IÍ SAFNI Árna Magnússonar hefur fjöldi brota úr misgömlum handritum, eink- um skinnbókum, verið flokkaður eftir efni og hver flokkur síðan skráður undir einu safnmarki, en brotin, sem flest eru einu leifarnar sem hafa varðveist af heilum bókum, síðan auðkennd með tölum, ýmist arabiskum eða rómverskum, og undirflokkar stundum með bókstöfum. Í einu af þessu brotasafni eru leifar fimmtán handrita með safnmarki AM 240 fol og greint milli brotanna með rómverskum tölum, I?XV. Í skrá yfir handrit í Árnasafni sem Kristian Kålund tók saman1 er brotunum lýst og getið um efni sem á þeim stendur, og heyrir til undantekninga ef þar er ekki farið rétt með. Ein af þeim undantekningum er það sem Kålund segir um fimmtánda brotið í AM 240 fol sem hann kallar Jartegnir, en það er raunar brot úr bók með þýddum ævintýrum, líklega úr ensku, sem nánar verður fjallað um hér á eftir. Þetta brot er aðeins tvö samföst blöð (tvinn), hið eina sem hefur varðveist úr skinnbók í litlu broti. Fyrra blaðið er 12,6 x 16,7 sm., en hið síðara 13,1 x 17 sm. Skrift er í einum dálki, leturflötur 10 x 13 sm. á bl. 1, 10 x 13,4 á bl. 2r og 10 x 13,8 á 2v, 26 línur á bl. 1r?2r, en 28 á 2v. Einhver væta hefur komist á bl. 1r efst til hægri og smitað yfir á hitt blaðið, en að öðru leyti eru þessi blöð tiltölulega vel varðveitt og skriftin yfirleitt skýr. Á bl. 1v grillir aðeins í leifar af upphafsstaf: ?J?, líklega í bláum og gulum lit, og fyrirsögn mun einnig hafa verið í bláum lit, en þar sést enginn heill stafur. Annars er ekki að sjá af þess- um blöðum að handritið hafi verið lýst, en við upphaf hvers ævintýris er skrifaður lítill stafur á spássíu, lýsara til leiðbeiningar: ?j? á ytri spássíu á 1v, ?v? á innri spássíu á 2r, ?þ? og ?a? á ytri spássíu á 2v. Skriftin á 1r og 2v er á stöku stað máð og í heild ekki eins skýr og bók- fellið ekki eins hreint og á 1v og 2r, sem gæti bent til að þessi blöð hafi verið ÓLAFUR HALLDÓRSSON AM 240 FOL XV TVINN ÚR HANDRITI MEÐ ÆVINTÝRUM 1 KålKatAM I?II. Gripla XVIII (2007): 23?46.