Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 227
Skírnir
Ritfregnir
225
réttnefni. Hversdagslegir viðburðir: viðmót og viðræður samferða-
manna í bíl, andlit, sem bregður fyrir á leiðinni, landið og veðrið,
skin og skúrir, fuglar í mó, viðarteinungurinn, sem gægist upp úr
moldinni, hversdagsstörf og sumargleðskapur sveitafólksins, ör-
vænting hins lamaða, gáleysi og stefnuleysi nautnaþyrstrar æsku,
andstæður fornra dyggða og hálfblindra nýtízku hugsjóna, — allt
verður þetta að heillandi sögu, þar sem vegir og vegleysur í sálum
mannanna skiptast á ört og óvænt og gefa lífinu þá stígandi streitu
og lausnar, sem skáldin ein megna að birta. En þráður sögunnar
verður viðkynning og viðskipti hins geðþekka menntamanns og
hinnar ungu, frjálsbornu bóndadóttur, sem að lokum finna samleið
út úr vegleysunum og hverfa úr sýn með samúð lesandans í fylgd
með sér.
Þórir Bergsson hefir með smásögum sínum aflað sér margra
vina og aðdáenda. Þessi saga sýnir, að honum er jafnlagið að semja
lengri sögur, og ég óska þess af heilum hug, að hann megi héðan
af verja kröftum sínum óskiptum til þess að auðga bókmenntir
vorar. G. F.
Bergsteinn Kristjánsson: Dýrasögur. ísafoldarprentsmiðja h.f.
Rvík 1943.
Sögurnar eru 16 talsins og allar stuttár, nema sú síðasta, sem
er endurminning um hest höfundarins, „Prata“. Bregða sögur þess-
ar upp myndum úr lífi dýra og unglinga og eru að sögn höfundar-
ins sannir viðburðir. Sumar þeirra sýna, eins og t. d. fyrsta sagan,
um Gráu kisu, og næstsíðasta sagan, um Halla og mýsnar, að börn
■eru oft og einatt næmari fyrir vitundarlífi dýranna en fullorðna
fólkið og skilja þau betur. Nokkrar sögurnar sýna allmerkar at-
huganir um samlíf og samúð dýranna sjálfra, og ættu þær að geta
•orðið hvöt til unglinga að hafa opin augun fyrir öllu sérkennilegu,
er birtist í fari dýranna, er þau umgangast daglega. Ef nokkuð
getur glætt og göfgað mannssálina, þá er það samlífið við dýrin og
náttúruna. Sagan Líknarhönd er að mínu áliti bezta sagan í bók-
inni. Hún er í rauninni hinn óskipulagði þegnskaparskóli lífsins, og
þó að ekki væri önnur saga í bókinni en þessi, þá ætti hún tilveru-
rétt. Bókin er rituð í einföldum frásagnastíl, ef til vill um of fá-
tæklegum á stöku stað.
Bókin ætti skilið betri pappír og frágang. Teikningarnar, sem
eru eftir hina ágætu listakonu, Barböru Árnason, myndu og njóta
sín betur. Laufey Vilhjálmsdóttir.
SigurSur Thorlacius: Sumardagar. Útg. ísafoldarprentsmiðja h.f.
------------ Um loftin blá. Útg. ísafoldarprentsm. h.f.
Sumardagar er saga forystuærinnar Flekku og dóttur hennar,
15