétti kynjanna og að það þurfi að gera eitthvað við því (þrátt fyrir að við hér á Íslandi séum lengra komin en víða annars staðar). Til þess geta verið ótal mismunandi leiðir, en aðalatriðið er að átta sig á þörfinni og hafa viljann. Ég tel að menn leggi almennt ólíkan skilning í hugtakið femínisti. Ef átt er við að femínisti haldi í heiðri jafnrétti karla og kvenna á öllum sviðum samfélagsins og í persónulegum samskiptum þá get ég svarað játandi spurningu um hvort ég sé femínisti. Ég er upptekinn af jafnrétti á öllum vígstöðvum, þar á meðal jafnrétti kynja. Hins vegar tel ég mig ekki mann öfga á nokkurn hátt. Ef femínismi er skilgreindur sem öfga stefna þá er ég ekki femínisti. Ef femínismi er skilgreindur sem hug mynda­ fræði sem vinnur að jöfnuði milli kynja þá er ég femínisti. Ég hef ætíð verið eindreginn jafnréttissinni og stutt jafn réttis­ baráttu kvenna frá því ég hóf þátttöku í þjóðmálum. Femínisti er hins vegar hugmyndafræðilegt hugtak sem hefur mismunandi merkingar eftir því hver beitir því. Ég hef á marg víslegan hátt lagt jafnréttisbaráttunni lið með þátttöku í viðburðum og áföngum í baráttunni. Þegar ég var ungur fræði maður að hefja kennslu í þjóðfélagsvísindum við Háskóla Íslands settum við jafnrétti á efnisskrá námsins. Ég stjórnaði síðan fyrstu rannsókninni á jafn­ rétti kynjanna sem gerð var á Íslandi í kjölfar þingsályktunar sem Alþingi hafði samþykkt en nemandi minn Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir vann að rannsókninni. Síðan annaðist ég ritstjórn rann sóknarinnar þegar hún kom út í bókinni Jafnrétti kynjanna. Já, ég er femínisti. Sumir vilja frekar nota orðið jafnréttis sinni, en fyrir mér er femínismi einfaldlega lífsskoðun þeirra sem telja að fullt jafnrétti eigi að ríkja á milli karla og kvenna, að því mark­ miði hafi ekki enn verið náð ­ og vilja gera eitthvað í því. Við verðum stöðugt að berjast fyrir jafnrétti og vera á varðbergi svo við glötum ekki því sem þegar hefur áunnist. Við maðurinn minn deilum þessari lífssýn og ölum bæði son okkar og dætur upp samkvæmt því. Já, ég er femínisti af því að ég hef gert mér grein fyrir því nokkuð lengi að jafnréttisbaráttunni miðar ekkert áfram nema við sýnum hugrekki og vekjum stöðugt athygli á óréttlætinu sem því miður bitnar mun meir á konum. Netmiðillinn Knúz.is var stofnaður í lok síðasta sumars í kjölfar skyndilegs fráfalls Gunnars Hrafns Hrafnbjargar­ sonar þann 4. ágúst 2011. Gunnar Hrafn var aðeins 35 ára gamall þegar hann lést og hafði verið liðtækur í jafnréttisbaráttunni. Hann hélt meðal annars úti bloggsíðu hliðarsjálfsins Sigurbjörns femínista þar sem hann gagnrýndi samfélagið á femíniskum forsendum. Þegar hávær rödd Gunnars Hrafns þagnaði tóku félagar hans sig saman og stofnuðu Knúz.is. Vefurinn var bæði stofnaður með það fyrir augum að fylla í skarðið sem Gunnar Hrafn skildi eftir sig í jafnréttisumræðunni auk þess sem hópurinn var sammála um að þörfin fyrir óháðan femíniskan netmiðil væri mikil. Nafnið Knúz kom til vegna þess að orðið var í miklu uppá­ andrea j. ÓlaFSdÓttir ari trauSti guðmundSSon HanneS bjarnaSon ÓlaFur ragnar grímSSon ÞÓra arnÓrSdÓttir HerdíS ÞorgeirSdÓttir haldi hjá Gunnari Hrafni og skömmu fyrir fráfall sitt sagði hann: „Alnetið þarf knúz miklu oftar. Annars breytist það í vígvöll.“ Fjölbreyttur hópur fólks stendur á bak við vefinn og eiga greinarnar sem þar birtast það eitt sameiginlegt að vera skrifað ar á femíniskum forsendum. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, bókmennta ­ fræðingur og einn af stofn félögum Knúz.is, segir skort á umræðu um jafn réttismál hafi verið áhyggjuefni. „Okkur blöskraði satt að segja hversu lítið var skrifað um jafnréttismál á netmiðlunum en mikið af alls konar froðu og langaði, í anda vinar okkar, að bæta úr því. Til þess að halda hinum femíniska neista á lífi og til þess að ekki komi þreyta í samstarf okkar, þá skiptum við um ritstjórn reglu­ lega og það kemur í hennar hlut að afla efnis. Fyrst um sinn vorum við stórhuga og frumbirtum eina grein á dag, en öll erum við í fullri vinnu og ekkert okkar þiggur laun fyrir greinaskrif, þannig að við höfum eilítið fækkað birtingum, án þess að slá af kröfum um efnið. Vefurinn er innan við tíu mánaða gamall, en nú þegar hafa birst á honum um 200 greinar eftir fimmtíu höfunda af báðum kynjum, á öllum aldri og um hið fjölbreytilegasta efni. Baráttukrafturinn er hvergi nærri þrotinn og áfram mun Knúz vera vin femínista í eyðimörk netmiðlanna.“ „alnetið ÞarF Knúz“ Ljósmynd: Ómar Óskarsson. Ljósmynd: Arnold Björnsson. Ljósmynd: Eygló Árnadóttir. Ljósmynd: Hermann Sigurðsson. Ljósmynd: Eygló Árnadóttir. Ljósmynd: Salbjörg Ríta Jónsdóttir. Femí iSti?

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.