Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2008, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2008, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNl 2008 Heimili aV Hrafnista í Reykjavík Húsið var vígt árið 1957, eða fyrir rúmri hálfri öld. Miklar endurbæt- ur standa nú yfir á Hrafnistu i Reykja- vik. Fyrsta áfanga af fjórum lauk nýverið og var því fagnað samfara sjómannadags- .fagnaði síðastlið- inn sunnudag. |E3 i í * Matsalur Einn tilgangurinn með breytingunum er að skipta Hrafnistu i litlar einingar með sérmatsal. Endumýjun lífdaga rafnistu rir ft Alma Birgisdóttir, hjúkrunar- forstjóri á Hrafnistu í Reykja- vík „Þegar við vorum búin að raða upp nýju húsgögnunum hérna á laugardaginn sá maður hvað allir voru alsælir með þetta." Svalir Stórar svalir eru á meðal þess sem bætist við með breytingunum. Þetta er búin að vera geysileg röskun, bæði fyrir heimilisfólkið og starfsfólkið. Rykið og hávaðinn og allt það sem fylgir þessu. Það er í raun merkilegt hvað allir hafa tek- ið þessu með jafnaðargeði. En það voru allir mjög ánægðir um helgina að sjá breytinguna," segir Alma Birg- isdóttir, hjúkrunarforstjóri á Hrafn- istu í Reykjavík. Hluti dvalarheimil- isins hefur nú undirgengist miklar breytingar sem hófust strax eftir sjó- mannadaginn í fyrra, eða fyrir réttu ári. Bæði hafa herbergi heimilisfólks verið stækkuð og sameiginleg rými, til að mynda matsalir og setustoftir. „Þegar við vorum búin að raða upp nýju húsgögnunum hérna á laugardaginn sá maður hvað allir voru alsælir með þetta. Og allir fundu sér nýja stóla og sín sæti til að sitja í,“ segir Alma. Aðspurð segist hún ekki hafa orðið vör við að einhveijir hafi viljað halda öllu í sínu gamla formi. Öll húsgögn í sameiginlegum rýmum verða endurnýjuð. „Við erum að reyna að gera þetta heimilislegt. Þetta er auðvitað heimili fólksins og við erum að reyna að gera þetta þannig að fólki líði vel. Og við reyn- um að blanda saman húsgögnum sem eru fyrir hjúkrunarheimili og húsgögnum sem fengin eru úr hús- gagnaverslunum." Hætt að taka við nýjum heimilismönnum Hrafnista í Reykjavík tók til starfa fyrir fimmtíu og einu ári. Þegar flest var bjuggu þar 450 manns. í tímans rás hafa kröfur aukist um meira rými og betri aðstöðu og eru heimilis-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.