Skagfirðingabók - 01.01.1980, Blaðsíða 81
SKOPRÍMA GÖMUL OG HÖFUNDUR HENNAR
ejtir HANNES PÉTURSSON
I
I Rímnatali Finns Sigmundssonar, hinum hagsmíðaða
lykli að öllum íslenzkum rímnakveðskap sem nú þekkist, „eru
nafngreindar rúmlega 1050 rímur, sem varðveitzt hafa“ segir
höfundur, „þar með taldar 270 stakar rímur og nokkur brot. Af
þessum rímum eru aðeins um 240 prentaðar, einnig að meðtöldum
stökum rímum. . . Rímnaskáld þau, sem nefnd eru í höfundatal-
inu, munu vera samtals um 480. Þau eru úr öllum sýslum lands-
ins, en þó er hlutur Norðlendinga mestur að höfðatölu. Mun
láta nærri, að fjórar sýslur, Húnavatnssýsla, Skagafjarðarsýsla,
Eyjafjarðarsýsla og Þingeyjarsýsla, eigi helming rímnaskáldanna,
og skiptast þau nokkurnveginn jafnt á sýslurnar*'.
Það undrar engan, úr því rímnaskáldin eru þetta mörg, þótt
„örðugt reyndist að skilgreina allmarga, sem rímur eru eignaðar"
eins og Finnur Sigmundsson tekur fram. En því er vitnað til
þeirra orða hans hér, að telja má víst að ríma, sem nú verður
drepið á, sé rangt feðruð í Rímnatali. Hún er stök og hefur aldrei
verið gefin út. Þótt hún skipti um höfund, skakkar það ekki hlut
norðlenzkra rímnaskálda um hársbreidd, því norðlenzkur var sá
maður sem Finnur Sigmundsson gizkar á að geti verið höfundur
hennar og Norðlingur var einnig hinn sem hana kvað réttilega,
samkvæmt góðri heimild.
Ríma þessi er að lengd 32 vísur1 braghendar, nánar sagt: kveð-
1 Ekki 43, eins og segir í Rimnatali I, Rvík 1966, bls. 471.
79