Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 9
EGILL BENEDIKTSSON A SVEINSSTOÐUM
eftir sigurð eiríksson á Borgarfelli
Egill Benediktsson, bóndi á Sveinsstöðum í Tungusveit,
sem hér verður nokkuð frá sagt, fæddist í Brekku hjá Víðimýri
hinn 13. maí 1877. Foreldrar hans voru hjónin Benedikt Kristjáns-
son, sem var bóndi í Brekku, á Skörðugili og víðar, og kona hans,
Ingibjörg Einarsdóttir frá Krossanesi í Vallhólmi. Hún var al-
systir Indriða Einarssonar, skrifstofustjóra og leikritaskálds.
Egill ólst upp í allstórum systkinahóp til þrettán ára aldurs. Þá
fór hann til Árna bónda á Marbæli á Langholti og var þar, unz
hann náði tvítugsaldri, og hélt alla tíð tryggð við þau hjónin, Arna
og Sigurlínu.
Arni bóndi mun fljótt hafa komið auga á, að drengurinn var
gæddur ýmsum hæfileikum, sem ekki var algengt, að byggju í
einum og sama manni. Þannig komu skyggnihæfileikar hans og
dulargáfa fljótt í Ijós. Það þótti Arna lítilsvert, en kunni því
betur að meta iðjusemi Egils og frábæra vandvirkni, og þó ekki
sízt nærfærni hans við veikar skepnur, sem var frábær, og skal
ég segja frá tildrögum þess trausts, sem hann ávann sér í því efni:
Það var um sauðburð, þegar Egill var nýkominn að Marbæli, að
tveggja vetra ær gat ekki borið. Arni var sjálfur að reyna að hjálpa
henni og hafði þar með sér mann, sem hann treysti vel í því efni,
en þeir gátu ekki greitt fyrir burðinum, gáfust loks alveg upp og
fóru heim til bæjar að sækja tæki til að slátra kindinni. Þetta var