Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 11
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNl 2008 11 Sameiningará fasteignamarkaði Einar Páll Kjærnested hefur keypt hlut í fasteignasölunni Eignamiðlun og mun Fasteigna- sala Mosfellsbæjar, sem Einar hefur rekið um árabil, verða hluti Eignamiðlunar. f kjölfar sameiningarinn- ar verður Eignamiðlun nú með tvær söluskrifstofur á höfuðborg- arsvæðinu, í Síðumúla 21 og í Kjarna í Mosfellsbæ. Markmið sameiningarinnar er gagnkvæm styrking á fasteignamarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu og hag- ræðing í gegnum samlegðaráhrif. Eignamiðlun er elsta starfandi fasteignasala landsins. Fullurog réttindalaus Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af karlmanni við akstur í fyrrinótt. Reyndist hann vera undir áhrifum áfengis og ólöglegra vímuefna. Ekki er vitað hvaða vímuefna maðurinn hafði neytt áður en hann settist undir stýri. Var maðurinn kærður fyrir athæfið og má hann eiga von á sekt og punktum í ökuferilsskrá sína. Starfshættir Kaupþings batna Starfshættir Kaupþings við sölu á Vista viðbótarlífeyris- sparnaði hafa skánað frá því sem áður var, að mati Neytendasam- takanna. Samtökin höfðu ítrek- að gagnrýnt bankann fyrir það hvernig staðið var að sölunni, en mörg dæmi voru um að ungt fólk hefði gert bindandi samninga í verslunarmiðstöðvum, á vinnu- stöðum og jafnvel á kaffihúsum. Neytendasamtökin lögðu til að Kaupþing setti í skilmála sína ákvæði um að rétthafi samnings gæti sagt upp samningnum inn- an 14 daga frá undirritun, enda myndi slíkt ákvæði í mörgum til- vikum koma í veg fyrir ágreining sem tengist samningsgerðinni. Óupplýstur elcfur i Eyjum Ekki er enn orðið ljóst hver eldsupptök voru þegar þjóð- hátíðarsviðin í Vestmanna- eyjum brunnu og skemmdust talsvert í síðustu viku. Sam- kvæmt upplýsingum frá lög- reglu er meðal annars verið að kanna hvort kviknað hafi í út frá rafmagni, en sviðin voru á geymslusvæði Ahaldahúss bæjarins. Málið er enn í rann- sókn. Á sunnudagsmorgun var lögreglu tilkynnt að brotn- ar hefðu verið fjórar rúður í Sorpeyðingarstöðinni sem og allar rúður í sorpbifreið fyrir- tækisins. Bótanefnd ríkisins fékk aðgang að trúnaðargögnum lögreglu við mat á bótakröfu tveggja manna sem kærðu Gísla Hjartarson fyrir kynferðisbrot. Málið telst óupplýst þar sem dómstólar tóku það ekki upp eftir að Gisli lést. Því fæst ekki uppgefið hvort játning Gisla lá fyrir. Vinnubrögð Sifjar Konráðsdóttur leiddu næstum til þess að bótaréttur féll nið- ur. Sóttu um bætur á síðustu stundu Úrskurður bótanefndar ríkisins um að greiða bæturtil mannanna tveggja sem kærðu Gísla Hjartarson fyrir kynferðisbrot jafngildir ekki sekt hans. EHHb V H! I i wny * tgai ifTn II II K rti Jp. !í pf li.il ¥ , m 1 íSæii r wm KYNFERÐISBROTIN TELJAST ÓUPPLÝST ERLA HLYNSDÓTTIR blcidamadur skrifar: erlatcpdv.is Mál mannanna tveggja sem kærðu Gísla Hjartarson fýrir kynferðisbrot telst óupplýst þar sem Gísli framdi sjálfsvíg áður en málið komst fýrir dómstóla. Bótanefnd ríkisins sem greiddi þeim hvorum um sig há- marksbætur tekur ekki afstöðu til sektar ákærða. Við ákvörðun bóta notaðist nefndin við rannsóknar- gögn lögreglu. Þar sem málið er óupplýst eru þau og verða trún- aðarmál. Því fást ekki upplýsingar um þau efnislegu atriði sem lágu til grundvallar úrskurði nefndarinnar, þar á meðal hvort Gísli játaði brot- in. Hefðu misst bótaréttinn Bótakrafa mannanna tveggja kom fyrir bótanefndina á síðustu stundu. Hefðu þeir beðið lengur er líklegt að þeir hefðu ekki fengið Engar undanþágur eru frá því að rannsóknar- gögn óupplýstra mála séu gerð opinber. neinar bætur. Halldór Þormar Halldórsson, starfsmaður bótanefndarinnar, staðfestir að mál mannanna hefði rétt borist innan marka þess tíma sem þeir höfðu til að leita réttar síns með þessum hætti. Aðspurður hvort bótaréttur mannanna hefði fallið niður hefðu þeir ekki sótt um innan þess tíma segir hann: „Það má telja það, já." Halldór segir enn fremur að þó nefndin ákvarði bætur til þolenda afbrota sé það ekki viðurkenning á sekt. Því eru dæmi um að nefnd- in ákvarði bætur þrátt fyrir að mál hafi ekki verið upplýst. Enginn var dæmdur fyrir dómstólum fyrir brot gegn mönnunum tveimur og því stendur eftir að það telst óupplýst. Nefndin tekur ekki efnislega afstöðu til meintra brotamanna í málum sem inn á borð hennar koma, það geta aðeins dómstólar gert. Gagnrýna réttargæslumann- inn DV greindi frá því í gær að ann- ar maðurinn sem kærði Gísla er afar ósáttur við vinnubrögð Sifjar Konráðsdóttur lögmanns sem var skipaður réttargæslumaður þeirra beggja. Hann segir Sif hafa tjáð þeim að hún hefði þegar farið með málið fyrir bótanefndina þegar hún hafði í raun ekki gert neitt slíkt. Mennirnir uppgötvuðu sjálfir á síðustu stundu að málið var ekki í vinnslu þar og komu því þangað til meðferðar. Rannsókn málsins var hætt af hálfu lögreglu eftir að Gísli íyrirfór sér sama dag og DV fjallaði um mál- ið á forsíðu. Almennur frestur sem fólk hef- ur til að sækja um bætur eru tvö ár frá því brot er framið. Þó eru veitt- ar undanþágur frá’þessum fresti, sér í lagi þegar um kynferðisbrot gagn- vart börnum og ungmennum er að ræða, þar sem fólk greinir oft löngu síðar frá slíkum brotum. I þeim til- fellum er miðað við tvö ár frá þeim degi sem brotin eru kærð. Bætur eftir sjálfsvíg ekki einsdæmi Halldór segir það ekki einsdæmi að bótanefndin ákvarði bætur eftir að sá sem kærður er fremur sjálfs- víg áður en málið fer fyrir dómstóla. f fljótu bragði man hann eftir nokkr- um slíkum málum. Hvað hámarksbætur varðar er mjög algengt að þær séu greiddar út, en mennirnir tveir fengu hvor um sig 600 þúsund krónur sem eru hæstu miskabætur sem nefndin getur ákvarðað. Halldór veit ekki um neinar und- anþágur frá því að rannsóknargögn óupplýstra mála séu gerð opinber. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir síðustu daga hefur ekki náðst í Sif Konráðs- dóttur. Aðalmeðferð í hraðsendingarmálinu fór fram í gær: Þorðu ekki að draga sig úr Aðalmeðferð í hraðsendingar- málinu svokallaða fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjavfkur í gær. Ann- þór K. Karlsson var á meðal þeirra sem báru vitni en hinir voru Tómas Kristjánsson og bræðurnir Ari og Jó- hannes Gunnarssynir. Þeir voru allir ákærðir fyrir að hafa komið að stór- felldum innflutningi á fíkniefnum; 4,6 kílóum af amfetamíni og um 600 grömmum af kókaíni frá Þýska- landi. Annþór neitaði staðfastlega sök í vitnaleiðslum í gær en hann er ákærður fyrir að skipuleggja og fjár- magna smyglið. Kolbrún Sævars- dóttir saksóknari spilaði þá nokkr- ar upptökur af símtölum Annþórs. Þar lýsti hann meðal annars fyrir vini sínum hvemig hann hefði flú- ið úr gæsluvarðhaldi en hann strauk ári. Lýsingar hans þóttu svo fjörleg- ur glottu ósjálffátt út í annað. úr haldi um miðjan febrúar á þessu ar að dómarar, sækjandi og verjend- Bræðurnir Ari og Jóhannes sögðu málinu báðir að Annþór hefði verið sá sem skipulagði innflutninginn. Þeir segjast hafa verið mjög hræddir við Annþór og því hafi þeir ekki þorað að draga sig út úr málinu þegar þeir sáu í hvað stefndi. Þeir hafi aðeins verið sendiboðar í málinu og flutt skilaboð milli Annþórs og Tómasar en hann var starfsmaður hraðsend- ingarfyrirtækisins UPS á þeim tíma. Efnin bárust til landsins með hrað- sendingarþjónustu fyrirtækisins. Þegar Ari bar vitni í gær brast hann í grát en hann á von á barni með konu sinni. Tómas sagði ásakanir í sinn garð uppspuna frá rótum en þeir Jó- hannes eru æskuvinir. Tómas gat hins vegar eklci útskýrt hvers vegna vinur hans bæri hann svo þungum sökum. Niðurstöðu er að vænta inn- an þriggja vikna. baldur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.